Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 1
Mættur til að fástjörn
Enn í
fullu fjöri
28.APRÍL 2019SUNNUDAGUR
Stór-
fmæli
lien
Raggi Bjarnaverður 85ára á árinuog er enn aðsyngja fyrirfullu húsi.Hann segistaldrei fáleiða á aðstanda ásviði. 2
a
A
Lykilatriðiað opna sig
Arnar Ingi Njarðarsongreindist með þung-lyndi og félagsfælnifyrir tveimur árum 10
Alien hóf hrollvekjuog vísindaskáldskap tilvegs og virðingar 28
L A U G A R D A G U R 2 7. A P R Í L 2 0 1 9
Stofnað 1913 98. tölublað 107. árgangur
UNGA FÓLKIÐ Í
FÁTÆKRA-
HVERFUNUM EKKI LENGUR DRAUMUR
BORGARFLUGSAMGÖNGUFLYGILDI 16SÝNING SPESSA 50
Þrýstir upp verðinu
» Þorvaldur Gissurarson segir
þá kröfu borgarinnar að versl-
unarrými sé á jarðhæð auka
kostnað við nýjar íbúðir.
» Jafnvel þótt eftirspurn eftir
slíkum rýmum sé nær engin.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG
Verks, eins stærsta verktakafyrir-
tækis landsins, segir byggingar-
kostnað hafa hækkað mikið að
undanförnu vegna launaskriðs og
gengislækkunar. Sú þróun muni,
ásamt sölutregðu á ýmsum markaðs-
svæðum, birtast í minna framboði.
„Ég held að það sé komið ákveðið
offramboð inn á markaðinn af íbúð-
um á miðbæjarsvæðinu,“ segir hann
og bendir á að íbúðirnar séu ólíkar.
Félagið Blómaþing byggði 66
íbúðir á Frakkastígsreitnum.
Þorsteinn Pálsson, framkvæmda-
stjóri Blómaþings, segir óvissu
vegna kjarasamninga og WOW air
hafa haft áhrif á íbúðamarkaðinn.
Nú séu þessir þættir að baki en búið
að framlengja óvissuna með loforð-
um um aðgerðir í húsnæðis-, lána- og
skattamálum vegna kjarasamninga.
Brýnt sé að eyða þeirri óvissu.
„Ég tel að íbúðamarkaðurinn í
miðborginni sé ekki yfirkeyrður. Það
er náttúrlega offramboð í augnablik-
inu og salan mun taka eitthvað lengri
tíma en áætlað var.“
Offramboð í miðborginni
Forstjóri ÞG Verks segir of margar nýjar íbúðir í sölu Kostnaður að aukast
Húsbyggjandi segir loforð í húsnæðismálum vegna kjarasamninga skapa óvissu
MOf margar íbúðir … »10
Morgunblaðið/RAX
Opinskár Arnar Ingi Njarðarson er
í einlægu viðtali í helgarútgáfunni.
Arnar Ingi Njarðarson greindist
með þunglyndi og félagsfælni sum-
arið 2017 og þurfti að leggjast inn á
geðdeild í ágúst 2017. Á sama tíma
var hann að útskrifast úr fram-
haldsskóla, æfði handbolta af kappi
og hafði landað nýrri vinnu. Arnar
segir frá baráttu sinni við sjúkdóm-
inn af kjarki og þori í einlægu við-
tali í sunnudagsútgáfu Morgun-
blaðsins.
„Þetta byrjaði þegar lokaprófin í
framhaldsskóla voru að skella á.
Viku fyrir próf var bekkurinn kall-
aður í myndatöku. Ég sat í mínu
sæti og byrjaði að skjálfa og fann
að ég var að upplifa eitthvað sem
ég hafði aldrei upplifað áður.
Skyndilega fann ég fyrir miklum
kvíða og fékk það á tilfinninguna að
ég myndi aldrei komast í gegnum
þessi lokapróf,“ sagði Arnar.
Hann hefur nú unnið bug á veik-
indunum en þegar hann lítur yfir
farinn veg telur hann að mikilvæg-
ast sé að segja frá, enda séu andleg
veikindi „tabú“ hjá strákum. „Þetta
er bara eins og að meiðast; togna
aftan á læri eða vera frá í ein-
hverjum íþróttum. Munurinn er
bara sá að þetta snýst ekki um
líkamlega heilsu,“ sagði Arnar.
