Morgunblaðið - 25.04.2019, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 25.04.2019, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019 Mín fyrstu kynni af tengdapabba voru sumarið 1998 þegar ég heimsótti son hans í sumarbústað. Fljót- lega fór hann að forvitnast um hverra manna ég væri og kom í ljós að hann vissi hver pabbi minn var. Hann var afar áhugasamur um fólk, Það var alveg sama um hvaða málefni eða manneskju maður spurði um, hann vissi nánast alltaf svarið enda stál- minnugur fram á síðasta dag. Ef einhver leitaði til hans með ráð- leggingar eða einhver vandamál sem þurfti að leysa þá hætti hann ekki fyrr en lausnin var fundin. Barátta hans fyrir bættum kjörum aldraðra og öryrkja voru hans hjartans mál alveg fram á síðasta dag. Hann var óþreytandi í rúm 16 ár við að skrifa greinar um þau málefni. Hann var mjög stoltur af sínu fólki og fylgdist mjög vel með barnabörnunum og vildi fá að vita allt um það hvernig þeim gengi í skólanum, vinnu og lífinu sjálfu og deildi því svo með okk- ur hinum í fjölskyldunni þegar við komum í heimsókn. Hann var mikill fjölskyldumaður og lét sig aldrei vanta þegar honum var boðið í veislur eða aðrar uppákomur. Best var þegar stórfjölskyldan hittist öll saman, þá var hann umvafinn sínu fólki. Ég hitti hann 1. apríl sl. þegar ég fór í heimsókn til hans í til- efni af afmæli tengdamömmu en hún féll frá fyrir tæpum fjórum árum. Þar sagði ég honum hvað hann væri heppinn með syni sína því þeir væru svo fjölhæfir, þá lifnaði yfir honum og stoltið leyndi sér ekki. Ég vil þakka tengdapabba samfylgdina og kveð með söknuði. Þín Unnur. Við systkinin minnumst Björgvins afa með stolti og þakklæti. Stolt yfir dugnaði hans og athafnasemi og þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast honum, verið hluti af hans lífi. Við höfum alltaf borið mikla virðingu fyrir afa og dáðst að öllum hans merkilegu störfum í gegnum árin. Barátta afa fyrir málefnum eldri borgara í seinni tíð var óeigingjörn og ávallt réttmæt, en hann lagði alla tíð mikla áherslu á jöfnuð og rétt- læti í samfélaginu. Afi var góður penni og ritaði meðal annars æviminningar í bók sína Efst á baugi, en hún hefur að geyma dýrmætar sögur um fjölskyld- una og hans ævistörf. Við minnumst sérstaklega fjölskylduboðanna sem afa og okkur þótti svo vænt um, og eig- um eftir að sakna hans fallegu söngraddar sem stýrði oftar en ekki hópsöngvunum sem fylgdu flestum boðum. Afi var alltaf áhugasamur um okkur systkinin og stoltur af öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur, sem var ómetanlegt. Alltaf gaf hann sér tíma til að ræða við okkur um daginn og veginn. Það var okkur augljóst hversu heitt Björgvin afi elskaði Dagrúnu ömmu alla tíð og með- al annars var aðdáunarvert að fylgjast með eljunni, umburð- arlyndinu og einlægu um- hyggjuseminni sem í honum bjó þegar amma gekk í gegnum sín Björgvin Guðmundsson ✝ Björgvin Guð-mundsson fæddist 13. septem- ber 1932. Hann lést 9. apríl 2019. Útför Björgvins fór fram 24. apríl 2019. miklu veikindi. Afi var frábær fyrir- mynd, yndisleg persóna og góður vinur. Elsku afi, við söknum þín. Þín barnabörn, Dagur, Dröfn og Ástrós. Við systkinin kveðjum nú elsku afa Björgvin með miklum söknuði en einnig gríðarlegu þakklæti. Þakklæti fyrir alla þá hlýju og væntumþykju sem hann sýndi okkur en afi var mikill fjölskyldumaður, sem lagði mikið upp úr því að rækta samband sitt við alla í fjölskyld- unni. Hann