Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 49
Liverpool hefur unnið tíu leiki í röð, þegar úrslit í öllum keppnum eru talin, eftir að liðið vann 5:0-stórsigur á föllnu botnliði Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Með sigrinum komst Liverpool aftur á topp deildarinnar en Manchester City á til góða útileik gegni Jóhanni Berg Guðmundssyni og félögum á sunnudaginn. Liverpool hefur nú safnað 91 stigi í úrvalsdeildinni og sá stigafjöldi hefur oft dugað til þess að landa meistaratitlinum. Árið 2004 vann lið Arsenal það einstaka afrek að verða Englandsmeistari án þess að tapa leik, en „hinir ósigrandi“ söfnuðu þó ekki eins mörgum stigum og Liver- pool nú, heldur 90 stigum. Liverpool er sömuleiðis nú þegar komið með 12 stigum meira en Manchester United fékk þegar liðið vann þrenn- una árið 1999, og liðið á þó enn tvo leiki eftir. Mohamed Salah og Sadio Mané skoruðu tvö mörk hvor fyrir Liver- pool í gær, eftir að Naby Keita kom liðinu yfir eftir 15 sekúndna leik. Næsti leikur Liverpool er við Barce- lona á miðvikudag. sindris@mbl.is Fleiri stig en ósigrandi liðið AFP Góðir Mohamed Salah og Naby Keita voru báðir á skotskónum í gær.  Liverpool á toppinn með stórsigri Eitt ogannað ÍÞRÓTTIR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019  Hákon Örn Hjálmarsson, körfu- knattleiksmaður úr ÍR, mun leika með liði í efstu deild bandaríska há- skólakörfuboltans næsta vetur. Hákon, sem kominn er með ÍR í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins, hefur samið um að fara í Binghamton-háskólann í New York-ríki. Þar mun þessi tvítugi leik- maður leika með Binghamton Bear- cats í American East-riðlinum. Hákon skoraði 10,8 stig að meðaltali í úrvals- deildinni í vetur, tók 3,2 fráköst og átti 3,1 stoðsendingu. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá honum í úr- slitakeppninni en hann hefur jafnað sig af þeim.  Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að meiðsli framherj- ans Roberto Firmino séu „ekkert stór- mál“ þó að þau hafi orðið til þess að Firmino var ekki í hópnum sem mætti Huddersfield í gærkvöld í ensku úr- valsdeildinni. Firmino meiddist í vöðva á æfingu á fimmtudag en vonir standa til þess að hann geti mætt Barcelona í Meistaradeild Evrópu á miðvikudag.  KR hefur fengið til sín markvörðinn Birnu Kristjáns- dóttur frá Stjörn- unni og gerði hún samning við félag- ið sem gildir út knattspyrnu- tímabilið sem brátt hefst. Birna, sem er 33 ára gömul, lék 10 leiki með Stjörnunni í fyrra eftir að hafa verið hjá Grand Bodö í Noregi í þrjú ár. Birna er annar leikmaðurinn sem KR fær frá Stjörnunni fyrir tímabilið því í vetur fór sóknarmaðurinn Guðmunda Brynja Óladóttir sömu leið. Fyrir er KR með markvörðinn Ingibjörgu Valgeirs- dóttur sem er 21 árs gömul og varði mark liðsins í fyrra.  HK/Víkingur hefur sömuleiðis gert samning við markvörð, hina banda- rísku Audrey Baldwin, sem gildir út komandi leiktíð. Baldwin lék með Keflavík í 1. deild sumarið 2015 og með Fylki í efstu deild 2016. Hún er 27 ára gömul og lék síðast með FC Ramt HaSharon í Ísrael.  