Morgunblaðið - 25.04.2019, Side 35

Morgunblaðið - 25.04.2019, Side 35
UMRÆÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 Tveggja pósta lyftur með 3 til B ÍLALYFTUR Höfum á boðstólum mikið úrval af lyftum og fylgihlutum fyrir allar gerðir bíla 4, 6 og 8 pósta lyftur með 4 til 40 tonna lyftigetu. Fjöldi auka og hjálpartækja svo sem millitjakkar, hristarar og hjólaskoðunarplattar. Niðurgrafnar lyftur. Margir möguleikar á lyftiörmum og útfærslum á lyftum. 3 til 7 tonna skæralyftur einfaldar eða tvöfaldar, einnig fáanlegar galvaníseraðar. Fjölbreytt úrval af lyfti örmum, t.d. extra lágir armar fyrir sportbíla og upphækkaðir armar fyrir grindarbíla. Áratuga reynsla starfsmanna Vélasölunnar og fjölbreytt vöruúrval, gerir Vélasöluna að einu öflugasta þjónustufyrirtæki við iðnað og sjávarútveg á Íslandi. 5 tonna lyftigetu. Dugguvogi 4 · 104 Reykjavík Sími, 520 0000 · www.velasalan.is Í dag er alþjóð- legur dagur vitund- arvakningar um foreldraútilokun, sem er það þegar barni eru að ástæðulausu innrættar neikvæðar tilfinningar s.s. ótti, hatur og fyrirlitning í garð foreldris, oft í tengslum við skilnað og/eða forsjárdeilur. Barnið sýnir þá mjög sterka af- stöðu með foreldrinu sem beitir úti- lokuninni en hafnar algerlega sam- bandi við hitt foreldrið. Oft nær útilokunin til allra í fjölskyldu og vinahring útilokaða foreldrisins. Af- leiðingarnar fyrir barnið eru alvar- legar og langvarandi. Samkvæmt könnun sem Félag um foreldrajafnrétti fékk gerða í apríl 2017 þekkja 36,7% Íslendinga barn eða uppkomið barn sem hefur verið synjað að einhverju eða öllu leyti um að umgangast annað for- eldri sitt. Í hverri viku hafa for- eldrar, ömmur og afar samband við félagið til að leita ráða gegn þessu ofbeldi. Nýlega barst félaginu bréf sem útskýrir vel líðan foreldris sem er þolandi þessa ofbeldis. Gefum foreldrinu orðið: Erfiður dagur Í dag er erfiður dagur. Eftir langan góðan kafla helltist hún aft- ur yfir mig í morgun, sorgin yfir því að hitta ekki börnin mín, yfir að hafa tapað sambandinu við þá einstaklinga í heiminum sem skipta mig meira máli en lífið sjálft. Flestir hafa upplifað að týna barninu sínu smástund, í Hagkaup, niðri í bæ á 17. júní eða álíka. Hjartað stoppar, allur heimurinnn fer í „slómó“ og svo tekur adrenalínið völdin. Engin hugsun kemst að önnur en að finna barnið og sem betur fer tekur það yfirleitt stutta stund. Foreldri sem hefur misst allt samband við barnið sitt vaknar hvern einasta dag eins og það hafi týnt barninu sínu í gær og að það hafi ekki fundist. Það líða aldrei meira en örfáar sekúndur frá því augun opnast á morgnana og þang- að til það skellur á manni af fullum þunga. Eins og vörubíll á fullri ferð. Að barnið er horfið þér, það óttast þig og jafnvel fyrirlítur án nokk- urrar gildrar ástæðu, nema heiftar hins foreldrisins. Hver dagur er fullur af angist og þráhyggju- kenndum hugsunum þar sem þú ferð aftur og aftur og aftur í gegn- um það hvað hefur gerst og hvað væri mögulega hægt að gera til að „finna“ barnið aftur. Allir dagar eru litaðir þessum hugsunum, sorginni yfir missinum og því sem er verið að gera barninu. Suma daga er það bara eins og ca. 30% vinna að hafa allar þessar hugsanir í bakhöfðinu og þyngslin í brjóstinu. Aðrir dagar eru verri og þá er býsna gott ef þú getur mætt í vinnu og feikað þig í gegnum daginn. Þegar þú átt slæman dag er engin leið að forða sér. Trukkurinn keyrir þig á kaf af fullum þunga. Þá er gott að eiga einhvern að sem skilur, því eitt af því sem gerir þetta ofbeldi enn verra er þegar þarf að útskýra málið fyrir vinum og kunningjum. Þú ert kannski í fermingarveislu og einhver fjar- skyldur ættingi segir: „Hvað er að frétta af syni þínum, er hann kom- inn í menntaskóla?“ Eða: „Ég sá stelpuna þína keppa í fótbolta um daginn, rosalega er hún lík þér!