Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 2

Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hefur þú prófað nýju kjúklingasteikurnar? NÝTT OG SPENNANDI FRÁ HOLT A Vigdís Finnbogadóttir var viðstödd þegar lyng- rósin Vigdís var afhent Grasagarði Reykjavíkur í gær. Rósin er nefnd eftir forsetanum fyrrver- andi og var ræktuð í Noregi. Hún fannst fyrir til- viljun í Bremen í Þýskalandi í fyrra og kom hing- að fyrir milligöngu Garðyrkjufélags Íslands. Morgunblaðið/RAX Lyngrósin Vigdís komin í Grasagarðinn Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Birgir Ármannsson, formaður þing- flokks Sjálfstæðisflokksins, telur málþóf vera mikilvægt vopn stjórnarandstöðunnar til að geta spyrnt við fótum í ákveðnum aðstæð- um. Hann segir hins vegar eðlilegt þegar þingsköp verði skoðuð að reynt verði að gera breytingar á reglum um málþóf á Alþingi. Oddný G. Harðardóttir, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, telur eðlilegt að stjórn og stjórnar- andstaða komi sér saman um þann tíma sem hverju máli sé ætlaður í þingsal en segir einnig að málþófs- vopnið sé afar mikilvægt fyrir stjórnarandstöðuna. Ummæli þeirra koma í kjölfar þess að Helgi Bernódusson, skrif- stofustjóri Alþingis, sagði í ræðu á Hátíð Jóns Sigurðssonar í vikunni að banna þyrfti mál- þóf á Alþingi. „Einn draugur fer þó um þinghúsið og ygglir sig í þing- salnum og er mikil nauðsyn að kveðinn verði niður, rotaður í einu höggi, en það er málþóf,“ sagði Helgi í Jónshúsi í Kaup- mannahöfn á fimmtudaginn. Síðustu breytingar skiluðu sáralitlum árangri „Þetta hefur verið til umræðu með nokkuð reglulegu millibili þegar breytingar hafa verið gerðar á þing- sköpum. Árið 2007 voru gerðar ákveðnar breytingar á ræðutíma sem áttu meðal annars að stemma stigu við allavega óhóflega löngum ræðum en í staðinn fengu menn und- ir ákveðnum kringumstæðum tæki- færi til þess að koma endalaust upp í ræðustól,“ segir Birgir í samtali við Morgunblaðið. „Reynslan af því hef- ur verið sú að þetta hefur orðið til þess að auka málþóf frekar en minnka það. Ég held að við hljótum að skoða alla möguleika í þessu sam- bandi. Það er auðvitað mikilvægt að stjórnarandstaðan hafi einhverja möguleika á að spyrna við fótum undir einhverjum kringumstæðum. Það er hins vegar þannig að málþófs- vopninu sem slíku hefur ver- ið beitt óhóflega á undan- förnum árum og þess vegna gefur það okkur tilefni til að fara í einhvers konar breyt- ingar. Það hefur ekki orðið til þess að bæta umræður eða auka vandvirkni í störf- um þingsins.“ Þyrftu að sammælast um ræðutíma Oddný G. Harðardóttir, þing- flokksformaður Samfylkingarinnar, segir að í dag sé málþóf eina leið stjórnarandstöðunnar til þess að stíga fast niður fæti ef það eru mál sem stjórnarandstaðan vill ekki að fari í gegnum þingið. „Skoða þarf lögin um þingsköp með það í huga að stjórn og stjórnar- andstaða reyni að koma sér saman um þann tíma sem hverju máli er ætlaður í þingsal, svipað og er gert annars staðar á Norðurlöndunum. Stjórnarandstaðan kæmi þá að samningum um þann tíma sem málin tækju í þinginu. Eftir það er búið að reyna að ná fram málamiðlun og það gengur ekki. Aðalatriðið er að breyta þá þingskaparlögum þannig að staða þingsins sé sterk gagnvart fram- kvæmdavaldinu og ekki sé gengið á rétt stjórnarandstöðunnar,“ segir Oddný. Willum Þór Þórsson, þingflokks- formaður Framsóknar, tekur undir orð Helga Bernódussonar. Hann segir að það sé aldrei góður bragur á því þegar málþófi sé beitt. „Þetta er nú oftast, í það minnsta þann tíma sem ég hef verið, lokaúrræði. Þetta gefur þinginu heldur ekki góða ásýnd. Það verður þá á móti að vera einhver lausn á því fyrir stjórnar- andstöðu að geta beitt sér.“ Vandasamt að slíðra málþófsvopnið  Þingflokksformenn telja þörf á að breyta reglum um málþóf  Engu að síður erfitt að banna málþóf  Eina leið stjórnarandstöðunnar til að stíga fast niður fæti, segir þingflokksformaður Samfylkingarinnar Oddný G. Harðardóttir Willum Þór Þórsson Birgir Ármannsson „Uppleggið hjá okkur er að reyna til þrautar og sjá hversu langt við komumst. Ef við teljum það ekki duga munum við þurfa að fara í at- kvæðagreiðslur um verkföll,“ sagði Kristján Þórður Snæ- bjarnarson, formaður Rafiðnaðar- sambands Íslands og talsmaður samflots iðnaðarmanna í kjara- viðræðum við Samtök atvinnulífsins, í gærkvöldi þegar fundahöldum dagsins var að ljúka. Hann tók það fram að reynt yrði að klára samn- inga áður en til verkfalla kæmi. Fundur í kjaradeilunni hófst klukkan 10 í gærmorgun í húsa- kynnum Ríkissáttasemjara og stóð fram á kvöld. Búið er að skipuleggja áframhaldandi fundahöld um helgina, ef þörf krefur, að sögn Kristjáns. hjorturjg@mbl.is Reynt til þrautar í Karphúsi Kristján Þórður Snæbjarnarson  Iðnaðarmenn funda um helgina Björgunarsveitin Kyndill á Kirkju- bæjarklaustri fékk afhenta þarfa gjöf í gær, þrjár loftdýnur, svokall- aðar grjónadýnur, sem eru hann- aðar til þess að flytja slasað fólk. Það var Minningarsjóður Jennýjar Lilju sem lést af slysförum árið 2015, einungis þriggja ára gömul, sem styrkti björgunarsveitina með þessari gjöf. Tilefnið var ákall frá björgunar- sveitarmanni í frétt á mbl.is eftir bílslysið hörmulega við Núpsvötn 27. desember síðastliðinn. „Við bara sáum þessa frétt og okkur fannst tilvalið að setja okkur í sam- band við sveitina,“ segir Gunnar L. Gunnarsson, faðir Jennýjar Lilju. Á myndinni er fjölskyldan ásamt Ing- ólfi Hartvigssyni, frá björgunar- sveitinni Kyndli. Gáfu björgunarsveitinni grjóna- dýnur til að flytja slasað fólk

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.