Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 27.04.2019, Qupperneq 53
MENNING 53 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 2019 Rússneska leikskáldið Ljúd-míla Razumovskaja skrif-aði leikritið Kæra Jelenaað beiðni menntamála- yfirvalda árið 1980. Í beiðninni fólst að hún ætti að skrifa um ungmenni í vanda. Razumovskaja valdi að skrifa um fjögur ungmenni sem kvöld eitt heimsækja Jelenu, umsjónar- kennara sinn, undir því yfirskini að samgleðjast henni á afmælisdegi hennar. Fljótlega kemur í ljós að til- gangurinn er allt annar. Ungmennin eru komin til að fá hjá henni lykil að skáp sem geymir prófaúrlausnir dagsins, því þau hyggjast skipta vanbúnum svörum sínum út með réttum lausnum. Þau sjá svindlið sem einu leiðina til að tryggja sér betra brautargengi í harðri lífsbar- áttunni. Nemendurnir reyna fyrst að kaupa kennara sinn með gjöfum, því næst að höfða til samkenndar hennar, en þegar það bregst líka tekur ofbeldið við með þeim afleið- ingum að nær engin verða söm eftir. Leikritið var frumsýnt í Tallinn í Eistlandi 1981 og í framhaldinu sett upp í Sankti Pétursborg 1982 og víð- ar í Sovétríkjunum við gríðarlegar vinsældir. Ári síðar ákváðu stjórn- völd að banna verkið þar sem það þótti dulin gagnrýni á ríkjandi stjórnskipulag, en flestöll leikrit Razumovskaju munu eiga þessa gagnrýni sameiginlega. Banninu á Kæru Jelenu var ekki aflétt í heima- landi höfundar fyrr en 1987 með um- bótastefnu Míkhaíls Gorbatsjov sem nefnd er perestrojka. Kæra Jelena, sem rataði hingað á svið 1991 í eftirminnilegri upp- færslu, mun vera vinsælasta og mest leikna leikrit Razumovskaju. Vin- sældir verksins koma ekki á óvart því það býr yfir sprengikrafti, mögn- uðum átökum kynslóða um gildis- mat, hugrekki, hugsjónir og siðferði sem snertir djúpt við áhorfendum. Í uppfærslu Borgarleikhússins í leik- stjórn Unnar Aspar Stefánsdóttur er farin sú leið að færa verkið úr ritunartíma sínum og stað til óskil- greindra Vesturlanda nútímans með það að markmiði að færa verkið nær íslenskum áhorfendum. Með þessari færslu tapast hins vegar ákveðinn kjarni verksins. Í stað þess að ung- mennin séu að ráðast að hugmynda- fræði kennara síns, sem trúir því sjálf að dygðugt líferni tryggi far- sæld í þjóðfélagi sem markað er af kúgun og skorti og ungmennin eru afsprengi af, virka þau fremur eins og heimtufrekir krakkar á tímum taumlausrar neysluhyggju. Dæmi um þetta er þegar Lilja ber saman raunveruleikann sem hún þekkir, þreyttar konur sem búa við skort og ferðast þess vegna með strætó, og konurnar sem hana dreymir um að tilheyra sem ferðast um í silfurlitum jeppum og klæðast pelsum og gulli. Á tímum loftslagsbreytinga hafa samgöngumátarnir tveir sem hún nefnir hins vegar allt aðra sögn en þeir höfðu í Sovétríkjunum sálugu. Litla sviðið hefur á umliðnum misserum reynst afar gjöfult leik- rými, enda býður það upp á þann lúxus að breyta megi uppstillingunni með margvíslegum hætti til að þjóna efniviðnum sem best. Kæra Jelena gerist í einu rými nánast í rauntíma og því var vel til fundið að sleppa hléinu. Leikstjórinn velur að láta áhorfendur sitja hringinn í kringum sviðið sem staðsett er í miðjunni, þó leikurinn berist stöku sinnum aftur fyrir áhorfendur. Þau uppbrot virk- uðu hins vegar ekki vel innan hins natúralíska ramma verksins. Þannig var beinlínis sérkennilegt að ung- mennin skyldu gagngert skilja eitt herbergi eftir þegar þeir umturna lítilli íbúð Jelenu í leit að lyklinum mikilvæga. Jafnframt var óljóst hvað