Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
O
kkur finnst gaman að
tína rusl og okkur líður
vel eftir að við höfum
hreinsað til. Við vitum
að við erum að gera
gagn af því að rusl mengar og er
sóðalegt. Lítil börn geta líka meitt
sig á rusli, til dæmis ef þau komast í
glerbrot. Ef allir mundu tína upp rusl
alltaf þegar þeir sæju það þá væri
ekkert rusl,“ segja þær bestu vinkon-
ur og bekkjarsystur Selma Dögg Jó-
hannsdóttir og Erla Björg Viðars-
dóttir, báðar í þriðja bekk í Hofs-
staðaskóla í Garðabæ, en þær tóku
upp á því í vetur að tína ævinlega rusl
hvar sem þær sjá það í sinni heima-
byggð.
„Áhugi okkar á að tína rusl
kviknaði á tiltektardegi í skólanum. Þá
fengum við að horfa á myndband þar
sem við sáum hvernig dýr geta meitt
sig á rusli og stundum drepist, eins og
til dæmis þegar þau éta rusl sem fólk
hefur skilið eftir úti, af því að dýrin
halda að það sé matur. Við sáum í
myndabandinu hval sem hafði drepist
af því að maginn í honum var fullur af
plasti.“ Þær Selma og Erla segjast
fara um hverja helgi í leiðangra til að
tína rusl af því að þá gista þær stund-
um hjá hvor annarri. „Einu sinni þeg-
ar mamma sendi okkur saman út í búð
í rigningu fannst henni skrýtið hvað
við vorum lengi, en það var vegna þess
að við sáum svo mikið rusl á leiðinni að
við báðum um poka í búðinni til að
geta tínt það upp á heimleiðinni. Við
fylltum báðar pokana okkar á þessari
stuttu leið,“ segja þær stöllur, sem
fara ævinlega með ruslið heim og
flokka það í réttar tunnur.
Við höfum líka fundið eitur
Þegar stelpurnar eru spurðar að
því hvers konar rusl verði á vegi
þeirra segjast þær finna mikið af
gosdrykkjadósum, pappír og rosa-
lega mikið af plastpokum.
„Við höfum líka fundið eitur í
litlum poka, en við pössum okkur vel
og vitum að við megum ekki taka upp
sprautur eða nálar ef við finnum þær.
Við finnum mjög mikið af sígarettu-
stubbum, fólk hendir þeim greinilega
bara frá sér sem okkur finnst mjög
sóðalegt. En við megum ekki snerta
stubbana, þeir eru eitraðir,“ segja
vinkonurnar, sem þurfa greinilega að
kenna fullorðnu fólki að ganga betur
um. Og stundum verður furðulegt
rusl á vegi þeirra, Selma segir að eitt
sinn þegar hún hafi verið úti að
ganga með mömmu sinni hafi þær
fundið barnakopp. „Mikið af rusli
festist í þyrnirunnum og það getur
verið erfitt að ná því af því að við
stingum okkur. En við höfum aldrei
séð eins mikið rusl hér úti í Garðabæ
eins og á nýársdag eftir að fólk hafði
skotið upp flugeldum og kveikt í öllu
sem notað er á gamlárskvöld.“
Þær segjast ekki enn vera farn-
ar að banka upp á hjá fólki til að fá að
tína rusl inni á lóðum þess, þær láti
duga að tína rusl á almannafæri. „En
okkur langar að bjóða fólki að
hreinsa rusl í görðum þess.“
Óþægilegt að sjá rusl sem
þær geta ekki tekið upp
Þær Selma og Erla segjast vera
orðnar mjög vakandi fyrir rusli hvar
sem þær fara og geti ekki sleppt því
að taka það. „Þegar við erum í bíl og
sjáum rusl einhvers staðar þar sem
við keyrum fram hjá finnst okkur
óþægilegt að geta ekki farið og tekið
það upp,“ segja þessar duglegu stelp-
ur sem gera sér grein fyrir að þær
eru góðar fyrirmyndir fyrir aðra
krakka. „Einu sinni fór ég út að labba
með pabba mínum og litla eins árs
frænda mínum og við sáum svaka-
lega mikið rusl á leiðinni. Þegar ég
fór að tína það í poka þá fór litli
frændi líka að gera það. Hann lærði
af mér,“ segir Selma og bætir við að
þær Erla fái góð viðbrögð frá fólki
sem rekst á þær við að tína rusl.
