Morgunblaðið - 27.04.2019, Page 24

Morgunblaðið - 27.04.2019, Page 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 ÍMið-Asíu, á silkileiðinni fráKína til Vesturlanda, voru tilforna töluð ótal tungumál ogeitt þeirra var tokkaríska. Heimildir um tokkarísku eru handrit frá 6.-8. öld e. Kr., mest þýðingar á búddískum textum úr forn-indversku (sanskrít). Handritin fundust í byrjun 20. aldar og liggja nú á söfnum víðs- vegar um heim. Sum þeirra eru ærið brotakennd, vandaðar útgáfur eru af skornum skammti og túlkun textanna oft erfið. Tokkaríska er af indóevrópsku málaættinni en ekki er fullljóst hvern- ig stóð á því að þeir fjarskyldu ætt- ingjar okkar sem töluðu þetta mál flæktust svo langt í austur. Þótt tokk- aríska sé ekki meðal elstu indóevr- ópsku málanna er hún um sumt býsna fornleg og hefur mikilvægi hennar fyr- ir samanburðarmálfræði komið æ bet- ur í ljós á síðustu áratugum. Svo ótrú- lega sem það kann að hljóma varpar skilningur tokkarísku, sem var töluð í vesturhluta Kína fyrir meira en tólf hundruð árum, ljósi á ýmis grundvallar- atriði í forsögulegri þróun íslensku. Íslendingar geta státað af því að hafa átt einn fremsta sérfræðing heims í tokkarísku. Það var Jör- undur Hilmarsson, málvís- indamaður í Háskóla Íslands, sem lést langt um aldur fram árið 1992, aðeins 46 ára að aldri. Haustið 1986 varði Jör- undur doktorsritgerð um tokkarísku við háskólann í Leiden í Hollandi. Þetta brautryðjandaverk varpar ljósi á atriði í tokkarískri málsögu sem áður voru myrkri hulin. Þar eru settar fram snjallar skýringar á flóknum breytingum sem hafa orðið á tokkarísku allar götur frá hinni endur- gerðu indóevrópsku frumtungu. Jörundur ritaði að auki fjölmargar greinar og bækur um tokkarísku og indóevrópska samanburðarmálfræði. Jörundi var athafnasemin í blóð borin og árið 1987 hleypti hann af stokk- unum alþjóðlegu tímariti um tokkarísk og indóevrópsk fræði, Tocharian and Indo-European Studies. Útlendir lærdómsmenn urðu forviða þegar þeir heyrðu að Jörundur hefði kostað tímaritið að mestu leyti sjálfur og ritstýrt því heima hjá sér á Vesturgötunni. „Ég hélt að þar væri til húsa tokkarísk stofnun Háskóla Íslands,“ sagði þýskur málfræðingur við mig eitt sinn þegar ég lýsti fyrir honum tilhögun útgáfunnar. Með ótímabæru fráfalli Jörundar var tokkaríska ævintýrinu á Íslandi lok- ið. Nokkrir nemendur hans höfðu að vísu lært tokkarísku sem hluta af námi í indóevrópskum fræðum en þeir kusu heldur að sérhæfa sig á öðrum sviðum málvísinda. Danskur málfræðingur að nafni Jens Elmegård Rasmussen tók við ritstjórn tímaritsins en þegar hann dó árið 2013 varð eftirlifandi eiginkona hans, Birgit Anette Olsen, sem er prófessor í Kaupmannahafnarháskóla, rit- stjóri og kom 18. heftið út í fyrra. Að sönnu er ánægjulegt að þessu merka út- gáfustarfi sé haldið áfram í Danaveldi, en hinu má ekki gleyma að upphafið var á Íslandi þegar tokkaríska varð mál málanna fyrir atbeina eldhugans Jör- undar Hilmarssonar. Tokkaríska ævin- týrið á Íslandi Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is Jörundur Hilmarsson (1946-1992), brautryðjandi í tokkarísku. Forystumenn Viðreisnar, sem er klofningsbrotúr Sjálfstæðisflokki, þar sem er að finnabæði fyrrverandi formann og fyrrverandivaraformann þess flokks, hafa á undan- förnum mánuðum og misserum átt í einhverjum erfið- leikum með málflutning sinn og gripið til þess ráðs að lýsa fyrrverandi pólitískum samherjum sem „einangr- unarsinnum“. Þetta hefur mér þótt svolítið skondinn málflutningur vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn, umfram aðra flokka en vissulega í samvinnu við bæði Framsóknar- flokk og