Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 20

Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturh@mbl.is Í umsögn Isavia hinn 14. janúar síðast- liðinn um frumvarp sem mælt var fyr- ir á Alþingi um innleiðingu Íslands á Höfðaborgarsáttmálanum fagnar hið opinbera fyrirtæki því að frumvarpið sé komið fram og telur það vera til hagsbóta fyrir flugrekendur sem geta nýtt sér ákvæði samningsins til þess að ná hagkvæmari samningum um kaup eða leigu loftfara. Áhöld eru aft- ur á móti um það hvort óundirritað samkomulag (sem Isavia segir ein- hliða yfirlýsingu WOW air) á milli Isavia og WOW air um greiðslu hins síðarnefnda á skuldum þess til Isavia, sem greint var frá í frétt Morgun- blaðsins hinn 18. apríl, séu í takti við markmið sáttmálans. Fari svo að ís- lenskir dómstólar dæmi Isavia í vil í málaferlum þess við bandaríska flug- vélaleigufyrirtækið Air Lease Corp- oration (ALC) um greiðslu þess á skuldum WOW air við Keflavíkurflug- völl gæti það vegið verulega á móti þeim jákvæðu áhrifum sem sáttmál- anum er ætlað að hafa. Höfðaborgarsáttmálinn er alþjóð- legur sáttmáli sem undirritaður var árið 2001 og öll helstu nágrannalönd Íslands hafa skrifað undir og miðar að því að staðla alþjóðlegar reglur um loftför og að koma í veg fyrir hindranir sem kunna að koma upp við fullnustu á réttindum kröfuhafa í tengslum við fjármögnun loftfara í alþjóðlegri starf- semi. Öll stærri flugfélögin rituðu í fyrra sameiginlegt bréf til innanríkis- ráðherra með beiðni um að þessi sátt- máli skyldi innleiddur á Íslandi. Áhættuálag hækkar Í fyrrnefndri frétt Morgunblaðsins var sagt frá stöðu ALC þar sem Isavia krafðist þess að félagið skyldi fallast á að greiða tæplega tveggja milljarða skuld WOW air við Keflavíkurflugvöll innan sanngjarnra tímamarka, annars yrði Airbus A321-211-vél félagsins seld á uppboði. Samkvæmt 136. gr. loftferðalaga nr. 60/1998 hefur Isavia heimild til þess að „aftra för loftfars af flugvelli uns gjöld eru greidd eða trygging sett fyrir greiðslu vegna þess loftfars sem í hlut á eða annarrar starfsemi hlutaðeigandi eða um- ráðanda loftfarsins.“ Í fréttinni var einnig fjallað um óundirritað sam- komulag milli Isavia og WOW air um greiðslu flugfélagsins á lendingar- gjöldum þess. Í því var gengið út frá því að WOW air skyldi greiða upp skuld félagsins, sem þá nam meira en milljarði króna, í 13 aðskildum greiðslum frá 1. nóvember 2018 til 1. nóvember 2019. Markmið Höfðaborgarsáttmálans eru að tryggja skjótvirk fullnustuúr- ræði fyrir kröfuhafa í tengslum við loftför sem gerir það að verkum að þeir geti boðið hagstæðari leigu- og fjármögnunarkjör. Hafi verið gert samkomulag á milli flugvallaryfir- valda og flugrekenda og að lending- argjöldum hafi verið safnað upp til lengri tíma, sem á endanum falla á kröfuhafa, gæti það gert að verkum að áhættuálag flugvélaleigusala og fjár- mögnunaraðila í samningum við ís- lenska flugrekendur hækkar. Meðal annars vegna þess að þá þurfi um- ræddir aðilar að gera ráð fyrir því að flugvallaryfirvöld geti leyft skuldum að safnast upp og í raun notað flugvél þriðja aðila sem veðandlag í sam- komulagi flugrekenda við flugvallar- yfirvöld. Minnkar vægi sáttmála Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson Kyrrsett TF-GPA hefur verið kyrrsett á Keflavíkurflugvelli frá 18. mars.  