Morgunblaðið - 25.04.2019, Blaðsíða 52
52 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. APRÍL 2019
Framleiðum allar gerðir
límmiða af mismunandi
stærðum og gerðum
Thermal
Hvítir miðar
Litamiðar
Forprentaðir
Athyglismiðar
Tilboðsmiðar
Vogamiðar
Lyfsölumiðar
Varúðarmiðar
Endurskinsmiðar
Flöskumiðar
Verðmer
Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is
kimiðar
Límmiðar
Mjólkurbikar karla
Bikarkeppni KSÍ, 2. umferð:
Völsungur – Tindastóll............................. 3:1
Völsungur leikur við Mídas í 3. umferð.
England
Manch. Utd. – Manch. City ..................... 0:2
Wolves – Arsenal...................................... 3:1
Staðan:
Manch. City 35 29 2 4 89:22 89
Liverpool 35 27 7 1 79:20 88
Tottenham 35 23 1 11 65:35 70
Chelsea 35 20 7 8 59:38 67
Arsenal 35 20 6 9 69:46 66
Manch.Utd 35 19 7 9 63:50 64
Wolves 35 14 9 12 44:43 51
Watford 35 14 8 13 50:50 50
Everton 35 14 7 14 50:44 49
Leicester 35 14 6 15 48:47 48
West Ham 35 12 7 16 44:54 43
Cr. Palace 35 12 6 17 43:48 42
Newcastle 35 11 8 16 35:44 41
Bournemouth 35 12 5 18 49:62 41
Burnley 35 11 7 17 44:62 40
Southampton 35 9 10 16 41:58 37
Brighton 35 9 7 19 32:54 34
Cardiff 35 9 4 22 30:65 31
Fulham 35 6 5 24 33:76 23
Huddersfield 35 3 5 27 20:69 14
Rússland
Rostov – Lokomotiv Moskva .................. 1:2
Ragnar Sigurðsson lék allan leikinn með
Rostov og Björn Bergmann Sigurðarson
kom inn á á 82. mínútu.
CSKA Moskva – Anzi .............................. 2:0
Arnór Sigurðsson lék í 69 mínútur með
CSKA og skoraði seinna markið. Hörður
Björgvin Magnússon lék allan leikinn.
Akhmat Grosní – Krasnodar.................. 1:1
Jón Guðni Fjóluson sat á varamanna-
bekk Krasnodar allan tímann.
Svíþjóð
Malmö – Hammarby................................ 4:1
Arnór Ingvi Traustason skoraði fyrsta
mark Malmö og lék í 76 mínútur.
Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn
með Hammarby.
AIK – Häcken........................................... 1:0
Kolbeinn Sigþórsson var ekki í leik-
mannahópi AIK.
Þýskaland
Bikarkeppnin, undanúrslit:
Werder Bremen – Bayern München ..... 2:3
Aron Jóhannsson var ekki í leikmanna-
hópi Bremen.
KNATTSPYRNA
HANDKNATTLEIKUR
Annar úrslitaleikur kvenna:
Framhús: Fram – Valur (0:1) ................... 16
KNATTSPYRNA
Meistarakeppni kvenna:
Kórinn: Breiðablik – Þór/KA ................... 16
Í KVÖLD!
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Manchester City hefur á síðustu
dögum tekið stórt skref í átt að því
að vinna Englandsmeistaratitilinn
annað árið í röð, með því að vinna
Tottenham um helgina og Man-
chester United 2:0 í gærkvöld. Liv-
erpool fékk því enga aðstoð frá
erkifjendum sínum í baráttunni
hörðu við City sem hefur nú eins
stigs forskot þegar bæði lið eiga
þrjá leiki eftir.
Dagskrá City er nú orðin nokkuð
þægileg, ef svo má segja. City á
eftir útileik við Burnley (15. sæti),
heimaleik við Leicester (9. sæti) og
útileik við Brighton (17. sæti).
