Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 27.04.2019, Blaðsíða 44
G uðrún Karls Helgudótt- ir fæddist 27. apríl 1969 í Hafnarfirði en flutti fljótlega til Reykjavíkur. Hún var búsett um tveggja ára skeið í Hnífsdal 1973-1975 á meðan faðir hennar kenndi við Menntaskólann á Ísafirði. Hún átti heima í Kópa- vogi frá sex ára aldri og ólst þar upp. „Ég var í nokkur sumur í sveit í Stíflisdal í Þingvallasveit hjá móð- urbróður mínum og konu hans, Halldóri Kristjánssyni og Guðrúnu Kristinsdóttur. Þar lærði ég að keyra traktor og vinna hefðbundin sveitastörf. Ég lærði á píanó sem krakki og var í skátunum um tíma og KFUM og K og æfði á skíðum en entist ekki lengi í íþróttum. Það kom ekki fyrr en miklu seinna.“ Guðrún lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, BA-gráðu 1998 og cand.theol.-prófi frá guðfræðideild Háskóla Íslands 2000, og Dr. Min.-gráðu í prédik- unarfræðum frá The Lutheran School of Theology í Chicago 2016. Guðrún flutti til Svíþjóðar eftir útskrift frá Háskóla Íslands árið 2000 og vígðist sem prestur sænsku kirkjunnar í Gautaborgar- stifti 11. janúar 2004 eftir að hafa bætt aðeins við sig í námi áður. Hún var prestur á tveimur stöðum í Svíþjóð; fyrst sem prestur í Näset-söfnuði og síðan sem sóknar- prestur í Lerum-söfnuði. Í apríl 2008 flutti hún aftur til Íslands eft- ir að hafa fengið stöðu prests í Grafarvogskirkju og í apríl 2016 var hún valin sóknarprestur í Grafarvogssókn. „Að mörgu leyti er svipað að vera prestur í Svíþjóð og á Íslandi,“ segir Guðrún aðspurð. „Þetta eru systurkirkjur og því lík- ar í grunninn. Helsti munurinn er stærðin. Svíþjóð er fjölmenn og í stiftinu mínu, Gautaborgarstifti, voru yfir 400 prestar en á Íslandi rúmlega 100 á öllu landinu, svo það er meiri fjölbreytni í helgihaldi þar. Svo er líka annar munur og hann er sá að á Íslandi sinna prestar mun meiri sálgæslu enda leitar fólk hér til presta með flest milli himins og jarðar. Í Svíþjóð leitar fólk að- allega til þeirra með trúarlegar spurningar og í tengslum við stóru stundirnar í lífinu. Ég er í skemmtilegasta starfi sem ég get hugsað mér og einstaklega heppin með samstarfsfólk í söfnuðinum í Grafarvogi.“ Guðrún hefur setið í nokkuð mörgum stjórnum og nefndum á vegum kirkjunnar. Hún sat í stjórn Prestafélags Íslands í sex ár, fyrst sem ritari og síðar sem varafor- maður, hún hefur átt sæti í héraðs- nefnd Reykjavíkurprófastsdæmis eystra um nokkurra ára skeið auk þess sem hún situr í stjórn Félags prestsvígðra kvenna og gegndi um tíma stöðu formanns Æskulýðs- sambands þjóðkirkjunnar svo eitt- hvað sé nefnt. Hún situr á kirkju- þingi og hefur átt sæti þar í tæp fimm ár. Guðrún hefur ritað fjölda greina í Fréttablaðið og Morgun- blaðið, Kirkjuritið og á ýmsum vef- miðlum um trú, kirkju og sam- félagsmál. „Þegar ég er ekki að vinna í kirkjunni þykir mér best að vera með fjölskyldunni, lesa eða hlaupa og stunda aðra líkamsrækt. Ég tók upp á því fyrir um það bil sjö árum að fara að hlaupa langhlaup og kláraði mitt fyrsta heila maraþon síðastliðið haust í Amsterdam auk þess sem ég hef hlaupið hálf- maraþon nokkrum sinnum. Mér finnst hálfmaraþon góð vegalend en ætla að taka eitt maraþon í viðbót og stefni á að fara í Berlínar- maraþonið í september.