Óundirritað samkomulag Isavia við WOW air gæti minnkað vægi Höfðaborgar- sáttmálans  Mælt hefur verið fyrir frumvarpi um innleiðingu hans á Alþingi Isavia og WOW air » Áhöld eru um það hvort óundirritað samkomulag á milli Isavia og WOW air um greiðslu WOW á skuldum þess til Isavia séu í takti við mark- mið Höfðaborgarsáttmálans sem miðar að því að bjóða hag- stæðari leigu- og fjármögn- unarkjör. áhrif loðnubrests væru ekki að fullu komin fram og einnig væri óvissa vegna stöðunnar almennt á alþjóðlegum flutningamörkuðum. „Þó að óvissa vegna kjarasamn- inga, og óvissa vegna skoðunar samkeppniseftirlitsins á samstarfi okkar við Royal Arctic Line, sé ekki fyrir hendi lengur, þá eigum við eftir að sjá áhrifin af því að það verður engin loðnuvertíð,“ segir Vilhelm, en félagið hefur haft tekjur af flutningi loðnuafurða milli landa. Óvissan á alþjóðlegum flutninga- mörkuðum lýtur helst að Brexit, að sögn Vilhelms. Þá nefnir hann olíu- verð sem óvissuþátt, en meira og meira er að hans sögn þrengt að skipafélögum um notkun svartolíu. „Við vitum ekki nákvæmlega hvernig það mun þróast.“ Helstu ástæður fyrir betri af- komu milli ára eru að sögn Vil- helms aukin umsvif í flutningum milli Evrópu og Bandaríkjanna, og Bandaríkjanna og Kanada og Evr- ópu, og velgengni í rekstrinum í Færeyjum og Noregi. tobj@mbl.is Fjárfestar í Kauphöll Íslands tóku vel í nýbirta bætta afkomuspá Eim- skipafélags Íslands í gær, þegar gengi félagsins hækkaði umtals- vert, eða um 5,48% í 121 milljón króna viðskiptum. Félagið býst nú við betri afkomu á fyrsta ársfjórð- ungi en það hafði áður gert ráð fyr- ir, sem þýðir að í stað þess að búast við að EBTIDA hagnaður verði á bilinu 49 til 57 milljónir evra, þá er nú búist við afkomu á bilinu 51 til 57 milljónir evra. Vilhelm Þorsteinsson, forstjóri félagsins, segir í samtali við Morgunblaðið að ekki hafi þótt ástæða til að hækka efri mörk afkomuspárinnar vegna óvissu sem enn ríki í íslensku efnahagslífi, Góð viðbrögð við bættri afkomuspá  Velgengni í Noregi og Færeyjum Siglingar Eimskipafélagið fær tvö ný flutningaskip afhent síðar á árinu. ● Eimskipafélag Íslands hækkaði mest allra félaga í Kauphöll Íslands í gær eins og sagt er frá hér að neðan. Sýn hækk- aði einnig duglega, eða um 4,29% í 116 milljóna króna viðskiptum. Heiðar Guð- jónsson, hagfræðingur og fjárfestir, tók við forstjórastarfi félagsins í fyrradag og virðist markaðurinn vera að bregð- ast við þeim fréttum. Hann lætur af störfum sem stjórnarformaður félags- ins en Hjörleifur Pálsson tekur við því starfi. Marel hækkaði enn frekar, eða um 1,89% í 497 milljóna króna við- skiptum. Fasteignafélögin Reginn, Reitir og Eik hækkuðu einnig, eða um 2,88%, 1,94% og 1,41%, í þessari röð. Mest lækkuðu hlutabréf í Kviku, eða um 0,86%, í Vís, um 0,8% og í Skeljungi og Origo, eða um 0,7%. Markaðurinn tók vel í ráðningu Heiðars 27. apríl 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 120.85 121.43 121.14 Sterlingspund 156.4 157.16 156.78 Kanadadalur 89.77 90.29 90.03 Dönsk króna 18.134 18.24 18.187 Norsk króna 14.08 14.162 14.121 Sænsk króna 12.895 12.971 12.933 Svissn. franki 118.6 119.26 118.93 Japanskt jen 1.0799 1.0863 1.0831 SDR 167.29 168.29 167.79 Evra 135.42 136.18 135.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.893 Hrávöruverð Gull 1277.85 ($/únsa) Ál 1853.0 ($/tonn) LME Hráolía 74.46 ($/fatið) Brent ● Verðlag á Íslandi var 84% hærra en að meðaltali í að- ildarríkjum ESB ár- ið 2017, sam- kvæmt nýrri skýrslu Íslands- banka um ferða- þjónustuna á Ís- landi, sem kynnt verður á hótel Hil- ton Nordica í næstu viku. Ferðamaðurinn greiðir því nær tvöfalt hærra verð hér en að með- altali innan ESB. „Ísland er um þessar mundir dýrasta land Evrópu og að öll- um líkindum einn dýrasti áfangastaður heims fyrir ferðamenn,“ segir bankinn. Þá segir að verð áfengis sé nær þrefalt hærra en að meðaltali í ESB. Ísland er orðið dýrasta landið í Evrópu Áfengi Dýrt er orðið að skála. STUTT Vantar þig ráðleggingar við sölu eignar þinnar? s 893 6001 Kópavogi | Selfossi | s 893 6001 | beggi@fasteignasalan.is Guðbergur Guðbergsson Löggiltur fasteignasali og leigumiðlari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.