Morgunblaðið - 27.04.2019, Side 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019
Rússneska leikskáldið Ljúd-míla Razumovskaja skrif-aði leikritið Kæra Jelenaað beiðni menntamála-
yfirvalda árið 1980. Í beiðninni fólst
að hún ætti að skrifa um ungmenni í
vanda. Razumovskaja valdi að skrifa
um fjögur ungmenni sem kvöld eitt
heimsækja Jelenu, umsjónar-
kennara sinn, undir því yfirskini að
samgleðjast henni á afmælisdegi
hennar. Fljótlega kemur í ljós að til-
gangurinn er allt annar. Ungmennin
eru komin til að fá hjá henni lykil að
skáp sem geymir prófaúrlausnir
dagsins, því þau hyggjast skipta
vanbúnum svörum sínum út með
réttum lausnum. Þau sjá svindlið
sem einu leiðina til að tryggja sér
betra brautargengi í harðri lífsbar-
áttunni. Nemendurnir reyna fyrst
að kaupa kennara sinn með gjöfum,
því næst að höfða til samkenndar
hennar, en þegar það bregst líka
tekur ofbeldið við með þeim afleið-
ingum að nær engin verða söm eftir.
Leikritið var frumsýnt í Tallinn í
Eistlandi 1981 og í framhaldinu sett
upp í Sankti Pétursborg 1982 og víð-
ar í Sovétríkjunum við gríðarlegar
vinsældir. Ári síðar ákváðu stjórn-
völd að banna verkið þar sem það
þótti dulin gagnrýni á ríkjandi
stjórnskipulag, en flestöll leikrit
Razumovskaju munu eiga þessa
gagnrýni sameiginlega. Banninu á
Kæru Jelenu var ekki aflétt í heima-
landi höfundar fyrr en 1987 með um-
bótastefnu Míkhaíls Gorbatsjov sem
nefnd er perestrojka.
Kæra Jelena, sem rataði hingað á
svið 1991 í eftirminnilegri upp-
færslu, mun vera vinsælasta og mest
leikna leikrit Razumovskaju. Vin-
sældir verksins koma ekki á óvart
því það býr yfir sprengikrafti, mögn-
uðum átökum kynslóða um gildis-
mat, hugrekki, hugsjónir og siðferði
sem snertir djúpt við áhorfendum. Í
uppfærslu Borgarleikhússins í leik-
stjórn Unnar Aspar Stefánsdóttur
er farin sú leið að færa verkið úr
ritunartíma sínum og stað til óskil-
greindra Vesturlanda nútímans með
það að markmiði að færa verkið nær
íslenskum áhorfendum. Með þessari
færslu tapast hins vegar ákveðinn
kjarni verksins. Í stað þess að ung-
mennin séu að ráðast að hugmynda-
fræði kennara síns, sem trúir því
sjálf að dygðugt líferni tryggi far-
sæld í þjóðfélagi sem markað er af
kúgun og skorti og ungmennin eru
afsprengi af, virka þau fremur eins
og heimtufrekir krakkar á tímum
taumlausrar neysluhyggju. Dæmi
um þetta er þegar Lilja ber saman
raunveruleikann sem hún þekkir,
þreyttar konur sem búa við skort og
ferðast þess vegna með strætó, og
konurnar sem hana dreymir um að
tilheyra sem ferðast um í silfurlitum
jeppum og klæðast pelsum og gulli.
Á tímum loftslagsbreytinga hafa
samgöngumátarnir tveir sem hún
nefnir hins vegar allt aðra sögn en
þeir höfðu í Sovétríkjunum sálugu.
Litla sviðið hefur á umliðnum
misserum reynst afar gjöfult leik-
rými, enda býður það upp á þann
lúxus að breyta megi uppstillingunni
með margvíslegum hætti til að þjóna
efniviðnum sem best. Kæra Jelena
gerist í einu rými nánast í rauntíma
og því var vel til fundið að sleppa
hléinu. Leikstjórinn velur að láta
áhorfendur sitja hringinn í kringum
sviðið sem staðsett er í miðjunni, þó
leikurinn berist stöku sinnum aftur
fyrir áhorfendur. Þau uppbrot virk-
uðu hins vegar ekki vel innan hins
natúralíska ramma verksins. Þannig
var beinlínis sérkennilegt að ung-
mennin skyldu gagngert skilja eitt
herbergi eftir þegar þeir umturna
lítilli íbúð Jelenu í leit að lyklinum
mikilvæga. Jafnframt var óljóst
hvað hindraði Jelenu í því að flýja af
vettvangi þegar útgönguleiðin var
augljóslega greið.