mætti í öll kaffiboð og afmæli fyrstur gesta og í hvert skipti sem við hittum afa var án undantekninga heilsast og kvatt með kossi og faðmlagi. Afi fylgdist vel með öllu sem við tókum okkur fyrir hendur og vildi vita hvernig öllum gengi í lífinu, hvort sem um var að ræða vinnu, nám, húsnæðismál eða ferðalög. Ekkert var afa óviðkomandi og alltaf var hann tilbúinn að gefa góð ráð um hin og þessi málefni. Þegar langafa- börnin komu til skjalanna vildi hann að sjálfsögðu fylgjast vel með hvernig þau döfnuðu og spurði reglulega fregna af þeim. En það var ekki bara fjöl- skyldan sem afi fylgdist grannt með heldur fylgdist hann einnig vel með öllum þjóðmálum og þau voru að sjálfsögðu rædd hvenær sem færi gafst. Hann hafði miklar og sterkar skoðanir og lét til sín taka á samfélags- miðlum um þau málefni sem hann brann helst fyrir. Við vit- um að afi hjálpaði mörgum með skrifum sínum. Hann skrifaði greinar í blöðin, bloggaði og not- aði Facebook til þess að koma málefnum sínum á framfæri. Við vorum stolt af þessum óbilandi baráttuanda afa fyrir jöfnuði í samfélaginu og má segja að jafnaðarmennskan hafi verið hans helsta persónueinkenni. Það lýsti sér ekki aðeins í stjórnmálaskoðunum hans held- ur einnig í því hvernig hann sinnti fjölskyldunni. Hann pass- aði t.d. upp á að birta myndir af allri fjölskyldunni á Facebook- síðu sinni. Afi var mjög duglegur við að tileinka sér nýja hluti og var þannig maður að hann gekk í þau verk sem í þurfti að ganga. Okkur er það t.d. sérstaklega minnisstætt að þegar amma var orðin veik og gat ekki lengur sinnt eldamennsku og húsverk- um þá gekk afi í málin. Hann lærði að elda nokkra rétti, baka pönnukökur og sinna helstu húsverkum en það er kannski ekki svo sjálfsagt fyrir mann á áttræðisaldri sem hefur aldrei sinnt slíkum verkum áður. Það er ómetanlegt fyrir okk- ur að hafa átt afa sem var okkur öllum fyrirmynd. Hann var hug- sjónamaður sem sinnti fjöl- skyldu sinni af ást og alúð. Fyr- ir okkur var ómetanlegt að alast upp við þá ást sem ríkti milli ömmu og afa en í okkar huga eru þau órjúfanleg heild. Þegar amma veiktist fylgdumst við með afa hlúa að henni af ást og umhyggju og eftir að amma féll frá hélt hann minningu hennar á lofti. Það er okkur huggun í sorginni að hugsa til þess að nú séu þau sameinuð á ný. Steinunn, Kolbeinn og Arngrímur. Afi var einstakur maður, bar- áttumaður sem barðist fyrir jöfnum rétti manna. Málefni ör- yrkja og aldraðra voru honum efst í huga og var hann dugleg- ur að birta skrif sín í blöðum og nú á síðustu árum á Facebook- síðu sinni og það einnig á dán- ardegi sínum. Líkt og ég sjálf skrifaði í færslu minni á Facebo- ok var fráfall hans mér mikið áfall þrátt fyrir að afi hafi náð 86 ára aldri enda nokkuð heilsu- hraustur, heill í hugsun og lét sig aldrei vanta á viðburði. Við afi skáluðum saman í smá hvít- víni í tilefni útskriftar minnar sem leik- og grunnskólakennari 23. mars síðastliðinn. Ég er afar þakklát að ég fékk tækifæri til að fagna þeim áfanga með hon- um enda var hann afar stoltur af mér. Afa var virkilega annt um fólkið sitt og traustur því. Sér í lagi ömmu sem hann sá um allt fram á hennar síðustu stundu þegar hún skildi við árið 2015. Nú eru þau sameinuð á ný. Heimili afa og ömmu var okkur öllum ávallt opið enda ófáar stundir sem öll stórfjölskyldan kom saman þar sem við áttum ljúfar stundir og borðuðum kræsingar sem flæddu um borðin. Þar er möndlukakan með bleika kreminu