Morgunblaðið - 27.04.2019, Page 21

Morgunblaðið - 27.04.2019, Page 21
FRÉTTIR 21Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 Jenjarom. AFP. | Bann kínverskra stjórnvalda við nær öllum innflutn- ingi á plastúrgangi hefur orðið til þess að plastið hefur hlaðist upp í Bandaríkjunum, Evrópulöndum og Ástralíu og plastúrgangur hefur ver- ið fluttur í miklum mæli til landa í Suðaustur-Asíu þar sem endur- vinnslan einkennist af glundroða. Kínverjar fluttu inn plastúrgang í miklum mæli í mörg ár til endur- vinnslu og framleiðslu á betra efni sem verksmiðjur geta notað. Kín- versk stjórnvöld bönnuðu hins vegar innflutninginn að mestu í byrjun síð- asta árs til að draga úr loftmengun og vernda umhverfið á svæðum þar sem plastið var endurunnið. Það varð til þess að innflutningurinn á plastúrgangi minnkaði úr 600.000 tonnum á mánuði árið 2016 í 30.000 á mánuði 2018, að sögn náttúru- verndarsamtaka. „Þetta var eins og jarðskjálfti,“ sagði Arnaud Brunet, framkvæmda- stjóri BIR, samtaka um 800 endur- vinnslufyrirtækja í 70 löndum. „Kína var stærsti markaðurinn fyrir endurvinnanlegan úrgang. Þetta olli miklu uppnámi á heimsmarkaðnum.“ Daunn og eitraður reykur Bannið varð til þess að mörg kín- versk endurvinnslufyrirtæki fluttu starfsemi sína til landa í Suðaustur- Asíu, m.a. Malasíu þar sem innflutn- ingurinn á plastúrgangi þrefaldaðist í fyrra miðað við árið 2016. Til að mynda voru margar endurvinnslu- verksmiðjur reistar í grennd við bæ- inn Jenjarom í Malasíu. Íbúarnir hafa kvartað yfir miklum fnyk frá úr- ganginum sem hefur hlaðist upp við verksmiðjurnar og umhverfis- verndarsinnar segja að stybban stafi einnig af því að verksmiðjurnar brenni plast sem ekki teljist nógu gott til endurvinnslu. „Fólkið andaði að sér eitruðum reyk og vaknaði á nóttunni. Margir voru alltaf að hósta,“ sagði einn íbúa bæjarins, Pua Lay Peng. „Ég gat ekki sofið, Ég gat ekki hvílt mig, var alltaf þreyttur.“ Pua og fleiri íbúar bæjarins fundu um 40 verksmiðjur sem virtust hafa hafið endurvinnslu án vitneskju yfir- valda og án tilskilinna leyfa. Yfir- völdin virtu kvartanir íbúanna að vettugi í fyrstu en byrjuðu síðan að loka verksmiðjum sem voru án leyfa og stöðvuðu innflutning á plast- úrgangi tímabundið. Alls var 33 verksmiðjum í grennd við bæinn lok- að en umhverfisverndarsinnar segja að margar þeirra hafi verið fluttar á önnur svæði. Hafa ekki enn fundið lausn Mörg sorpeyðingarfyrirtæki í Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu lentu í vandræðum þegar þau gátu ekki lengur sent plastúrgang til Kína. Þau stóðu frammi fyrir því að dýrara var að enduvinna úrganginn í heimalöndunum og sum þeirra gripu til þess ráðs að urða plastið þegar það hafði hlaðist upp. „Nú þegar tólf mánuðir eru liðnir finnum við enn fyrir afleiðingunum og höfum ekki enn fundið lausn á vandamálinu,“ sagði Garth Lamb, formaður sam- taka sorpeyðingar- og endurvinnslu- fyrirtækja í Ástralíu. Sum fyrirtæki hafa þó verið fljót- ari að laga sig að breyttum að- stæðum en önnur. Til að mynda hef- ur gengið tiltölulega vel að koma plastúrgangi í borginni Adelaide í Ástralíu í endurvinnslu. Nær allt plastið í móttökustöðvum borgar- innar var flutt til Kína en áströlsk fyrirtæki endurvinna nú um 80% af úrganginum og megnið af afgang- inum er flutt til endurvinnslu á Ind- landi. Yfirvöld í Adelaide segja að kostnaðurinn við endurvinnsluna í Ástralíu sé nú orðinn sá sami og verðið sem greitt var fyrir útflutn- inginn á plastúrgangi til Kína. Talið er að aðeins um 7% af öllu plasti í heiminum séu endurunnin og umhverfisverndarsinnar segja að eina langtímalausnin á vandanum felist í því að fyrirtæki og neytendur noti minna af plasti. Ringulreið