Haukur Benediktsson er aðstoðar- þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í knatt- spyrnu, ekki Ómar Jóhannsson, sem er markvarðaþjálfari. Rangt var farið með þetta í blaðinu Fótboltinn 2019 sem fylgdi Morgunblaðinu í gær.  Brasilíumaðurinn Neymar missir af þremur af sex leikjum PSG í riðla- keppni Meistaradeildar Evrópu í knatt- spyrnu á næstu leiktíð, verði hann áfram í herbúðum félagsins. Neymar var í gær úrskurðaður í þriggja leikja bann frá Evrópukeppnum félagsliða vegna ummæla í garð dómara á sam- félagsmiðlum eftir að PSG féll út úr Meistara- deildinni gegn Man- chester United í vetur. Neymar spilaði ekki leikinn, vegna meiðsla, en lét hafa eftir sér á In- stagram að myndbands- dómgæsla í leiknum hefði verið hneyksli og að dómararnir skildu ekki fótbolta. Á HLÍÐARENDA Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Það var mikið fjör er Íslandsmeist- arar Vals og Víkingur Reykjavík mættust í fyrsta leik sumarsins í Pepsi Max-deild karla í fótbolta í gærkvöldi. Að lokum skiptu liðin sex mörkum bróðurlega á milli sín og urðu lokatölur því 3:3. Fyrir leik var Valsmönnum spáð öruggum sigri af flestum, en það gekk illa að skapa færi á móti skipu- lögðu og skemmtilegu liði Víkinga. Gestirnir úr Fossvoginum freistuðu þess að sækja hratt þegar tækifæri gáfust og spilaðist fyrri hálfleikur- inn fullkomlega fyrir Víkinga. Stað- an í hálfleik var 1:0, Víkingi í vil, þar sem markið kom úr skyndisókn og Valsmenn fengu varla færi. Teið í hálfleik hefur farið vel í Valsmenn því þeir komu með meiri kraft inn í seinni hálfleikinn og jöfn- uðu verðskuldað snemma í honum, en það gerði Emil Lyng í sínum fyrsta leik með Val. Einhver lið hefðu þá bakkað vel og reynt að sigla með eitt stig heim í höfn, en það var ekki á dagskránni hjá Vík- ingum. Þeir héldu áfram að sækja þegar færi gáfust og varamaðurinn Logi Tómasson skoraði mark sem á möguleika á að vera kosið það falleg- asta þegar upp er staðið. Þótt mark- ið hafi komið í fyrstu umferð verður enginn búinn að gleyma því í lok móts. Logi, sem er fæddur árið 2000, lék glæsilega á tvo varnarmenn og skilaði boltanum upp í samskeytin með fallegu skoti. Valsmenn tóku aftur við sér og jöfnuðu skömmu síðar eftir þunga sókn. Birkir Már Sævarsson skoraði auðveldlega af stuttu færi. Víkingur komst hins vegar yfir í þriðja skipti á 88. mínútu þegar Sölvi Geir Otte- sen skallaði í netið af stuttu færi. Að- eins mínútu síðar jafnaði hins vegar Gary Martin og lokatölur urðu 3:3. Bæði lið eru eflaust svekkt með úrslitin. Víkingar eru svekktir að hafa komist yfir þrisvar en aðeins náð í eitt stig og Valsmenn svekktir að vinna ekki fyrsta leik á heima- velli. Fyrst og fremst gefur leikurinn afar góð fyrirheit fyrir deildina í sumar. Fullt af mörkum, þar af eitt ótrúlega fallegt, óvænt úrslit og mik- ið fjör. Valsmenn eru enn þá að spila sig saman og er