Stefnan - 01.04.1923, Blaðsíða 28
STEFNAN
kristindómurinn hafi verið til góðs
í andlegum skilningi. En kirkjan
hefir fyr og síðar verið frekar til
niðurdreps en uppbyggingar í
hærra andlegum skilningi. — Kirkj
an, eins og hún er nú á landi hjer,
hefir--------næsta lítið vald, og
það sem það er, þá er það til einsk-
is góðs í hærra andlegum skiln-
ingi“. —
Kristur „barðist fyrir hugsjónum
í óeigingjörnum tilgangi. Aldrei
hefi jeg heyrt þess getið, að hann
hafi komist á laun, biðlaun eða eft-
irlaun, en mörgum af svonefndum
postulum hans hefir fyr og síðar
skilist að gera æfistarf hans að
fjeþúfu, en andlega starfið hefir
einatt staðið í öfugu hlutfalli við
eldið“.
Jeg læt þessi sýnishom nægja. —
Lagafrv. er ein af hinum mörgu til-
raunaviðleitnum, er bolshvíkingar
hjer á landi hafa sýnt þjóðinni. —
Jónasi frá Hriflu þykir framtíðin
vera þungbrýn. — Skygnist jeg yfir
landamæiin frá hans sjónarmiði, er
jeg honum hjartanlega sammála.
Komandi ár eru ekki glæsileg.
En jeg veit, að þau verða góð og
sólskinsbjört, ef leiðtogar þjóðarinn-
ar kosta kapps um að vera góðir og
ráðvandir menn.
■o
Húsgagnavevzlun
Kvisijáns Siggeirssonar
Símnefni: Furniture. — Laugavegi 13 — Sími 879
hefir ávalt fyrirliggjandi vönduð og smekkleg húsgögn
af öllum tegundum, t. d.: Borðstofu og svefnstofuhúsgögn
einstök rúmstæði, máluð og ómáluð, fyrir einn og tvo
menn, sérstök „buffet“ úr eik og furu margar gerðir,
borðstofuborð úr eik og furu, borðstofustólar margar
gerðir, birkistólar allskonar afar ódýrir, allskonar borð-,
bóka- og klæðaskápar, „toilet“-kommóður, fatahengi,
handklæðabretti o. m. m. fl.
Vörur sendar út um land gegn eftirkröfu.
Fljót og áreiðanleg afgreiðsla.
Krisiján Siggeirsson