Alþýðuflokk, leiddi nýstofnað lýðveldi, inn í al- þjóðasamfélagið, með aðild bæði að samstarfi Norður- landanna, Evrópuríkja og Sameinuðu þjóðanna en auk þess umdeilda aðild (á þeim tíma) að Atlantshafsbanda- laginu og gerð varnarsamnings við Bandaríkin með veru bandarísks varnarliðs hér í 55 ár. Síðar stóðu Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur að aðild Íslands að EFTA, Fríverzlunarbandalagi Evrópu og loks að aðild að EES, Evrópska efnahagssvæðinu. Í ljósi þessarar sögu er erfitt að finna rökin fyrir staðhæfingum á borð við þær að sá flokkur sem átti sér slíka sögu væri samansafn af „einangrunarsinnum“. Nú er skoðanaágreiningur innan Sjálfstæðisflokksins um orkupakka 3. Skoðanaágreiningur í svo stórum flokki er ekki nýtt fyrirbæri. Hann hefur oft komið upp áður og er eðlileg- ur. Skemmst er að minnast skiptra skoðana innan flokksins um frjálst framsal kvótans, sem var að vísu verk vinstri stjórnar, en sá ágreiningur var til lykta leiddur á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2001 þegar flokkurinn gerði auðlindagjald að þætti í grundvallar- stefnu sinni. Þá ber svo við, að merkja má tilhneigingu hjá núver- andi forystusveit Sjálfstæðisflokksins til þess að stimpla andstæðinga orkupakkans innan eigin flokks „einangrunarsinna“ og jafnvel ýja að því að þeir hinir sömu séu ekki nægilega miklir stuðningsmenn „við- skiptafrelsis“. Það er óneitanlega forvitnilegt að fylgjast með þess- um samhljómi í málflutningi þessara tveggja hópa, for- ystumanna Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar! Að fara að tala um „viðskiptafrelsi“ í þessu samhengi er kannski ekki skynsamlegt fyrir þá sem vilja keyra orkupakkann í gegn á Alþingi vegna þess að það tal er vísbending um að þeir sem leggja áherzlu á það vilji að tækifæri verði opnað til að selja orkuna um sæstreng úr landi um leið og þeir segja að engin hætta sé á ferð- um að samþykkja þann pakka, af því að Alþingi hafi í hendi sér ákvörðunarvald í þeim efnum. En þegar málflutningur forystusveitar Sjálfstæðis- flokks er byrjaður að byggjast á því að stimpla hluta eigin flokksmanna sem „einangrunarsinna“ er kominn tími á að gefa þeim hinum sömu góð ráð af heilum hug. Förum ekki inn á þessa braut í umræðum um þetta mál. Saga átaka innan Sjálfstæðisflokksins fyrir nokkr- um áratugum er slík, að það ætti öllum að vera kapps- mál að hún verði ekki endurtekin. Sú saga sýnir að átökum innan flokks fylgja sterkar tilfinningar sem leiða til illsku og persónulegs fjandskapar. Töluverðar upplýsingar um þá sögu er að finna í bók sem út kom fyrir nokkrum árum og heitir Sjálfstæðis- flokkurinn – Átök og uppgjör. Um sögu þeirra kyn- slóða í Sjálfstæðisflokknum, sem nú eru uppnefndar „einangrunarsinnar“ af fyrrverandi og núverandi for- ystumönnum Sjálfstæðisflokks, má m.a. lesa í annarri bók, sem út kom fyrir nokkrum árum og heitir Í köldu stríði – Barátta og vinátta á átakatímum. Greinar- höfundur er höfundur þeirra beggja. Í stað þess að endurtaka mistök fyrri tíma er ástæða til að gera út um þann skoðanaágreining sem upp er kominn í tengslum við orkupakka 3 á þann veg sem hæfir lýðræðislegum stjórnmálaflokki, annars vegar með opnum umræðum og hins vegar með lýðræðis- legum kosningum. Með opnum umræðum er átt við að á vettvangi Sjálfstæðisflokksins fari fram umræður, þar sem tals- menn beggja sjónarmiða koma fram, lýsa sínum skoðunum og taka þátt í umræðum með fundarmönnum. Slíkur fundur var haldinn í Reykja- nesbæ sl. miðvikudagskvöld á vegum Málfundafélags- ins Viljans, sem nokkrir sjálfstæðismenn standa að en er ekki í skipulagslegum tengslum við Sjálfstæðis- flokkinn. Þar lýstum við Diljá