Í leikskránni kemur fram að
markmiðið með því að raða áhorf-
endum hringinn í kringum leikrýmið
hafi annars vegar verið að skapa
nánd og tilfinningu fyrir innilokun
og hins vegar að vísa í rómverskt
hringleikahús þar sem áhorfendur
verða nánast meðsekir þegar þeir
verða vitni að hrikalegri atburða-
rásinni. Það sem vinnst með nánd-
inni tapast aftur á móti í mjög erf-
iðum sjónlínum. Sú ákvörðun að
staðsetja leikinn í miðjunni kallar á
að leikarar séu á sífelldri hreyfingu
til þess að áhorfendur missi ekki af
andlitstjáningu þeirra og samleik,
ekki síst í verki sem byggist alfarið á
dýnamíkinni og valdasamspili per-
sónanna. Í uppfærslu Borgar-
leikhússins eru heilu og hálfu sen-
urnar hins vegar leiknar í mikilli
kyrrstöðu sem þýðir að áhorfendur
sjá iðulega aðeins framan í hluta
leikaranna og baksvip hinna. Fyrir
vikið glatast mikilvægur samleikur
og þar með skilningur áhorfenda á
því sem fram fer.
Leikmynd og búningar Filippíu I.
Elísdóttur þjóna vel þeirri tilfærslu
sem orðið hefur í tíma og rúmi. Íbúð
Jelenu var látlaus, en smekkleg.
Búningar þjónuðu flestum per-
sónum vel, hvort heldur voru felulit-
ir Jelenu eða mjallhvítir skór Valda
sem undirstrikuðu vel ríkidæmi
hans. Eina undantekningin birtist í
klæðnaði Lilju sem stakk nokkuð í
stúf. Þröngt leikrýmið minnkaði til
muna eftir húsleit ungmennanna og
greinilegt var að leikarar þurftu að
gæta fóta sinna til að hrasa ekki um
allt draslið á gólfinu.
Halldóra Geirharðsdóttir fer með
hlutverk Jelenu, en í hlutverkum
ungmennanna eru Aron Már Ólafs-
son, Haraldur Ari Stefánsson, Sig-
urður Þór Óskarsson og Þuríður
Blær Jóhannsdóttir. Sigurður Þór
fór á kostum sem einfeldningurinn
Viktor sem vill ekki gera flugu mein,
en lætur samt svo auðveldlega spila
með sig og mun án vafa drekka sig
frá öllu áður en langt um líður. Frá
höfundarins hendi er augljóst að
Viktori er ætlað það hlutverk að
létta stemninguna á lykilstundum og
gerði Sigurður Þór það með miklum
ágætum.
Haraldur Ari var sannfærandi í
hlutverki Péturs sem reynir eftir
fremsta megni að bera sig manna-
lega og virðist næstum skilyrðis-
laust tilbúinn að hlýða skipunum
þeirra sem taka sér valdið. Áhrifa-
ríkt var að fylgjast með angist hans
þegar honum verður ljóst að hann
neyðist til að velja milli þess að
svíkja stúlkuna sem hann elskar eða
vininn sem hann hefur lagt allt sitt
traust á. Þuríður Blær sem fer með
hlutverk Lilju hafði að vanda afar
góða nærveru. Henni tókst vel að
sveiflast milli kaldra röksemda sinna
um hvað hún þyrfti að gera til að
komast af í þjóðfélagi sem skeytir
lítt um þá sem minna mega sín og
þeirrar örvæntingar sem sú árás
sem hún verður fyrir í íbúðinni
framkallar.
Aron Már fer með hlutverk Valda
sem hefur sérstöðu í hópi ungmenn-
anna. Ólíkt hinum þremur þarf hann
ekki að svindla á prófinu þar sem
hann er í góðum málum og faðir
hans þegar búinn að tryggja honum
háskólavist erlendis. Til að byrja
með segist hann aðeins taka þátt í
heimsókninni vegna samúðar með
vinum sínum sem séu hæfileikafólk
sem ella verði undir í lífinu. Fljót-
lega kemur hins vegar í ljós að hann
sér heimsóknina sem kærkomna
prófraun á eigin viljastyrk og stjórn-
kænsku. „Styrkur“ Valda í baráttu
hans við Jelenu felst í því að honum
er ekkert heilagt og hann er
reiðubúinn að beita öllum meðölum
siðleysingjans, hvort heldur er að
ljúga í formi smjaðurs eða ráðskast
með aðra í eigin þágu í krafti óbil-
andi sjálfstrausts. Skortur siðleys-
ingjans á samvisku og samkennd
með öðrum gerir þá einmitt að sér-
lega hættulegum andstæðingum.
