Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 4

Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 Njóttu þess að hlakka til Cabo Verde með VITA Flogið með Icelandair 8nætur, 4.–13. nóvember Verð frá246.100 kr. á mann m.v. 2 í tvíbýli – allt innifalið! Club Hotel Riu Funana Snorri Másson snorrim@mbl.is Það sem af er þessu ári hefur verið skrifað undir kjarasamninga á al- mennum markaði fyrir um 76.000 manns. Það er rúmur þriðjungur af gervöllum íslenskum vinnumarkaði, sem telur 202.500 manns. Um mán- aðamótin losnuðu 152 kjarasamn- ingar ríkis, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar og fleiri opinberra aðila við stéttarfélög opinberra starfsmanna. Fundir eru þegar hafnir á milli þessara aðila og Bandalags háskólamanna og BSRB. Og í næstu viku færist þungi í við- ræðurnar. Vonast er til þess að sam- ið verði í byrjun júní. Langflestir samningar BSRB losnuðu nú í mars. BSRB eru stærstu samtök opinberra starfs- manna á Íslandi og aðildarfélögin sem heyra undir þau 25. Félags- mennirnir samtals eru þannig 21.000. Um er að ræða allt frá Fé- lagi starfsmanna stjórnarráðsins og Félagi íslenskra flugumferðarstjóra til Landssambands lögreglumanna og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Undir Bandalagi háskólamanna (BHM) eru svo um 10.000 með lausa samn- inga og þar eru aðildarfélög á borð við Félag prófessora við ríkishá- skóla og Stéttarfélag lögfræðinga. Stytting vinnuvikunnar Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formað- ur BSRB, segir viðsemjendur sína hingað til hafa fylgst grannt með framvindu mála í kjarasamnings- gerð á almennum markaði en þar sem þeir séu í höfn geri hún ráð fyr- ir að í næstu viku færist þungi í við- ræðurnar á hinum opinbera. Við- ræðum aðildarfélaga BSRB við ríkið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg hefur ekki verið vísað til sáttasemj- ara. Sonja segir of snemmt að segja til um hvort deilunni verði vísað til sáttasemjara. „Það hefur ríkt já- kvæður tónn yfir viðræðunum,“ seg- ir Sonja. „Ýmsar tillögur og áherslur kröfuaðila hafa verið lagð- ar fram. Við leggjum áherslu á að þetta eru sameiginlegir hagsmunir þegar upp er staðið.“ Í grunninn segir Sonja að megin- áherslan í þessari kjarasamnings- gerð hjá BSRB sé að fólk geti lifað af launum sínum annars vegar og að vinnuvikan verði stytt hins vegar. Lífskjarasamningarnir hafi gefið gott fordæmi að því leyti að þeir færi þeim sem minnst hafi á milli handanna nokkurn stuðning. Sömu- leiðis hafi verið samið um ákvæði þar sem lúta að styttingu vinnuvik- unnar en að í tilfelli BSRB muni sá þáttur krefjast annarrar nálgunar, því stór hluti af félagsmönnum er í vaktavinnu, sem kann að krefjast þess að fleiri starfsmenn verði ráðn- ir ef vinnuvikan er stytt. Sumar stéttir í vaktavinnu „Það má gera ráð fyrir að þungi færist í viðræðurnar næstu daga,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM. Hún á bókaða fundi í vikunni með ríkinu. „Það sem er rauður þráður í gegnum alla kröfugerðina er að há- skólamenntun sé metin til launa. Svo eru kröfur sem varða réttindi, eins og um styttingu vinnuvik- unnar,“ nefnir Þórunn spurð um megináherslur aðildarfélaga BHM. Háskólamenntun valdi þyngri byrði afborgana námslána og meðal krafna BHM í þessu samhengi er að ríkisstjórnin komi til móts við kröfur BHM um breyttar afborganir náms- lána. Þórunn segir þá að aðstæður ólíkra stétta innan bandalagsins til styttingar vinnuvikunnar séu mis- munandi. Sumar stéttir vinna vakta- vinnu. „Mikilvægast er, ef sam- komulag næst um styttingu vinnuvikunnar, að það eigi við alla,“ segir Þórunn. Þungi færist í viðræðurnar  Langflestir ríkisstarfsmenn eru kjarasamningslausir  Í næstu viku verður fundað af krafti  Kröfurnar taka mið af lífskjarasamningnum  Stytting vinnuvikunnar krafa  Menntun metin til launa Morgunblaðið/Ásdís Lögreglumenn Landssamband lögreglumanna er á meðal aðildarfélaga BSRB. Í vikunni hefjast viðræður BSRB við ríkið af fullum þunga. Skoðun á gögnum í tölvupósthólfi Más Guðmundssonar, seðlabanka- stjóra og fyrrverandi aðstoðar- bankastjóra bankans á bilinu 1. janúar til 31. mars 2012, hefur ekki leitt neitt í ljós sem styður við að Ríkis- útvarpinu hafi verið veittar trúnaðarupplýs- ingar um fyrir- hugaða húsleit hjá Samherja og að seðlabanka- stjóri eða aðstoðarseðlabankastjóri hafi haft um það vitneskju, hvað þá heimilað. Kemur þetta fram í svari Seðlabanka Íslands til Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra. Meint upplýsingagjöf starfs- manna Seðlabankans til Ríkisút- varpsins varðandi húsleitina hjá Samherja var meðal þriggja atriða sem forsætisráðherra óskaði sér- staklega eftir nánari upplýsingum um í kjölfar greinargerðar sem hún óskaði eftir frá bankaráðinu um málefni Samherja. Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþing- is, beindi því sérstaklega til for- sætisráðherra að ástæða væri til að óska eftir nánari upplýsingum frá bankanum um meinta upplýsinga- gjöf til fréttastofu RÚV í aðdrag- anda húsleitarinnar. Forsætisráðherra óskaði eftir þessum upplýsingum 15. mars sl. og fékk svar Seðlabankans 12. apríl. Til athugunar í ráðuneytinu Bréfaskiptin hafa nú verið gerð opinber á vef stjórnarráðsins en þó hafa nöfn lögaðila og einstaklinga verið afmáð og hluti efnis þess. Fram kemur að forsætisráðu- neytið mun á næstu vikum leggja endanlegt mat á efnisatriði málsins og það hvort tilefni sé til frekari gagnaöflunar eða viðbragða á grundvelli athugunar ráðuneytisins. Finna ekki gögn um lekann til RÚV  Tölvupóstur seðlabankastjóra skoðaður Már Guðmundsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Við sjáum að þrátt fyrir þetta er ánægja gesta okkar mjög mikil með ferðalög hingað til lands. Við mæl- umst mjög hátt í könnunum sem gerðar eru þegar ferðamenn yfir- gefa landið. Gest- ir virðast vera ánægðir með gæði þjónust- unnar,“ segir Jó- hannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, um samkeppnishæfni ferðaþjónust- unnar. Ferðamenn sem koma til Íslands greiða tæplega tvöfalt hærra verð fyrir vörur og þjónustu en að meðal- tali innan Evrópusambandsins. Ís- land er um þessar mundir dýrasta land Evrópu og að öllum líkindum einn dýrasti áfangastaður heims. Þetta mun koma fram í skýrslu Ís- landsbanka um ferðaþjónustu á Ís- landi sem kynnt verður í næstu viku, að því er fram kemur í tilkynn- ingu frá bankanum. Fram kemur að verðlag á Íslandi er um 84% hærra en að meðaltali í aðildarríkjum Evrópusambandsins árið 2017. Verðlag á algengum vörum og þjónustu sem ferðamenn nota hafi hækkað langt umfram verðlag í Evrópu undanfarinn ára- tug og er nefnt sérstaklega að verð áfengra drykkja sé hátt í þrefalt hærra en að meðaltali í Evrópusam- bandinu. Kostnaður aukist mikið Þessar upplýsingar koma Jóhann- esi Þór Skúlasyni ekki á óvart. Hann bendir á að hann hafi nefnt það í fjölmörgum viðtölum að Ísland væri orðið ósamkeppnishæft í verði og væri að verða eitt dýrasta ferða- mannaland heims. „Það má svo líta á þetta frá ýmsum hliðum. Það er ekkert keppikefli að vera sérstak- lega ódýr. Best er að saman fari verð og gæði þjónustu, eins og al- mennt í viðskiptum með vöru og þjónustu,“ segir Jóhannes. Spurður um ástæður þessarar stöðu segir Jóhannes að það sé sam- bland aukins kostnaðar hjá fyrir- tækjunum og lækkandi tekna vegna sterks gengis íslensku krónunnar. „Frá árinu 2010 hefur kostnaður aukist gífurlega hjá öllum fyrir- tækjum. Þannig hefur vísitala neysluverðs hækkað um rúm 25% og byggingarvísitala um 37% og vísitala launa um 75%. Hækkun kostnaðar gerir það að verkum að fyrirtækin hafa þurft að hækka verð þjónustunnar eða ekki getað lækkað verðið til að mæta gengisþróun. […] Lækkandi tekjur og aukinn kostn- aður gerir þeim erfitt fyrir við að halda aftur af verðhækkunum.“ Kjarasamningar bætast við Jóhannes Þór segir að Íslend- ingar þurfi að bæta sig að þessu leyti. „Hvort sem við erum að tala um fyrirtæki eða land þurfum við að vera samkeppnishæf í gæðum og fagmennsku. Við erum fókuseruð í því. Ferðaþjónustufyrirtækin átta sig vel á stöðunni,“ segir hann. Framtíðin er ekkert sérstaklega björt í þessu tilliti. Jóhannes nefnir að laun muni hækka um 8-10% að meðaltali á ári vegna kjarasamninga og komi það ofan á þann mikla kostnað sem fyrir er. Þá sér hann ekki fyrir sér að gengisþróun á næstunni verði hagstæð fyrir út- flutningsgreinar, þótt erfitt sé að fullyrða um það. Spurður um mögulegar aðgerðir segir Jóhannes að skoða mætti álög- ur ríkisins á ferðaþjónustuna og áhrif lagasetningar á rekstrar- umhverfi þeirra og samkeppnis- hæfni. Stjórnvöld geti hjálpað til á ýmsan hátt og stuðlað þannig að því að fyrirtækin lækki verð eða geti haldið í horfinu. Nefnir hann hrað- ari lækkun tryggingagjalds en nú er áformuð og minni sértæka skatt- lagningu á ferðaþjónustuna. Í síð- arnefnda tilvikinu er um að ræða gistináttaskatt sem Jóhannes bend- ir á að komi ójafnt niður á fyrir- tækin. Best að saman fari verð og gæði þjónustunnar  Ísland er einn af dýrustu áfangastöðum heims  Fram- kvæmdastjóri ferðaþjónustunnar segir gesti ánægða Morgunblaðið/Ómar Þingvellir Hamingjusamir spænskir ferðamenn skoða sig um í Þjóðgarð- inum Þingvöllum á góðum degi. Gestir fara almennt ánægðir heim. Jóhannes Þór Skúlason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.