“ Fjölskylda Eiginmaður Guðrúnar er Einar Örn Sveinbjörnsson, f. 19. maí 1964, prófessor í eðlisfræði við Há- skóla Íslands. Foreldrar Einars: Hjónin Sveinbjörn Björnsson, 28. október 1936, fyrrverandi prófessor í jarðeðlisfræði og rektor Háskóla Íslands, og Guðlaug Einarsdóttir, f. 7. janúar 1936, d. 28. nóvember 2008, bókari. Fyrrverandi eiginmaður Guð- rúnar er Frosti Friðriksson, f. 28. ágúst 1968, leikmyndahönnuður. Börn: 1) Hólmfríður Frosta- Guðrún Karls Helgudóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju – 50 ára Skírn barnabarns Guðrún ásamt Hólmfríði, Bjarka og Viðju sem var skírð 28. janúar 2018. Meiri sálgæsla á Íslandi 44 DAGBÓK MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í 40 ára Una er Kópa- vogsbúi. Hún er með BA-próf í sviðslistum við Goldsmiths College við University of Lond- on og meistarapróf í leikstjórn við Royal Holloway við University of London. Una er leikstjóri og lektor í sviðslistum við Listaháskóla Íslands. Maki: Einar Þór Karlsson, f. 1969, sjálf- stætt starfandi. Börn: Þorleifur, f. 2007, og Þorkell Þorri, f. 2011, stjúpbörn eru Arnaldur, f. 1998, Eyjólfur, f. 2000, og Ólafía Elísabet, f. 2003. Foreldrar: Þorleifur Thorlacius Sveins- son, f. 1951, og Hrafnhildur Jósefsdóttir, f. 1952. Þau eru bús. í Kópavogi. Una Þorleifsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Í dag er rétti dagurinn fyrir þig til að breyta um lífsstíl. Gættu þess samt að ganga ekki of langt í byrjun. Taktu eitt skref í einu. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er erfitt að gera svo öllum líki og reyndar er það sjaldan besti kosturinn. Ekki kasta hæfileikum þínum á glæ. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Samræður við vin geta valdið mikilvægum breytingum í lífi þínu. Er ekki kominn tími til að huga að heilsunni? Hvað með áramótaheitið? 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu aðra um að finna lausn á sín- um málum. Næstu vikur verður þú út um hvippinn og hvappinn. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Það gengur svo mikið á í kringum þig að þú þarft að gæta þess að verða ekki stressinu að bráð. Vináttan skiptir þig miklu máli og vitneskjan um það að einhver láti sér annt um þig. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ekki bregðast harkalega við, þótt þér þyki tilboð félaga þíns út í hött. Leyfðu sannleikanum að koma upp á yfirborðið og afgreiddu svo málin þannig að þú getir haldið ótrauð/ur áfram. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert einfari í eðli þínu, en þarft í starfi að eiga samskipti og samstarf við aðra. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Taktu þér tíma til þess að meta stöðu þína og kanna hvort þú ert á réttri leið. Fáðu vini með þér í ferðalag. Sígandi lukka er best. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Vertu á verði gagnvart tungu- lipru fólki. Efldu sjálfstraust þitt og leitaðu svara við spurningum sem brenna á þér. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það er meiriháttar áætlun í gangi í vinnunni, og þú þarft ekki að stjórna öllu svo hún gangi upp. Reyndu að komast að því hvað hrjáir ástvin. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Láttu ekki hugfallast þótt þér sýnist mörg ljón á veginum. Mælirinn er fullur gagnvart einhverjum nákomnum. Teldu upp að tíu áður en þú opnar munn- inn. 19. feb. - 20. mars Fiskar Náinn vinur eða starfsfélagi gæti viljað hjálpa þér í dag. Þú gerir oft ráð fyrir hinu versta, hvernig væri að breyta því og reikna með hinu besta? 30 ára Hallgrímur er úr Grafarvogi en býr í Hafnarfirði. Hann er með BS-próf í íþrótta- og heilsufræði frá Há- skólanum í Dalarna í Svíþjóð og er í meist- aranámi í íþrótta- kennslufræði við HÍ. Hann er yfirþjálfari sunddeildar Fjarðar og vinnur á leikskól- anum Vesturkoti. Maki: Kristín Þorvaldsdóttir, f. 1990, sjúkraliði á Landspítalanum. Börn: Rúnar Pétur, f. 2015, og Ýlfa Aþena, f. 2018. Foreldrar: Hörður Magnússon, f. 1957, strætóbílstjóri, og Elísabet Þorsteins- dóttir, f. 1959, kennari í Klettaskóla. Þau eru bús. í Reykjavík. Hallgrímur Þór Harðarson Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.