Morgunblaðið - 27.04.2019, Síða 47
ÍÞRÓTTIR 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
Það væri skemmtilegt fyrir
alla sem fylgjast með íslenskum
fótbolta ef það gengi eftir að Kári
Árnason fengi að koma til liðs við
Víkinga áður en félagaskipta-
glugginn lokast 15. maí. Þar með
væru þrír byrjunarliðsmenn úr ís-
lenska landsliðinu komnir í úr-
valsdeildina hér heima (sem
vissulega er kannski ekki frábær
þróun fyrir landsliðið) og um leið
þrjár hetjur úr hópnum sem lík-
lega hefur glatt þjóðina mest
allra síðustu ár.
Ég spjallaði við Kára um
þennan möguleika eftir landsleik-
inn í París fyrir mánuði og þá
sagði hann nánast útilokað að
hann kæmi til Víkings fyrr en í
júlí. Kári er samningsbundinn
Genclerbirligi í Tyrklandi og gildir
samningurinn út júní. Á þessum
mánuði sem liðinn er hefur Genc-
lerbirligi hins vegar komið sér í
mjög góða stöðu á toppi tyrk-
nesku 1. deildarinnar, níu stigum
á undan liðinu í 3. sæti en tvö
efstu liðin komast upp um deild.
Fjórir leikir eru eftir og hugsan-
lega tryggja Kári og félagar sér
sæti í efstu deild strax á mánu-
daginn.
Eini leikur Genclerbirligi eftir
15. maí er í lokaumferðinni í Tyrk-
landi, 18. maí. Mjög góðar líkur
eru á að liðið verði þá búið að
tryggja sig upp í úrvalsdeild. Væri
þá eitthvað því til fyrirstöðu að
Kári fengi sig lausan frá félaginu
og kæmi til Víkings strax? Félög-
in hlytu að geta komist að ein-
hverju samkomulagi sem allir
högnuðust á.
Það tókst alla vega þegar Eið-
ur Aron Sigurbjörnsson kom til
Vals vorið 2017. Valsmenn náðu
samkomulagi við Holstein Kiel
sem var búið að tryggja sig upp í
2. deild í Þýskalandi fyrir 15. maí.
Hafi það samkomulag kostað Val
einhverjar krónur þá gráta þeir
upphæðina tæplega í dag, tveim-
ur Íslandsmeistaratitlum ríkari.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
FÓTBOLTI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í
knattspyrnu 2019, sem nú nefnist
Pepsi Max-deildin, verður lokið
laust fyrir klukkan tíu í kvöld. Hún
hófst í gærkvöld með viðureign Vals
og Víkings og lýkur í Garðabæ þar
sem Stjarnan tekur á móti KR á
óvenjulegum leiktíma, á laugardags-
kvöldi, í leik sem tvímælalaust er sá
áhugaverðasti í fyrstu umferðinni.
Hinir fjórir leikirnir fara fram um
miðjan dag og þó enn sé aðeins 27.
apríl verður spilað á fjórum grasvöll-
um í þessari fyrstu umferð, Grinda-
víkurvelli, Hásteinsvelli í Vest-
mannaeyjum, Kaplakrikavelli og á
Akranesvelli sem kenndur er við
Norðurál.
Grindavík og Breiðablik
Blikar sóttu þrjú stig til Grinda-
víkur í fyrra með 2:0 sigri og eru lík-
legir til að endurtaka leikinn. Eftir
að hafa misst sterka leikmenn í vet-
ur hafa öflugir menn komið í græna
búninginn í í staðinn á síðustu dög-
um og vikum, síðast Höskuldur
Gunnlaugsson. Hinn 43 ára gamli
Gunnleifur Gunnleifsson fékk lang-
fæst mörk allra á sig í fyrra og er
líklegur til að halda sínu striki með
sterka varnarlínu fyrir framan sig.
Grindavík er með talsvert breytt
lið sem á pappírunum virðist veikara
en í fyrra en það verður fróðlegt að
sjá hvernig nýi hollenski framherj-
inn Patrick N’Koyi plumar sig suður
með sjó. Ef hann reynist nýr Andri
Rúnar gæti Grindavíkurliðið hrist af
sér hrakspárnar.
Spáin: Breiðablik sigrar 2:0.
ÍBV og Fylkir
Fáir átta sig á því hvernig Eyja-
menn muni mæta til leiks í ár eftir
miklar breytingar á liðinu þar sem
m.a. er að finna sex nýja erlenda
leikmenn, þrjá þeirra frá Portúgal,
heimalandi Pedro Hipólito þjálfara.
Þá er Jonathan Glenn kominn aftur
„heim“ og reynir að fylla skarð
Gunnars Heiðars Þorvaldssonar.
Fylkir er líka með breytta fram-
línu þar sem Hollendingurinn Geoff-
rey Castillion og Eistinn Tristan
Koskor gætu gert góða hluti fyrir
framan þrautreynda miðjumenn
liðsins.
Þetta er líkast til óútreiknanleg-
asti leikur umferðarinnar en þrjú
stig á hvorn veginn sem væri myndu
gefa sigurliðinu fljúgandi start á
þessu Íslandsmóti.
Spáin: Jafntefli, 1:1.