“ Hvernig er þá hægt að segja frá því án þess að fara að gráta fyrir framan alla að þú hefur ekki séð barnið þitt í mörg ár? Að það hefur lokað á öll samskipti við þig og hitt foreldri þess ber út sögur um að það sé hrætt við þig um leið og það lætur jafnvel að því liggja að þú hafir beitt það ofbeldi? Ef þú ert faðir er alveg sama hvað þú áttir gott samband við barnið þitt fyrir skilnað, þegar tek- ist hefur að eitra samband barnsins þíns við þig er almenningsálitið tilbúið að trúa flestu upp á þig. Að vera útilokuð móðir er enn verra. Fordómar í garð mæðra sem missa tengsl við börnin sín eru grimmi- legir. „Eitthvað hefur nú gengið á fyrst barnið neitar að hitta móður sína,“ segir fólk. Líka gott fólk eins og þú sem hugsar kannski sem svo: „Það eru nú alveg til foreldrar sem ættu ekkert að umgangast börnin sín.“ Og það er alveg rétt. Þeir eru til. En einkennin á þeim tilfellum eru mjög ólík einkennunum á of- beldinu foreldraútilokun og það er mikilvægt að þekkja muninn. Það ætti að hringja viðvörunar- bjöllum ef foreldri sem átti mjög gott samband við börnin sín fyrir skilnað er allt í einu orðið svo vont eftir skilnað að það þykir ástæða til að klippa á allt samband við það. Það ætti líka að hringja viðvörunar- bjöllum ef barn sér ekkert gott við útilokaða foreldrið og ekkert slæmt við elskaða foreldrið. Börn sem hafa raunverulega verið beitt of- beldi af foreldri sínu eru nánast alltaf tilbúin að mæla því bót – nema í tilfellum foreldraútilokunar. Þögn, skömm og fordómar eru bestu vinir þeirra sem beita börn og maka sína ofbeldi. Til að breyta einhverju þarf vitundarvakningu. Fræðslu og skilning. Ég vona að þessar hugleiðingar hafi hjálpað einhverjum að skilja foreldraútilokun og hvernig það er að vera útilokað foreldri. Kannski áttu vin eða vinkonu sem hefur lent í þessu sama og kannski getur þetta hjálpað þér að tala um þetta við hana eða hann. Það væri gott. Lesendur geta fræðst meira um foreldraútilokun á Facebook-síðu Foreldrajafnréttis. Eftir Heimi Hilmarsson »Um 37% Íslendinga þekkja barn eða uppkomið barn sem hefur verið synjað að einhverju eða öllu leyti um að umgangast annað foreldri sitt. Heimir Hilmarsson Höfundur er félagsráðgjafi og for- maður Félags um foreldrajafnrétti. heimir.hilmarsson@gmail.com Foreldraútilokun er ofbeldi sem þarf að tala um ara ofan í kjölinn, heldur utan um hagsmunamál þeirra og fylgist með aðhlynningu og aðbúnaði. Hags- munafulltrúinn á að kortleggja stöð- una í heimaþjónustu og dægradvöl fyrir aldraða. Meirihlutinn í borginni hefur hins vegar ákveðið að ráða sér- hæfðan þjónustufulltrúa sem er gott og vel. En hinn sérhæfði þjónustu- fulltrúi er einfaldlega allt annars eðl- is. Hlutverk hans er eins og segir í bókun meirihlutans „að svara fyr- irspurnum vegna þjónustu við eldri borgara og vísa erindum á viðeigandi aðila þar sem eldri borgarar geta fengið úrlausn sinna mála“. Hlutverk þjónustufulltrúa meirihlutans er fyrst og fremst að „búa yfir sérhæfðri þekkingu á málefnum eldri borgara og mæta eldri borgurum með vin- semd og áhuga og vinna að því að þeir fái á markvissan hátt úrlausn sinna mála“. Ekki á okkar vakt Velferðarráð hafnaði þeirri tillögu að styrkja stöðu eldri borgara með því að koma á fót hagsmunafulltrúa aldraðra. Nú hefur þingflokkur Flokks fólksins lagt fram þingsálykt- unartillögu sem hvetur félagsmála- ráðherra til koma á fót hagsmunafull- trúa aldraðra. Skyldi ríkisstjórnin vera tilbúin til að hlúa að öldruðum í meira mæli en borgarstjórn Reykja- víkur? Við í Flokki fólksins höfum sterka sannfæringu fyrir því að með því að koma á fót hagsmunafulltrúa aldraðra verði haldið utan um málefni þessa hóps með markvissari og skil- virkari hætti og að staða hvers og eins verði betur kortlögð. Einn van- nærður, eldri borgari sem er einangr- aður eða fastur á sjúkrahúsi vegna skorts á heimaþjónustu eða hjúkr- unarrými er einum eldri borgara of mikið í aðstæðum sem þessum og ekki líðandi í okkar gjöfula samfélagi. Höfundur er sálfræðingur og borgarfulltrúi Flokks fólksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.