„Fólk hrósar okkur og segir: Vel
gert!“
Þær eru sannarlega flottir
fulltrúar framtíðarinnar og harð-
ákveðnar í að halda ótrauðar áfram
af því að þær vita að það skiptir máli
að hver og einn leggi sitt af mörkum
þegar kemur að því að halda um-
hverfi okkar hreinu.
Flottir fulltrúar framtíðarinnar
Þær láta rusl sem þær sjá
á víðavangi aldrei fram
hjá sér fara, taka það
upp og koma því í rétta
tunnu. Selma og Erla
vilja leggja sitt af mörk-
um til að vinna gegn
sóðaskap og mengun.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Iðnar Selmu og Erlu finnst
gaman að tína rusl og þeim
líður vel eftir að þær hafa
hreinsað til. Hér eru þær
stoltar með afrakstur
ruslatínslu.
Brokkkórinn, kór hestamanna á höfuðborgarsvæðinu, stendur
fyrir söngpartíi í kvöld, laugardagskvöldið 27. apríl, í Sam-
skipahöllinni á félagssvæði Hestamannafélagsins Spretts í Kópa-
vogi. Sérstakur gestur að þessu sinni verður Sönghópur Suður-
nesja. Stjórnandi beggja kóranna, hinn landskunni Magnús
Kjartansson, hefur komið víða við í lagavali vetrarins og munu
kórarnir tveir syngja gamla og nýja erlenda slagara í bland við ís-
lensk dægurlög. Að stuttum tónleikum loknum fá partígestir
tækifæri til að þenja raddböndin við undirleik Magnúsar og
skemmta sér og öðrum.
Miðasala er við innganginn og aðgöngumiði er jafnframt happ-
drættismiði en meðal vinninga eru folatollar undan Farsæl frá
Litla-Garði, Styrk frá Stokkhólma, Ými frá Heysholti og Salvador
frá Hjallanesi. Þá er einnig í pottinum Broil King-gasgrill frá
Húsasmiðjunni að verðmæti 69.900 krónur auk fleiri vinninga.
Húsið er opnað kl. 19.30 og hægt að kaupa söngvatn á barnum.
Brokkkórinn heldur sitt árlega söngpartí í kvöld þar sem partígestir syngja með og skemmta sér og öðrum
Hver vill ekki vinna fola-
toll og njóta samsöngs?
Brokkkórinn Hluti kórsins ásamt Magnúsi stjórnanda, og öll skarta fögrum lopapeysum.
Fjör Kórmeðlimir ríða oft út
saman. Þóra Þóris tilbúin.
AUDI A3 E-TRON SPORT
nýskr. 01/2017, ekinn 16 Þ.km, bensín/rafmagn,
sjálfskiptur. Virtual cockpit, B&O hljómkerfi, Matrix
led ljós ofl. Verð 4.390.000 kr. Raðnúmer 259069
VWGOLF GTE PANORAMA
nýskr. 05/2017, ekinn 10 Þ.km, bensín/rafmagn,
sjálfskiptur. Hlaðinn aukabúnaði s.s. virtual cockpit,
glerþak. Verð 4.550.000 kr. Raðnúmer 259068
AUDI A3 E-TRON S-LINE
nýskr. 11/2017, ekinn 16 Þ.km, bensín/rafmagn,
sjálfskiptur. Virtual cockpit, S-line innan og utan ofl.
Verð 4.650.000 kr. Raðnúmer 259292
BMW225XE IPERFORMANCE
nýskr. 02/2017, ekinn 12 Þ.km, bensín & rafmagn
(tengitvinn), sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn.
Verð 3.970.000 kr. Raðnúmer 259005
BMW 530E IPERFORMANCE M-SPORT
nýskr.06/2018, ekinn 4þkm. bensín/rafmagn, sjálf-
skiptur. M-sport innan og utan.
Verð 6.590.000 kr. Raðnúmer 259344
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is