minnisstæð- ust. Sem barn fékk ég að vera virkur þátttakandi í að bera fram kræsingar með afa og ömmu. Ýmist að leggja á borð, baka með þeim pönnukökurnar þar sem ég var traustur aðstoð- armaður í að hella deigi úr aus- unni á pönnukökupönnuna eða fara í gönguferð eða bílferð með afa út í Nóatún í Árbæ til að redda því sem vantaði til að full- komna þær kræsingar sem voru bornar á borð. Ég minnist afa með söknuði og hlýhug enda minningarnar margar og góðar. Þau skipti sem ég naut athygli afa ein þótti mér ljúfast að kveikja á geisla- disk með Vilhjálmi Vilhjálms- syni eða Ellý Vilhjálms, setjast í fangið á afa í hægindastólnum hans, eða afastól eins og ég kall- aði hann, og skoða með honum myndaalbúm. Ég er þakklát fyrir árin okk- ar þrjátíu, elsku afi, og að Daði og sonur okkar, Aron Ísak, fengu tækifæri til að kynnast þér, enda einstakur maður. Hvíldu í friði. Þangað til næst, afi minn. Þín sonardóttir, Ólöf Karla Þórisdóttir. Elsku afi. Margar minningar koma upp í hugann þegar hugsað er til baka, fjölskylduhittingar, veisl- ur, ást og umhyggja einkenndi heimili ykkar ömmu. Alltaf var okkur tekið opnum örmum og alltaf var tími til að spjalla og hafa gaman saman. Afi, það er okkur mikill miss- ir að hafa þig ekki lengur hér, en gott að vita að nú eruð þið amma sameinuð á ný. Það er ekki bara söknuður fyrir okkur í fjölskyldunni því það er mikill missir fyrir þjóðina í heild að missa mann eins og þig, það verður erfitt að finna annan eins baráttumann eins og þú varst, elsku afi, alveg fram á síðustu stundu. Afi, þú varst og ert mikil fyrirmynd. Takk fyrir allar góðu stund- irnar. Kveðja Sigurjón og Dagrún. Hver er það sem ekki þekkir nafnið Björgvin Guðmundsson? Manninn, sem hefur á undan- förnum árum látið til sína taka í skrifum í dagblöðum og netinu, um málefni eldri borgara. Aftur og aftur. Beinskeyttur og fastur fyrir. Lét aldrei deigan síga. Fyrir þá sem þekktu til Björg- vins kom barátta hans ekki á óvart. Hann var búinn að berj- ast allt frá unga aldri fyrir jafn- rétti og jafnræði. Þá baráttu hans má lesa í bókinni „Efst á baugi“, þar sem Björgvin lýsir unglingsárum sínum, baráttunni gegn fátæktinni og veikindum í fjölskyldunni, þátttöku sinni í stjórnmálunum og liðveislunni varðandi kjör aldraðra. Sjálfur man ég eftir honum þegar hann var ungur maður í vesturbænum, í borgarstjórn fyrir Alþýðuflokkinn og nú á seinni árum, þegar við höfum báðir tekið að okkur málefni og forystu í viðleitni okkar kyn- slóðar um bættan hag eldri borgara. Björgvin var fastur fyrir. En hann var drengur góður og mál- efnalegur í hvívetna. Hann setti sig vel inn í flókna stöðu aldr- aðra, gagnrýndi og skoraði á stjórnvöld um breytingar á líf- eyriskjörum, ellilífeyri og almannatryggingum. Þreyttist aldrei í þeirri baráttu. Björgvin var formaður kjaramálanefndar hjá Félagi eldri borgara um ára- bil og samskipti mín við hann voru mér til ánægju og fróð- leiks. Ég hef sjaldan umgengist og þekkt mann, sem Björgvin, sem linnti aldrei baráttu sinni allt fram á grafarbakkann. Félag eldri borgara í Reykja- vík vottar afkomendum Björg- vins og fjölskyldunni allri samúð sína og þakkir fyrir framlag hans. Megi nafn Björgvins og bar- áttumál hans lengi lifa. Ellert B. Schram. Hann var jafnaðarmaður í húð og hár – ekta sósíaldemó- krat – til hinsta dags. Vinnu- þjarkur, sem féll aldrei verk úr hendi. Það lýsir manninum vel, að í vikunni, áður en hann kvaddi, var hann að ganga