Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRTækni MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 FRÉTTASKÝRING Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Það var öllu heldur lítið skref en stórt sem stigið var í fyrstu opin- beru ferð flugmannslauss „þjónustudróna“ í Vínarborg í Austurríki á dögunum. Engu að síður var þar boðið upp á leiftursýn inn í hugsanlega framtíð í borgar- samgöngum. Mörg stórfyrirtæki, þar á meðal stóru flugvélasmiðirnir tveir, Bo- eing og Airbus, hafa unnið hvert að sinni útgáfu af flugtækni þessari. Var það þó kínverska fyrirtækið EHang sem sýndi fjölmiðlum mannbært loftfar sitt á Generali Arena knattspyrnuvellinum í aust- urrísku höfuðborginni. Þeir sem væntu þess að sjá það líða um loftið yfir Dónárbökkum urðu fyrir vonbrigðum. Lofthæfi hins tveggja sæta fars í austur- rískri lofthelgi hefur ekki verið staðfest með skírteini. Þess vegna var flug EHang 216 takmarkað við fótboltavöllinn þar sem það leið fram og aftur og tók allt að 10 metra lóðrétt hopp. Einn af blaðamönnunum sem fengu að kynnast færni drónans við þetta tækifæri, var ljósmyndari AFP, Joe Klamar. Að sitja um borð í EHang 216 var „skrítið, mjúkt og undarlega hávært“. Hann bætti því við far- þegaklefinn hefði verið „einstaklega þröngur“. Sagði hann „þyrilblöðin ógnvekjandi en það venjist“. EHang 216 er búinn átta rótor- um og mælist hávaðinn frá þeim 90 desibel. Er það minni hávaði en frá venjulegum þyrlum en engu að síð- ur nógur til að teljast óþægilega mikill. Segjast framleiðendurnir ætla sér að ná hávaðanum niður í 75 desibel. Treg viðhorf EHang segir það meginmarkmið sitt að geta á endanum brúkað drónann til að ferja fólk í lítilli hæð allt að 35 kílómetra vegalengd. Enn á fyrirtækið þó eftir að fá flughæf- isskírteini fyrir loftfar sitt frá yfir- völdum loftferða. „Stærsta áskorun okkar er ekki tæknin, ekki reglu- verkið, heldur viðhorf fólks,“ segir markaðsstjóri EHang, Derrick Xiong, og vísar þar meðal annars til varfærni almennings gagnvart hinni nýju ferðatækni. Hann segir EHang hafa fengið „þúsundir“ óstaðfestra pantana í flygildið EH- ang 216. Á hið kínverska fyrirtæki í samstarfi við austurríska flug- málafyrirtækið FACC um að hefja fjöldaframleiðslu á drónanum þegar á næsta ári. Xiong segir olíu- og gasfyrirtæki einna fyrst hafa sýnt drónanum áhuga til að ferja verkfræðinga og tæknimenn frá einum borpalli á annan. Sömuleiðis hafa fyrirtæki í ferðaþjónustu verið áhugasöm um flygildið og fyrirtæki sem sinni flutningum vegna líffæraígræðslu. Hann segist búast við því að verðmiðinn á eintaki drónans verði um 200.000 dollarar, jafnvirði um 26 milljóna íslenskra króna. Að hans sögn verður einstaklingum ekki seldur dróni til einkabrúks. „Tæknilega séð er ferðamáti þessi ekki lengur draumur, heldur veruleiki,“ sagði Robert Macht- linger, forstjóri FACC, á fótbolta- vellinum í Vín. Hann segir að á þróunarstigi hafi EHang 216 drón- inn hafa lagt að baki 7.000 flug- stundir, þar af 2.000 með menn innanborðs. Austurríska fyrirtækið er meðal birgjarisa í flugiðnaði á borð Airbus, Boeing, Bombardier og Embraer. Bindur það vonir við að smíði taxidrónanna verði komin í 300 eintök á ári þegar árið 2021. Tvíætta tækni Flugtilraunir EHang hafa að mestu farið fram í Kína en einnig nokkuð í Dúbæ við Persaflóa í febrúar í fyrra en almenningur fékk ekki að fylgjast með þeim. Mörg fyrirtæki sem vinna að þróun og smíði annarra þjón- ustudróna, til að mynda þýska fyrirtækið Volocopter, hafa átt samstarf við flugmálayfirvöld, þar á meðal flugöryggisstofnun Evrópu (EASA), í þeim tilgangi að fá flug- leyfi fyrir loftför sín. „Drög að ýmsum reglum eru fyr- ir hendi,“ segir Machtlinger en bætir við að það sé flókið mál að fá þjónustudrónana lögvædda vegna tvíættaðs eðlis þeirra. „Þetta er hvorki þyrla né flugvél,“ segir hann. Austurríski samgönguráðherrann Norbert Hofer var viðstaddur sýn- ingu EHang drónans í Vínarborg. Kvaðst hann vonast til þess, að Austurríki yrði meðal fyrstu ríkja heims til að sjá þjónustudróna í reglulegum ferðum í borgum sínum. Yfirvöld í Dúbæ hafa sömuleiðis sýnt áhuga á að verða meðal fyrstu ríkja til að tileinka sér þessa nýju samgöngutækni. Talsvert vatn er þó órunnið til sjávar áður en mann- bærir þjónustudrónar verði algeng- ir á borgarlofti, að mati sérfróðra manna. EHang segir loftfar sitt nú geta flogið eitt og óstutt í hálftíma. Hann geti náð allt að 130 kílómetra hraða á klukkustund og borið 260 kílóa arðfarm. Rafgeymir flygildis- ins er 17 kílóvatta og orkunotkun þess í ferð „sambærileg við rafbíl í borgarumferð,“ segir Machtlinger. AFP Tækni Þjónustusveit Air Taxi EHang 216 þjónustudrónsins ber flygildið inn á leikvanginn í Vínarborg. Styttist í flug mannbærra dróna  Kínverskt fyrirtæki kynnti þjónustudróna í Austurríki  „Tæknilega séð er ferðamáti þessi ekki lengur draumur, heldur veruleiki“  Boeing og Airbus meðal fyrirtækja sem skoða þessatækni AFP Flygildi Ómannað hefur borgarflugsamgönguflygildið Air Taxi EHang 216 sig til flugs á fótboltavelli í Vínarborg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.