Vinni liðið þessa leiki er titillinn í
höfn og liðið getur unnið þrennuna
á Englandi því það mætir svo Wat-
ford í úrslitaleik enska bikarsins og
hefur þegar unnið deildabikarinn.
Þrátt fyrir að eiga í harðri bar-
áttu um Meistaradeildarsæti mátti
United sín lítils í gær. Liðið er þó
áfram tveimur stigum á eftir Ars-
enal sem tapaði 3:1 fyrir Watford
og gaf Chelsea eftir 4. sæti. United
og Chelsea mætast á sunnudag en
þá sækir Arsenal lið Leicester
heim.
Þrír ljónsungar í veginum
Manchester City með pálmann í höndunum Enn hörð barátta um 4. sæti
AFP
Frábærir Leikmenn Manchester City fagna marki Leroy Sané en þeir Bernardo Silva skoruðu mörkin í gær.
Handknattleiksdeild HK tilkynnti í
gær að félagið hefði dregið til baka
kæru sína vegna úrskurðar móta-
nefndar HSÍ um að dæma Þrótti
sigur í fyrsta umspilsleik liðanna
um sæti í úrvalsdeild karla. Í yfir-
lýsingunni segir að of langan tíma
taki að leiða kærumál til lykta og
slíkt gæti raskað umspilskeppninni
verulega. HK hvatti um leið HSÍ til
að skoða hvort hægt sé að bæta
verklag keppnisleyfa og leikheim-
ilda. Oddaleikur Þróttar og HK um
sæti í úrslitum umspilsins fer fram í
Laugardalshöllinni annað kvöld.
Oddaleikurinn
annað kvöld
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umspil Þróttur tekur á móti HK
annað kvöld en staðan er 1:1.
Knattspyrnumaðurinn Arnar
Sveinn Geirsson mun ganga í raðir
Breiðabliks frá Val og þá er sá
möguleiki fyrir hendi að Breiðablik
endurheimti Höskuld Gunn-
laugsson úr atvinnumennsku. Jo-
nathan Hendricx gæti hins vegar
yfirgefið Breiðablik í sumar. Frá
þessu var greint á netmiðlinum
433.is í gær en þar staðfesti Ágúst
Gylfason þjálfari Breiðabliks að fé-
lagið hafi nælt í Arnar. Haft er eftir
Ágústi að „líklegt“ sé að Höskuldur
væri að koma heim frá Hammarby í
Svíþjóð. kris@mbl.is
Arnar Sveinn fer
til Breiðabliks
Morgunblaðið/Eggert
Kópavogur Arnar Sveinn Geirsson
er á leiðinni frá Val í Breiðablik.
HK jafnaði í gærkvöld metin við
Fylki í úrslitaeinvígi liðanna um
sæti í úrvalsdeild kvenna í hand-
knattleik á næsta keppnistímabili
með því að vinna stórsigur í öðrum
leik liðanna í Fylkishöllinni, 31:20.
Fylkir hafði unnið nokkuð óvænt-
an sigur í fyrsta leiknum í Digra-
nesi, 24:22, en nú er staðan jöfn í
einvíginu, 1:1. Þrjá sigra þarf til að
vinna sér sæti í úrvalsdeildinni en
þar endaði HK í 7. og næstsíðasta
sæti í vetur. Fylkir komst hins veg-
ar í umspil úr 1. deildinni. Staðan í
hálfleik var 13:10, HK í hag, en
Kópavogsstúlkurnar stungu af í síð-
ari hálfleiknum.
Sigríður Hauksdóttir og Val-
gerður Ýr Þorsteinsdóttir skoruðu
6 mörk hvor fyrir HK og Elva Ar-
inbjarnar 4.
Hrafnhildur Irma Jónsdóttir var
langatkvæðamest í liði Fylkis með 8
mörk.
Þriðji leikur liðanna fer fram í
Digranesi á laugardaginn. vs@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Árbærinn Berglind Björnsdóttir reynir skot að marki HK.
HK jafnaði metin
með stórsigri