frá seinustu grein sinni með raun- sæjum tillögum um hvernig eigi að rétta hlut aldraðra svo að velferðarríkið íslenska nái að rísa undir nafni. Aldursmunurinn á okkur samsvaraði tveimur mennta- skólakynslóðum, tæpum átta ár- um. Þegar ég var enn á mínum marxísku sokkabandsárum að lesa utanskóla við MR var Björgvin löngu byrjaður að láta til sín taka sem vinnuþjarkur í þjónustu jafnaðarstefnunnar. Hann var blaðamaður á Alþýðu- blaðinu meðfram námi í við- skiptafræði við háskólann, for- maður Stúdentaráðs og formaður Sambands ungra jafn- aðarmanna í framhaldi af því. Þessi atkvæðamikli ungi maður átti síðar eftir að sitja í flokks- stjórn Alþýðuflokksins á fjórða áratug. Alltaf til staðar. Alltaf til þjónustu reiðubúinn. Ég held, að Björgvin hafi orð- ið þjóðkunnur fyrir tvennt: Hann annaðist útvarpsþáttinn „Efst á baugi“ við annan mann í áratug. Þátturinn fékk mikla hlustun, enda vandað til verka við fréttaskýringar, bæði af inn- lendum og erlendum vettvangi. Síðar varð Björgvin þjóðkunnur sem leiðtogi Alþýðuflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur árið 1970, þegar hann var 38 ára, og leiddi flokkinn í borgarstjórn í tólf ár. Hann var einn af for- ingjum vinstri meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur, þar loksins tókst að hnekkja flokks- ræði Sjálfstæðisflokksins í höf- uðborginni, sem staðið hafði samfleytt frá fyrstu tíð. Björgvin lét víða að sér kveða, bæði í atvinnulífinu og á opinberum vettvangi. Hann var skamma hríð forstjóri BÚR, Bæjarútgerðar Reykjavíkur, og stóð sig vel. Þegar íhaldið komst aftur til valda var Björgvin rek- inn og útgerðin einkavædd skömmu síðar. En Björgvin nýtti vel reynslu sína af útgerð og fiskvinnslu. Hann stofnaði ásamt syni sínum útflutnings- fyrirtækið „Nýfisk“ og rak það í áratug. Reynsla Björgvins af atvinnu- lífinu var því beggja vegna borðsins: bæði sem sjálfstæður atvinnurekandi og sem við- skiptafræðingur í þjónustu rík- isins, skrifstofustjóri í viðskipta- ráðuneytinu og viðskiptafulltrúi í utanríkisráðuneytinu, þar sem hann sinnti einkum útflutningi, markaðssetningu og samninga- gerð. Árið 2013 sendi Björgvin frá sér æviminningar sínar undir heitinu „Efst á baugi“. Það er fróðleg lesning og aldarfarslýs- ing. Þar segir frá manni, sem ólst upp á kreppuárum en braust til mennta og lét síðar meir að sér kveða, ævinlega minnugur uppruna síns, bar- áttumaður undir merkjum raun- særrar jafnaðarstefnu. Björgvin kvæntist ungur æskuástinni sinni, Dagrúnu Þor- valdsdóttur, og eignuðust þau sex syni, og er af þeim kominn mikill ættbogi. Fyrir hönd okkar jafnaðarmanna flyt ég þeim öll- um samhygðarkveðjur. Jón Baldvin Hannibalsson, fv. formaður Alþýðuflokksins. Þau kveðja nú óðum – karlar og konur sem ég hef átt samleið með alla mína starfsævi. Sig- urður E. Guðmundsson, fv. borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, í upphafi ársins. Björgvin Guð- mundsson, fv. borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, núna. Þeir voru miklir vinir, miklir sam- herjar og mikils metnir. Gegndu forystustörfum, ekki bara á stjórnmálavettvangi þar sem þeir kornungir hófu sín stjórn- málaafskipti sem formenn Sam- bands ungra jafnaðarmanna hvor á fætur öðrum, heldur einnig í forystustörfum á öðrum vettvangi. Sigurður sem for- stjóri Húsnæðismálastofnunar ríkisins og Björgvin sem skrif- stofustjóri í viðskiptaráðuneyt- inu, forstjóri BÚR, fram- kvæmdastjóri