Mist Einarsdóttir, aðstoðarkona utanríkisráðherra, ólíkum skoðunum og í kjölfarið urðu líflegar umræður. Þar er á ferð kraftmikil ung kona sem á áreiðanlega eftir að koma við sögu Sjálfstæðis- flokksins og er skemmtilegt að skiptast á skoðunum við. Í kjölfarið á Sjálfstæðisflokkurinn að efna til at- kvæðagreiðslu meðal allra flokksbundinna meðlima sinna, sem teljast vera nokkrir tugir þúsunda, um málið og komast þannig að lýðræðislegri niðurstöðu. Þetta er uppbyggilegri meðferð máls sem ágreiningur er um en að segja pólitíska samherja vera „ein- angrunarsinna“. Varla getur forystusveit Sjálfstæðisflokksins verið andvíg slíkri málsmeðferð – eða hvað? En þetta mál snýst ekki bara um Sjálfstæðisflokkinn og skoðanir manna þar heldur snýr það að þjóðinni allri. Það blasir við að um málefni, sem svo skiptar skoð- anir eru um, á að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu, eins og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, hefur hvatt til. Þá er líklegt að sagt verði: Við búum við fulltrúa- lýðræði. Það er rétt en reynslan sýnir, bæði hér og annars staðar, að veikleikar fulltrúalýðræðisins eru orðnir óþægilega miklir. Þess vegna á að fela þjóðinni sjálfri hið endanlega úrskurðarvald, sem enginn getur deilt um. Góð ráð og … ...tillaga um lausn Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Munurinn á tveimur helstu spá-mönnum jafnaðarmanna á okkar dögum, John Rawls og Tóm- asi Piketty, er, að Rawls hefur áhyggjur af fátækt, en Piketty af auðlegð. Mér finnst skoðun Rawls heilbrigðari. Fátækt er böl, en auð- legð blessun. Ég get sofið á næturn- ar, þótt öðrum gangi vel. Ef til vill var þess ekki að vænta, að Piketty gerði fátækt að neinu að- alatriði, því að mjög hefur dregið úr henni í heiminum síðustu áratugi. Samkvæmt nýlegri skýrslu Alþjóða- bankans bjó röskur þriðjungur mannkyns við sára fátækt eða ör- birgð árið 1990. En aldarfjórðungi síðar, árið 2015, var þessi tala komin niður í einn tíunda hluta mannkyns. Hundruð milljóna Kínverja hafa brotist úr fátækt til bjargálna vegna þess, að Kína ákvað upp úr 1980 að tengjast alþjóðakapítalismanum. En hagkerfið á meginlandi Kína er að- eins eitt af fjórum kínverskum hag- kerfum. Lífskjarabætur hafa orðið miklu meiri í þeim þremur kín- versku hagkerfum, sem reist eru á ómenguðum kapítalisma. Árið 2017 var landsframleiðsla á mann 57.700 Bandaríkjadalir í Singapúr, 46.200 í Hong Kong og 24.300 í Taívan, en aðeins 8.800 í Kína. Og frjálsu kín- versku hagkerfin þrjú sluppu við ofsakommúnisma Maós, en í hungursneyðinni vegna „Stóra stökksins“ í Kína 1958-1962 týndu um 44 milljónir manna lífi. Talnarunur um tekjur mega síðan ekki dylja þá staðreynd, að lífið er almennt orðið miklu þægilegra. Kjör fátæks fólks eru nú jafnvel um margt betri en kjör ríks fólks fyrir tveimur öldum vegna bíla, vatns- lagna, húshitunar og húskælingar, ísskápa, síma, netsambands, ódýrra flugferða og ótal annarra lífsgæða. Venjulegur launþegi vann fyrir 186 ljósastundum (Lumen-stundum) um miðja þrettándu öld, en fyrir 8,4 milljónum árið 2018. Lífið er ekki aðeins orðið betra, heldur lengra. Árið 1751 voru lífs- líkur við fæðingu 38 ár í Svíþjóð, en árið 2016 82 ár. Árið 1838 voru lífs- líkur við fæðingu 33 ár á Íslandi, en árið 2016 hinar sömu og í Svíþjóð, 82 ár. Heilsa hefur batnað og menntun aukist. Árið 1950 hafði um helm- ingur mannkyns aldrei gengið í skóla. Árið 2010 var þessi tala komin niður í einn sjöunda hluta mann- kyns. Allt skiptir þetta máli í um- ræðum um auð og eklu. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Piketty: Tómlæti um fátækt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.