hindraði Jelenu í því að flýja af vettvangi þegar útgönguleiðin var augljóslega greið. Í leikskránni kemur fram að markmiðið með því að raða áhorf- endum hringinn í kringum leikrýmið hafi annars vegar verið að skapa nánd og tilfinningu fyrir innilokun og hins vegar að vísa í rómverskt hringleikahús þar sem áhorfendur verða nánast meðsekir þegar þeir verða vitni að hrikalegri atburða- rásinni. Það sem vinnst með nánd- inni tapast aftur á móti í mjög erf- iðum sjónlínum. Sú ákvörðun að staðsetja leikinn í miðjunni kallar á að leikarar séu á sífelldri hreyfingu til þess að áhorfendur missi ekki af andlitstjáningu þeirra og samleik, ekki síst í verki sem byggist alfarið á dýnamíkinni og valdasamspili per- sónanna. Í uppfærslu Borgar- leikhússins eru heilu og hálfu sen- urnar hins vegar leiknar í mikilli kyrrstöðu sem þýðir að áhorfendur sjá iðulega aðeins framan í hluta leikaranna og baksvip hinna. Fyrir vikið glatast mikilvægur samleikur og þar með skilningur áhorfenda á því sem fram fer. Leikmynd og búningar Filippíu I. Elísdóttur þjóna vel þeirri tilfærslu sem orðið hefur í tíma og rúmi. Íbúð Jelenu var látlaus, en smekkleg. Búningar þjónuðu flestum per- sónum vel, hvort heldur voru felulit- ir Jelenu eða mjallhvítir skór Valda sem undirstrikuðu vel ríkidæmi hans. Eina undantekningin birtist í klæðnaði Lilju sem stakk nokkuð í stúf. Þröngt leikrýmið minnkaði til muna eftir húsleit ungmennanna og greinilegt var að leikarar þurftu að gæta fóta sinna til að hrasa ekki um allt draslið á gólfinu. Halldóra Geirharðsdóttir fer með hlutverk Jelenu, en í hlutverkum ungmennanna eru Aron Már Ólafs- son, Haraldur Ari Stefánsson, Sig- urður Þór Óskarsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Sigurður Þór fór á kostum sem einfeldningurinn Viktor sem vill ekki gera flugu mein, en lætur samt svo auðveldlega spila með sig og mun án vafa drekka sig frá öllu áður en langt um líður. Frá höfundarins hendi er augljóst að Viktori er ætlað það hlutverk að létta stemninguna á lykilstundum og gerði Sigurður Þór það með miklum ágætum. Haraldur Ari var sannfærandi í hlutverki Péturs sem reynir eftir fremsta megni að bera sig manna- lega og virðist næstum skilyrðis- laust tilbúinn að hlýða skipunum þeirra sem taka sér valdið. Áhrifa- ríkt var að fylgjast með angist hans þegar honum verður ljóst að hann neyðist til að velja milli þess að svíkja stúlkuna sem hann elskar eða vininn sem hann hefur lagt allt sitt traust á. Þuríður Blær sem fer með hlutverk Lilju hafði að vanda afar góða nærveru. Henni tókst vel að sveiflast milli kaldra röksemda sinna um hvað hún þyrfti að gera til að komast af í þjóðfélagi sem skeytir lítt um þá sem minna mega sín og þeirrar örvæntingar sem sú árás sem hún verður fyrir í íbúðinni framkallar. Aron Már fer með hlutverk Valda sem hefur sérstöðu í hópi ungmenn- anna. Ólíkt hinum þremur þarf hann ekki að svindla á prófinu þar sem hann er í góðum málum og faðir hans þegar búinn að tryggja honum háskólavist erlendis. Til að byrja með segist hann aðeins taka þátt í heimsókninni vegna samúðar með vinum sínum sem séu hæfileikafólk sem ella verði undir í lífinu. Fljót- lega kemur hins vegar í ljós að hann sér heimsóknina sem kærkomna prófraun á eigin viljastyrk og stjórn- kænsku. „Styrkur“ Valda í baráttu hans við Jelenu felst í því að honum er ekkert heilagt og hann er reiðubúinn að beita öllum meðölum siðleysingjans, hvort heldur er að ljúga í formi smjaðurs eða ráðskast með aðra í eigin þágu