FH og HK
Fyrirfram ætti þetta að vera sá
leikur sem auðveldast er að spá um í
fyrstu umferðinni. FH-ingar með
alla sína reynslu og styrk ættu að
vera númeri of stórir fyrir nýliðana
úr Kópavogi. Til marks um
reynsluna í liði FH voru fjórir leik-
manna liðsins í dag líka með þegar
félögin mættust síðast í deildinni ár-
ið 2008, þeir Davíð Þór Viðarsson,
Atli Guðnason, Hjörtur Logi Val-
garðsson og Björn Daníel Sverris-
son. Reyndar var Hörður Árnason
þá einnig í liði HK.
Allt annað en öruggur sigur FH
kæmi á óvart enda þótt tvísýnt sé
með þátttöku Davíðs og Stevens
Lennons vegna meiðsla.
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálf-
ari HK, stýrir liði í efstu deild í
fyrsta skipti og fyrir hann og læri-
sveina hans gerast verkefnin vart
erfiðari en að hefja Íslandsmótið í
Kaplakrika.
Spáin: 3:1 fyrir FH.
ÍA og KA
Eftir flugeldasýningu í mörgum
leikjum í vetur verður fróðlegt að sjá
hvernig Skagamenn koma inn í Ís-
landsmótið. Langt er síðan nýliðar
hafa verið taldir fyrirfram eiga jafn
raunhæfa möguleika á að komast í
efri hluta deildarinnar. Skagaliðið
hefur verið mjög frískt og kraftmik-
ið, pressað andstæðingana óhikað,
og miðað við það verður erfitt fyrir
alla að mæta því. Jóhannes Karl
Guðjónsson er að byggja upp áhuga-
vert lið.
Hjá KA hafa verið mikil umskipti
og ekki er gott að átta sig á því
hvernig Akureyrarliðið kemur inn í
mótið. Erlendir leikmenn sem hafa
sett svip sinn á liðið eru farnir en öfl-
ugir heimamenn eins og Haukur
Heiðar Hauksson og Almarr
Ormarsson eru komnir norður og
félagshjartað því eflaust enn sterk-
ara en áður.
Spáin: ÍA sigrar 2:1.
Stjarnan og KR
Þetta er stórleikur umferðarinnar
og hann fer fram á áhugaverðum
leiktíma en flautað verður til leiks í
Garðabæ klukkan 20 í kvöld, á
laugardagskvöldi.
Stjarnan og KR eru tvö af þeim
liðum sem fullvíst er talið að verði í
baráttunni í Evrópuhlutanum,
a.m.k. um Evrópusæti. Bæði lið eru
gríðarlega vel mönnuð og með
sterka menn á varamannabekkjum,
og hafa hvort um sig gæði til þess
veita Valsmönnum verðuga keppni á
toppnum í ár.
KR-ingar virtust komnir skrefinu
lengra á undirbúningstímabilinu en
fyrir bæði lið gildir að þetta er einn
af þeim leikjum sem þau verða að
vinna til að ná markmiðum sínum.
Liðin mættust í Garðabæ í upp-
hafi mótsins í fyrra og þar unnu KR-
ingar góðan 3:2 sigur þar sem Atli
Sigurjónsson skoraði glæsilegt
sigurmark rétt fyrir leikslok. KR
hefur gengið vel á Samsung-
vellinum síðustu ár og unnið þar
þrisvar í deildinni á síðustu fjórum
árum.
Spáin: Jafntefli, 2:2, í líflegum
leik.
Lýkur á kvöldskemmtun
Stjarnan og KR ljúka fyrstu umferðinni í flóðljósunum í Garðabæ í kvöld
Spennandi Skagalið byrjar á heimavelli Fjórir leikir á grasvöllum í dag
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Garðabær Þorsteinn Már Ragnarsson úr Stjörnunni og Pálmi Rafn Pálma-
son úr KR mætast í lokaleik fyrstu umferðarinnar í kvöld.
Landsliðskonurnar Anna Björk
Kristjánsdóttir og Berglind Björg
Þorvaldsdóttir horfðu á eftir hol-
lenska meistaratitlinum í fótbolta í
hendur Twente í gærkvöld. Twente
vann leik liðanna 3:2 með sigur-
marki í uppbótartíma. Þar með
munar sex stigum á liðunum fyrir
lokaumferðina en PSV er í 3. sæti.
Anna og Berglind komu báðar
inn á í seinni hálfleik í gær. Þetta
var kveðjuleikur Berglindar sem
heldur nú úr láni heim til Breiða-
bliks. Anna er með samning við
PSV til loka leiktíðarinnar.
Titill í ranga átt í
kveðjuleiknum
Ljósmynd/PSV
Heim Berglind B. Þorvaldsdóttir
leikur með Breiðabliki í sumar.
Oddur Gretarsson lagði að vanda
sitt af mörkum þegar Balingen
vann Dormagen í þýsku B-deildinni
í handbolta í gærkvöld, 32:23.
Oddur var einn af markahæstu
mönnum Balingen með 6 mörk.
Balingen er áfram á toppi deild-
arinnar með 50 stig eftir 31 umferð.
Liðið er fjórum stigum frá 3. sæti
þegar sjö umferðir eru eftir, en tvö
efstu lið deildarinnar komast upp í
efstu deild. Oddur, sem er 28 ára
gamall, hefur leikið með Balingen
frá sumrinu 2017 og gerði í vetur
nýjan samning við félagið til 2021.
Oddur færist enn
nær efstu deild
Ljósmynd/Balingen
Sex Oddur Gretarsson skoraði sex
mörk í sigri Balingen í gærkvöld.