Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
ÍTALÍA
& SVISS
GARDAVATN OG ALPAÆVINTÝR
28. ÁGÚST Í 8 DAGA
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
VERÐ FRÁ 287.900 KR.
NÁNAR Á URVALUTSYN.IS
EÐA Í SÍMA 585 4000
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Áætlað er að hefja framkvæmdir við
lagningu rafstrengs í jörð meðfram
sunnanverðum Kjalvegi um mitt
sumar og að verkinu verði lokið í
haust. Ákvörðun þess efnis var
kynnt í höfuðstöðvum RARIK í
gær, en samhliða strengnum verður
lagður ljósleiðari. Áætlaður kostn-
aður er um 300 milljónir króna, en
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra opinberaði þau áform stjórn-
valda að leggja verkefninu til 100
milljónir króna á næstu tveimur
árum.
Um er að ræða 24 kV jarðstreng
frá Bláfellshálsi norðan við Gullfoss
í Árbúðir, Gíslaskála, Kerlingarfjöll
og að Hveravöllum. Strengurinn fer
um 58 kílómetra leið að Hvera-
völlum, að mestu meðfram Kjalvegi,
og um 9 km frá Kjalvegi að Kerl-
ingarfjöllum, samtals 67 km.
Umhverfisþátturinn vegur þungt,
en orkuskiptin úr brennslu jarð-
efnaeldsneytis með olíurafstöðvum
á hálendinu í notkun innlendra vist-
vænna orkugjafa samræmast þeirri
stefnu stjórnvalda að verða kolefnis-
hlutlaust samfélag fyrir árið 2040.
„Þetta samrýmist í fyrsta lagi
okkar stefnu um orkuskipti í sam-
göngum, en líka að byggja upp sjálf-
bæra ferðamennsku. Við viljum
styðja við ferðaþjónustuna og bjóða
upp á náttúruupplifun sem er um
leið í takt við umhverfið, án þess að
spúa út mengandi efnum á meðan. Í
þriðja lagi er þetta svo öryggismál,
þar sem lagning ljósleiðara sam-
hliða jarðstreng stóreykur fjar-
skiptaöryggi þar sem aukinn fjöldi
ferðamanna fer um Kjöl,“ segir
Katrín.
Mikilvægt öryggismál á Kili
Katrín segir að um óumdeilt verk-
efni sé að ræða sem margir ráð-
herrar og ráðuneyti komu að, enda
falli verkefnið í marga málaflokka.
Það sé að frumkvæði ferðaþjónustu-
aðila og sveitarfélaga á svæðinu,
sem leituðu til stjórnvalda fyrir þá
viðbót sem þurfti til að hægt væri að
ráðast í verkið. Aðkoma stjórnvalda
er forsenda þess að hægt sé að ráð-
ast í framkvæmdina.
Að auki kemur Neyðarlínan að
verkefninu, en rafstrengur sem
lagður var frá Brúarhvammi á Blá-
fellsháls árið 2017 knýr meðal ann-
ars sendistöð hennar á Bláfelli.
Framlenging strengsins upp á Kjöl
hefur mikla þýðingu og stuðlar að
auknu öryggi í rekstri fjarskipta
með tengingu við dreifiveitu raf-
magns í stað rafstöðva. Um mikil-
vægt öryggismál er því að ræða á
svæði sem er vinsælt meðal ferða-
fólks.
Umhverfisspjöll eru lítil
Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri
RARIK, segir að aukin krafa sé um
rafvæðingu fjallaskála samhliða
vaxandi notkun þeirra og kallað sé
eftir útrýmingu dísilvéla uppi á
öræfum. Umhverfisáhrif fram-
kvæmdanna eigi að vera óveruleg.
„Við plægjum þetta niður, svo að
umhverfisspjöll eru lítil. Við sneið-
um hjá öllum verndarsvæðum og við
höfum skoðað fornminjar. Það er
verið að útrýma olíunotkun og þeg-
ar strengurinn hefur verið lagður á
varla neitt að sjást. Við förum nán-
ast alveg með Kjalvegi og erum því
ekki í óröskuðu svæði,“ segir
Tryggvi.
Kjalvegur yrði fær rafbílum
Tryggvi segir engin áform uppi
um að halda áfram með strenginn
norður allan Kjöl, en ef slíkt yrði
gert síðar væri frekar farið frá
Blönduvirkjun og suður. Jarð-
strengurinn sem nú á að leggja nið-
ur opni svo einnig möguleikann á
uppsetningu hraðhleðslusvöðva fyr-
ir rafbíla og ljósleiðarinn skapar for-
sendur fyrir því að slíkum stöðvum
sé stýrt á fullkominn hátt. Flutn-
ingsgeta rafstrengsins opni því á
möguleikann á rafknúinni umferð
um Kjalveg.
Tengja Kjöl við rafdreifikerfið
Framkvæmdum við jarðstreng meðfram sunnanverðum Kjalvegi að Hveravöllum lokið í haust
Samrýmist að sögn forsætisráðherra stefnu stjórnvalda, sem leggja verkefninu til 100 milljónir
fyrir austan og gisti Attenborough á Hótel Höfn. Á
myndinni er sjónvarpsmaðurinn heimsþekkti með
Þráni Hafsteinssyni, flugstjóra hjá Erni, á Reykja-
víkurflugvelli í byrjun vikunnar.
Sir David Attenborough flaug af landi brott í gær-
morgun. Hann hafði dvalist hér við upptökur á þátta-
röðinni One Planet, Seven Worlds fyrir breska ríkis-
útvarpið síðustu daga. Tökur fóru meðal annars fram
Ljósmynd/Birgir Steinar Birgisson
Attenborough farinn af landi brott
Tryggvi Þór Haraldsson, for-
stjóri RARIK, segir að raforku-
þörfin á svæðinu sé um 250 kV
en heildarafkastageta strengs-
ins verði að óbreyttu 700 kV.
Hægt yrði að hækka hana upp í
1,5 MV, svo með tilkostnaði byði
jarðstrengurinn upp á umfram-
möguleika.
Kostnaðurinn, 270 milljónir
auk 25 milljóna vegna spennu-
stöðva, er fjármagnaður með
tengigjöldum viðskiptavina sem
nú tengjast og tekjum af áætl-
aðri framtíðarnotkun. Þá eru
100 milljóna fyrirheit úr ríkis-
sjóði og framlag sveitarfélaga á
svæðinu forsenda strengsins.
Geta aukið
afkastagetu
JARÐSTRENGUR Á KILI
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samkomulagi náð Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK.
Hveravellir
Bláfellsháls
Brúarhvammur
Kerlingarfjöll
Kjölur
Langjökull
Rafstrengur upp á Kjöl
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Fyrirhuguð lagnaleið
jarðstrengs með Kjal-
vegi að Hveravöllum
Rafstrengur lagður
2017 frá Brúarhvammi
að Geldingafelli á
Bláfellshálsi