Stefnan - 01.04.1923, Blaðsíða 24

Stefnan - 01.04.1923, Blaðsíða 24
S TEFNAN Yínið og ómenskan. Meðan bannlögin „voru í gildi“, voru þau margbrotin. peir, sem ekki brutu þau beinlínis: seldu vín og drukku, brutu þau óbeinlínis: — hilmuðu. Sjómenn og aðrir verkamenn, bændur, kaupmenn, kennarar, prest- ar og aðrir embættismenn — og flest- ar konur, — því sem næst hver ein- asti íslendingur, er kominn var til vits og ára, braut bannlögin. Og dóm- ararnir í landinu voru ekki betri, — þeir drukku vín eða hilmuðu. Var nú hægt að vænta góðs árang- urs af bannlögunum? Nei. — Árangurinn gat ekki orðið góður, og reynslan sannaði það. Nú hefir nauðsyn knúð okkur til að nema bannlögin úr gildi. Nú er spurningin: hvað á að gjöra? Bannlögin gáfust illa. Vjer verðum því að fara aðra leið og betri, og hún er til: Vjer verðum að vera starfsamari en vjer erum nú. Vjer verðum að nota tímann betur en vjer gjörum nú.-------- þessi kenning hljómar illa í eyrum þeirra manha, er „spekúlera" í at- kvæðum verkamanna. Slíka spekú- lanta mætti kalla andlega gyðinga- kaupmenn. Verkföll, æsingar og stjettarígur er þeirra evangelíum. ------— Reynslan er sannleikur: vinnan göfgar manninn. Hún stælir vöðvana, styrkir og fegrar líkamann. Hún gjörir manninn sparsaman og reglusaman. Hún knýr hann til að setja sjer takmark. Hún gjörir hann góðgjarnan og viljasterkan. Vjer íslendingar erum fáir og verð- um því að vinna vel og trúlega. „Jörðin, sem okkur var trúað fyrir, ' er enn óræktuð". — Vjer erum lat- ir — og heimilin eru köld. Líf og heiður þjóðarinnar liggur við, að vjer komum fram sem sóma- menn í hvívetna. En sómamaður gjörir ætíð skyldu sína af fremsta megni, — hann er starfsamur.--------- — — Hvorki menningarsjóðir, bannlög eða bleksverta geta forðað okkur frá víndrykkju, leti og ómensku. En starfsemi, — sterkur og ein- beittur vilji, það er meðalið. -o-- & 1 NÆSTA HEFTI verða eftirfylgjandi greinar: Svikin stefnuskrá. Stefna bolshvíkinga II. . Samvinna og pólitík. Verkamannastjettin. Lánsverzlun ög bankar. Gengi krónunnar (með skýringar- myndum). Óráðvandir kaupsýslumenn. þjóðarskömm. Rauðir þræðir. o. fl. Næsta hefti kemur út í byrjun júnímánaðar.

x

Stefnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnan
https://timarit.is/publication/1339

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.