fiskútflutningsfyrirtækis, skrif- stofustjóri í utanríkisráðuneyt- inu og viðskiptafulltrúi sendi- ráðs. Því koma þeir báðir mér í huga nú, því báðir voru þeir svo nánir samherjar og samstarfs- menn mínir alla mína starfsævi; gáfu góð ráð, sýndu skilning og samhygð þó ekki værum við ávallt sammála og veittu sinn stuðning óhikað þar sem þess þurfti við. Björgvin var þegar ég kynnt- ist honum fyrst ungur maður á uppleið í stjórnmálum. Sat þá í öðru sæti á framboðslista flokksins til borgarstjórnarkosn- inga, næstur á eftir vini mínum Óskari Hallgrímssyni. Björgvin er mér minnistæður sem mik- ilhæfur talsmaður ungu kynslóð- arinnar í Alþýðuflokknum þó á þeim tíma væri hann fjölskyldu- faðir sex barna og sjálfur því kominn í röð hinna fullorðnu. Síðan tók Björgvin við foryst- unni í borgarmálunum af Ósk- ari, varð m.a. formaður borg- arráðs og leysti öll verk sín þar vel af hendi. Þó vettvangur hans væri borgarmálin lét hann sig landsmálin ekkert síður varða og hafði sem slíkur mikil áhrif á mig og aðra upprennandi for- ystumenn í flokknum. Þó hann hyrfi svo til annarra ábyrgðar- starfa eftir langa setu í borg- arstjórn hafði hann áfram af- skipti af landsmálunum og lét þar til sín taka sem honum þótti rétt og nauðsynlegt að gera. Björgvin Guðmundsson var fæddur baráttumaður, undi sér best í baráttu fyrir því, sem honum þótti satt og rétt og lét þá engan bilbug á sér finna. Baráttugleðinni og baráttuþrek- inu hélt hann allt til hinna síð- ustu lífdaga. Barðist þá fyrir réttindum aldraðs fólks og þá fyrst og fremst þeirra í hópi aldraðra sem við lökust kjör er gert að búa. Hverja greinina sendi hann frá sér á fætur ann- arri um þessi baráttumál sín og ræddi þau oft og ítarlega á fundum og í samfundum sínum með öðrum. Aldraðir borgarar á okkar landi hafa aldrei átt sér jafn ötulan og öflugan talsmann og Björgvin Guðmundsson og munu líklega seint eiga. Nú er hann kvaddur af stórum vina- hópi – af þeim sem honum unnu með á starfsævinni sem og öll- um þeim sem honum urðu hon- um samferða í baráttu hans fyr- ir hagsmunum aldraða fólksins eftir að starfsævinni lauk og til síðasta dags. Björgvin var hamingjumaður, átti sér góða eiginkonu og stór- an hóp barna og annarra afkom- enda. Óhamingja eða erfiðleikar í einkalífi voru því ekki upp- spretta baráttuþreksins heldur hugsjónir, umhyggja, velvild og virðing. Lífshamingja hans varð honum hvatning í baráttunni en ekki til latningar. Með honum er ekki bara góður maður genginn, heldur baráttumaður sem vildi berjast fyrir kjörum annarra – þeirra sem verr voru settir en hann sjálfur. Slíkan baráttu- mann kveðjum við nú, vinir hans og samherjar. Sighvatur Björgvinsson, fv. form. Alþýðuflokksins. Ástkær frænka okkar, JENSÍNA ANDRÉSDÓTTIR frá Þórisstöðum, Þorskafirði, andaðist á heimili sínu á Hrafnistu í Reykjavík fimmtudaginn 18. apríl. Útförin fer fram föstudaginn 3. maí klukkan 13 frá Árbæjarkirkju. Fyrir hönd aðstandenda, Lydía Edda Thejll Sigurður Haraldsson Ingi Bergþór Jónasarson Sigurdís Haraldsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGUNN HLÍN BJÖRGVINSDÓTTIR, Safamýri 46, Reykjavík, lést fimmtudaginn 18. apríl á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 30. apríl klukkan 13. Björgvin S. Friðriksson Adda Björk Jónsdóttir Friðrik M. Friðriksson Gunnrún Gunnarsdóttir Guðný Hlín Friðriksdóttir Karl Ómar Guðbjörnsson Friðgerður M. Friðriksdóttir Ófeigur Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.