sóknarlínan þeirra ný frá því á síðustu leiktíð. Gary Martin og Emil Lyng skoruðu báðir í fyrsta leik, sem er jákvætt en Kaj Leo í Bartalsstovu átti alls ekki góðan leik. Miðjumenn Vals spiluðu sóknarleikinn vel, en áttu oft erfitt þegar ungir og sprækir Víkingar sóttu hratt. Miðverðirnir Orri Sig- urður Ómarsson og Eiður Aron Sigurbjörnsson áttu svo mjög erfitt. Víkingsliðið sem Arnar Gunn- laugsson er með í höndunum er spennandi. Það eru margir ungir og flottir leikmenn, sem voru óhræddir að fara á einn erfiðasta útivöll lands- ins. Með þeim eru reynsluboltar á borð við Sölva Geir Ottesen, Þórð Ingason og Halldór Smára Sigurðs- son og er það skemmtileg blanda. Víkingar verða í fínum málum í sum- ar haldi þeir áfram að spila líkt og í gær. Valsmenn þurfa hins vegar að slípa sinn leik ætli þeir sér Íslands- meistaratitilinn þriðja árið í röð. Fyrsti leikur gefur afar góð fyrirheit fyrir sumarið  Sex marka jafntefli Vals og Víkings  Valsmenn jöfnuðu þrisvar í fjörugum leik Morgunblaðið/Eggert Markasúpa Sölvi Geir Ottesen rís hæst í fagnaðarlátum Víkinganna á Hlíðarenda í gær þar sem Sölvi skoraði eitt sex marka í frábærum leik. Origo-völlurinn, Pepsi Max-deild karla, föstudag 26. apríl 2019. Skilyrði: Milt og gott veður. Gervi- grasvöllur. Skot: Valur 7 (4) – Víkingur 8 (5). Horn: Valur 3 – Víkingur 5. Valur: (4-3-3) Mark: Anton Ari Einarsson. Vörn: Birkir Már Sævarsson, Orri Sigurður Óm- arsson, Eiður Aron Sigurbjörnsson, Bjarni Ólafur Eiríksson (Garðar Gunnlaugsson 88). Miðja: Lasse Petry, Einar Karl Ingvarsson, Hauk- ur Páll Sigurðsson (Ólafur Karl Fin- Valur – Víkingur R. 3:3 sen 23). Sókn: Emil Lyng (Kristinn Ingi Halldórsson 77), Gary Martin, Kaj Leo i Bartalsstovu. Víkingur R.: (4-5-1) Mark: Þórður Ingason. Vörn: Davíð Örn Atlason, Halldór Smári Sigurðsson, Sölvi Geir Ottesen, Dofri Snorrason (Logi Tómasson 39). Miðja: Ágúst Eðvald Hlynsson, Júlíus Magnússon, Viktor Andrason, Erlingur Agnarsson, Rick ten Voorde (Örvar Eggertsson 83). Sókn: Nikolaj Hansen. Dómari: Pétur Guðmundsson – 7 Áhorfendur: 1.386. 0:1 Nikolaj Hansen 19. skor-aði af stuttu færi eftir sendingu Rick ten Voorde. 1:1 Emil Lyng 55. lyfti bolt-anum yfir Þórð eftir send- ingu Einars. 1:2 Logi Tómasson 75. fór illameð tvo Valsmenn og skor- aði með fallegu skoti upp í sam- skeytin. 2:2 Birkir Már Sævarsson 79.í autt markið af stuttu færi eftir að Þórður varði frá Kristni Inga. 2:3 Sölvi Geir Ottesen 88.skallaði í netið af stuttu færi eftir hornspyrnu Loga. 3:3 Gary Martin 89. skot ístöng og inn rétt utan teigs. I Gul spjöld:Kaj Leo (Val) 35. (brot), Hansen (Víkingi) 45. (brot), Ólafur (Val) 45. (brot), Birkir (Val) 71. (brot) Viktor (Víkingi) 82. (brot) M Birkir Már Sævarsson (Val) Einar Karl Ingvarsson (Val) Gary Martin (Val) Emil Lyng (Val) Halldór Smári Sigurðsson (Víkingi) Sölvi Geir Ottesen (Víkingi) Júlíus Magnússon (Víkingi) Logi Tómasson (Víkingi) Rick ten Voorde (Víkingi)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.