varð í endurvinnslu á plasti  Endurvinnslan í SA-Asíu í óreiðu eftir bann í Kína 2016 2017 2018 Plastúrgangur hefur verið fluttur í miklummæli til landa í Suðaustur-Asíu frá því að Kínverjar lokuðu plastendurvinnslustöðvum á síðasta ári 70.000 60.000 50.000 40.000 30.000 20.000 10.000 (Tonn) Innflutningur á plastúrgangi Heimild: Grænfriðungar Innflutningur á plast- úrgangi bannaður í Kína VíetnamKína Taíland Malasía Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Stór orð hafa verið látin falla í harðri baráttu stjórnmálaflokkanna á Spáni fyrir þingkosningar sem fara fram á morgun, sunnudag. Forystumenn þeirra hafa til að mynda verið sakaðir um að vera „þjóðníðingar“ eða „fas- istar“. Kosningabaráttan hefur einkennst af harkalegum árekstrum andstæðra póla, með „rokum og ýkjum og án raunverulegrar umræðu um málefn- in,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Manuel Arias, prófessor í stjórnmála- fræði við Malaga-háskóla. Skoðanakannanir benda til þess að Sósíalistaflokkurinn, undir forystu Pedros Sánchez forsætisráðherra, fái mest fylgi en enginn flokkanna fái meirihluta á þinginu. Sánchez mynd- aði ríkisstjórn í júní eftir að þingið samþykkti tillögu um að lýsa yfir van- trausti á Mariano Rajoy, þáverandi forsætisráðherra og leiðtoga Þjóðar- flokksins, með stuðningi sósíalista, vinstriflokksins Podemos og flokka katalónskra og baskneskra að- skilnaðarsinna. 38 ára þingmaður, Pablo Casado, var seinna kjörinn leið- togi Þjóðarflokksins og stóryrði hans hafa vakið mikla athygli í kosninga- baráttunni. Hann hefur m.a. sakað Sánchez um að vera „mesti þjóðníð- ingur í sögu lýðræðisins á Spáni“ og „óforbetranlegur lygari“. Forsætis- ráðherrann hefur svarað með því að saka Casado um lygar og ýkjur að hætti Donalds Trumps Bandaríkja- forseta og segir hann hafa beitt fals- fréttum í kosningabaráttunni. Sakaður um frankóisma Casado er talinn hafa fært Þjóðar- flokkinn til hægri og hefur m.a. sagt að hann vilji að sjálfstjórnarhéraðið Katalónía verði aftur undir beinni stjórn stjórnvalda í Madríd vegna sjálfstæðisyfirlýsingar héraðsins. Kannanir benda til þess að Þjóðar- flokkurinn hafi þó tapað fylgi til þjóð- ernisflokksins Vox, sem sósíalistar hafa sakað um fasisma og segja að sé „augljóslega Frankósinnaður“, þ.e. styðji stefnu Franciscos Francos, ein- ræðisherra Spánar á árunum 1936- 1975. Vox-flokkurinn var stofnaður árið 2013. Kannanir benda til þess að hann komist á þing í fyrsta skipti og verði fimmti stærsti flokkurinn. AFP Kappræður Frá vinstri: Pablo Casado, leiðtogi Þjóðarflokksins, Pablo Iglesias, leiðtogi Podemos, og Pedro Sánchez, leiðtogi Sósíalistaflokksins. „Þjóðníðingar“ og „fasistar“ í framboði  Stóryrði, ýkjur og ásakanir um lygar í harðri kosningabaráttu á Spáni Skoðanakannanir benda til þess að tveir flokkar nái því markmiði að fá þingmenn kjörna í fyrsta skipti í kosningunum á Spáni á morgun. Skoð- anakannanir hafa bent til þess að þjóðernisflokkurinn Vox fái um 11% at- kvæðanna og fái í fyrsta skipti fulltrúa á spænska þinginu. Hinn flokkur- inn er dýraverndarflokkurinn Pacma sem spáð er tveimur þingsætum. Hann var stofnaður fyrir sextán árum til að berjast fyrir því að nautaat verði bannað á Spáni. Flokkurinn er einnig andvígur hvers konar sport- veiðum og vill banna „notkun á dýrum, hvort sem þau eru lifandi eða dauð, á hvers konar sýningum eða hátíðum“. Flokki sem vill bann við nauta- ati á Spáni spáð þingsætum TALIÐ AÐ TVEIR FLOKKAR KOMIST Á ÞING Í FYRSTA SKIPTI Bannað? Nautabani gengur inn á leikvang í Sevilla fyrir viðureign við naut. KRINGLANlífstíls & gjafavöruverslun saltverslun VORTILBOÐ 15% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.