Veikindi „tabú“ hjá strákum
Arnar þurfti að leggjast inn á geðdeild í ágúst 2017
Samkomulag hefur náðst um
fjármögnun lagningar rafstrengs
upp á Kjöl og að tengja þannig
ferðaþjónustu og neyðarþjónustu
sem notað hafa dísilrafstöðvar við
veitu Rarik. Þá verður hægt að
koma upp hleðslustöðvum og gera
Kjalveg færan fyrir rafbíla. Kostn-
aður er áætlaður um 300 milljónir
kr. og hefur ríkið heitið að leggja
verkefninu til um 100 milljónir
króna á næstu tveimur árum.
Strengurinn verður plægður í jörð
meðfram Kjalvegi í sumar. „Þetta
samrýmist í fyrsta lagi okkar
stefnu um orkuskipti í samgöngum,
en líka að byggja upp sjálfbæra
ferðaþjónustu,“ sagði Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra
þegar verkefnið var kynnt. »6
Ríkið styður jarð-
streng upp á Kjöl
Verulega gæti dregið úr þeim já-
kvæðu áhrifum sem Höfðaborgar-
sáttmálanum er ætlað að hafa fari
svo að íslenskir dómstólar dæmi
Isavia í vil í málaferlum þess við
bandaríska flugvélaleigufyrirtækið
Air Lease Corporation (ALC) um
greiðslu þess á skuldum WOW air
við Keflavíkurflugvöll. Áhöld eru
um það hvort óundirritað sam-
komulag á milli Isavia og WOW air,
sem Isavia segir vera einhliða yfir-
lýsingu WOW air, um greiðslu flug-
félagsins á skuldum þess til Isavia,
eins og greint var frá í frétt
Morgunblaðsins hinn 18. apríl, sé í
takt við markmið sáttmálans sem
miðar að því að tryggja skjótvirk
fullnustuúrræði fyrir kröfuhafa í
tengslum við loftför sem gerir það
að verkum að þeir geta boðið hag-
stæðari leigu- og fjármögnunarkjör.
Í umsögn Isavia dagsettri hinn 14.
janúar síðastliðinn og mælt var fyr-
ir á Alþingi um innleiðingu Íslands
á Höfðaborgarsáttmálanum fagnar
Isavia því að frumvarpið sé komið
fram og telur það vera til hagsbóta
fyrir flugrekendur sem geta nýtt
sér ákvæði samningsins til þess að
ná hagkvæmari samningum um
kaup eða leigu loftfara. »20
Dregið gæti verulega
úr áhrifum sáttmála
Oddfellowreglan á Íslandi fagn-
aði 200 ára afmæli í gær. Af því til-
efni veitti reglan samtals 59 millj-
ónir króna til styrktar þremur
verkefnum félaga og samtaka sem
sinna mannúðar- og mannræktar-
málum. Þetta var tilkynnt í af-
mælishófi Oddfellowa í Reykjavík.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís-
lands, og Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri voru viðstaddir hófið.
Í afmælishófinu var sömuleiðis
undirritaður samningur Reykjavík-
urborgar og Oddfellowreglunnar
um minningarreit í Laugarnesi í
Reykjavík þar sem Holdsveikra-
spítalinn stóð. Spítalinn var gjöf
danskra Oddfellowa til íslensku
þjóðarinnar árið 1898. »22
Gjöf Sigþrúður Guðmundsdóttir og Eygló
Harðardóttir tóku við gjöf Oddfellowregl-
unnar fyrir hönd Kvennaathvarfsins. Til
vinstri er Steindór Gunnlaugsson, til hægri
er Guðmundur Eiríksson, stórsír reglunnar.
Veittu veglega styrki
á stórafmælinu
Ingvar Ómarsson úr Breiðabliki og Karen Axels-
dóttir úr Tindi komu fyrst í mark í Morgunblaðs-
hringnum, fyrstu fjallahjólakeppni (XC) ársins,
sem fór fram í gærkvöldi.
Um er að ræða fyrstu af fjórum bikarkeppnum
ársins í fjallahjólreiðum, en hjólað er við höfuð-
stöðvar Morgunblaðsins í Hádegismóum.
Í öðru sæti í karlaflokki varð Hafsteinn Ægir
Geirsson og Bjarki Bjarnason í því þriðja.
Í kvennaflokki hafnaði Kristín Edda Sveins-
dóttir í öðru sæti og Kolbrún Dröfn Ragnars-
dóttir í því þriðja.
Morgunblaðið/Eggert
Karen og Ingvar
fyrst í mark í
Morgunblaðshringnum