í krafti óbil- andi sjálfstrausts. Skortur siðleys- ingjans á samvisku og samkennd með öðrum gerir þá einmitt að sér- lega hættulegum andstæðingum. Aron Már nýtti vel sakleysislegt yfirbragð sitt til að spila með aðrar persónur verksins. Þröngt sviðs- rýmið gerði honum hins vegar nokk- uð erfitt fyrir, enda ótrúverðugt að hægt væri að hvíslast á í svo miklu návígi við Jelenu án þess að hún tæki eftir því og brygðist við. Sú ákvörðun að láta Valda verða von- svikinn með vini sína og nánast reið- an undir lok verks virkaði sérkenni- lega í ljósi þess að siðleysingjanum tókst ætlunarverk sitt fullkomlega og var í raun aldrei í neinum vafa um það hversu miklir aumingjar „vinir“ hans væru. Titilpersóna leikritsins er sú per- sóna sem fer í lengsta ferðalagið til- finningalega séð. Hún fer frá því að vera undrandi og glöð yfir í algjört vonleysi og uppgjöf með viðkomu í reiði, vonbrigðum, hræðslu og vantrú. Halldóra náði mjög góðum tökum á reiði Jelenu og fordæmingu á framkomu ungmennanna fjögurra. Rýnir prísar sig sæla að hafa setið réttum megin í salnum til að sjá framan í Halldóru þegar Jelena endanlega gerir sér grein fyrir að lífsstarf hennar hefur mistekist, því viðbrögð hennar voru óhuggulega áhrifarík. Hins vegar hefði þurft að huga betur að valdasamspili Jelenu við nemendur sína, ekki síst Valda. Í túlkun Halldóru var Jelena frá fyrstu stundu alltof vör um sig gagn- vart nemendunum og hafnandi á góðvild þeirra líkt og hún grunaði þau um græsku, sem aftur grefur undan hvörfunum sem í vændum eru. Til að skapa sem mesta spennu þurfa áhorfendur helst að vera búnir að sjá í gegnum ungmennin áður en kennarinn gerir það. Eitt lykilþema leikritsins er vilja- og siðferðisstyrkur persónanna. Það hefði vafalítið þjónað verkinu betur ef áhorfendur hefðu fyrr í uppfærsl- unni getað trúað því að ungmennin væru raunverulega fær um að brjóta mótstöðu Jelenu á bak aftur, því þá hefði styrkur hennar komið meira á óvart sem aftur hefði skapað dýna- mískari spennu við endalokin. Sú ákvörðun að bæta nýju niðurlagi við enda verksins tók um of fókusinn frá þöglum örlögum titilpersónunnar. Þrátt fyrir framangreinda ann- marka er uppfærsla Borgarleik- hússins á Kæru Jelenu áhugaverð og vel þess virði að sjá. Hér er á ferðinni einstaklega gott leikrit sem rannsakar lykilspurningar á borð við hvort og hvenær við höfum efni á góðvild og hvort manneskjan geti lif- að af sé hún rænd hugsjónum sínum. Hvers konar fólk höfum við alið upp? Ljósmynd/Grímur Bjarnason Hugsjónir „Hér er á ferðinni einstaklega gott leikrit sem rannsakar lykilspurningar á borð við hvort og hvenær við höfum efni á góðvild og hvort manneskjan geti lifað af sé hún rænd hugsjónum sínum,“ segir í rýni um Kæru Jelenu. Borgarleikhúsið Kæra Jelena bbbnn Eftir Ljúdmílu Razumovskaju. Íslensk þýðing: Ingibjörg Haraldsdóttir og Kristín Eiríksdóttir. Leikstjórn: Unnur Ösp Stefánsdóttir. Dramatúrg: Hrafn- hildur Hagalín. Leikmynd og búningar: Filippía I. Elísdóttir. Lýsing: Björn Berg- steinn Guðmundsson. Tónlist: Valgeir Sigurðsson. Hljóð: Þórður Gunnar Þor- valdsson. Leikgervi: Elín Gísladóttir. Leikarar: Aron Már Ólafsson, Halldóra Geirharðsdóttir, Haraldur Ari Stefáns- son, Sigurður Þór Óskarsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Frumsýning á Litla sviði Borgarleikhússins 12. apríl 2019. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is Landsins mesta úrval af trommum í öllum verð�lokkum. Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.