Aron Már nýtti vel sakleysislegt
yfirbragð sitt til að spila með aðrar
persónur verksins. Þröngt sviðs-
rýmið gerði honum hins vegar nokk-
uð erfitt fyrir, enda ótrúverðugt að
hægt væri að hvíslast á í svo miklu
návígi við Jelenu án þess að hún
tæki eftir því og brygðist við. Sú
ákvörðun að láta Valda verða von-
svikinn með vini sína og nánast reið-
an undir lok verks virkaði sérkenni-
lega í ljósi þess að siðleysingjanum
tókst ætlunarverk sitt fullkomlega
og var í raun aldrei í neinum vafa um
það hversu miklir aumingjar „vinir“
hans væru.
Titilpersóna leikritsins er sú per-
sóna sem fer í lengsta ferðalagið til-
finningalega séð. Hún fer frá því að
vera undrandi og glöð yfir í algjört
vonleysi og uppgjöf með viðkomu í
reiði, vonbrigðum, hræðslu og
vantrú. Halldóra náði mjög góðum
tökum á reiði Jelenu og fordæmingu
á framkomu ungmennanna fjögurra.
Rýnir prísar sig sæla að hafa setið
réttum megin í salnum til að sjá
framan í Halldóru þegar Jelena
endanlega gerir sér grein fyrir að
lífsstarf hennar hefur mistekist, því
viðbrögð hennar voru óhuggulega
áhrifarík. Hins vegar hefði þurft að
huga betur að valdasamspili Jelenu
við nemendur sína, ekki síst Valda. Í
túlkun Halldóru var Jelena frá
fyrstu stundu alltof vör um sig gagn-
vart nemendunum og hafnandi á
góðvild þeirra líkt og hún grunaði
þau um græsku, sem aftur grefur
undan hvörfunum sem í vændum
eru. Til að skapa sem mesta spennu
þurfa áhorfendur helst að vera búnir
að sjá í gegnum ungmennin áður en
kennarinn gerir það.
Eitt lykilþema leikritsins er vilja-
og siðferðisstyrkur persónanna. Það
hefði vafalítið þjónað verkinu betur
ef áhorfendur hefðu fyrr í uppfærsl-
unni getað trúað því að ungmennin
væru raunverulega fær um að brjóta
mótstöðu Jelenu á bak aftur, því þá
hefði styrkur hennar komið meira á
óvart sem aftur hefði skapað dýna-
mískari spennu við endalokin. Sú
ákvörðun að bæta nýju niðurlagi við
enda verksins tók um of fókusinn frá
þöglum örlögum titilpersónunnar.
Þrátt fyrir framangreinda ann-
marka er uppfærsla Borgarleik-
hússins á Kæru Jelenu áhugaverð
og vel þess virði að sjá. Hér er á
ferðinni einstaklega gott leikrit sem
rannsakar lykilspurningar á borð við
hvort og hvenær við höfum efni á
góðvild og hvort manneskjan geti lif-
að af sé hún rænd hugsjónum sínum.
Hvers konar fólk höfum við alið upp?
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Hugsjónir „Hér er á ferðinni einstaklega gott leikrit sem rannsakar lykilspurningar á borð við hvort og hvenær við
höfum efni á góðvild og hvort manneskjan geti lifað af sé hún rænd hugsjónum sínum,“ segir í rýni um Kæru Jelenu.
Borgarleikhúsið
Kæra Jelena bbbnn
Eftir Ljúdmílu Razumovskaju. Íslensk
þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir og
Kristín Eiríksdóttir. Leikstjórn: Unnur
Ösp Stefánsdóttir. Dramatúrg: Hrafn-
hildur Hagalín. Leikmynd og búningar:
Filippía I. Elísdóttir. Lýsing: Björn Berg-
steinn Guðmundsson. Tónlist: Valgeir
Sigurðsson. Hljóð: Þórður Gunnar Þor-
valdsson. Leikgervi: Elín Gísladóttir.
Leikarar: Aron Már Ólafsson, Halldóra
Geirharðsdóttir, Haraldur Ari Stefáns-
son, Sigurður Þór Óskarsson og Þuríður
Blær Jóhannsdóttir. Frumsýning á Litla
sviði Borgarleikhússins 12. apríl 2019.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
Landsins mesta
úrval af trommum
í öllum verð�lokkum.
Hjá okkur færðu
faglega þjónustu,
byggða á þekkingu
og áratuga reynslu.