Stefnan - 01.04.1923, Blaðsíða 30
STEFNAN
grípa inn í um slíka allsherjar
landsverzlun, og sjá menn í hendi
sjer, hverjar myndu afleiðingarn-
ar. Auk þess er ótalinn sá agnúinn,
að þetta fyrirkomulag útilokar
með lögum samkepnina. En hún
er það, sem æfinlega verður mönn-
um drýgsta aðhaldið, og hjálpar
þeim til þess að fá sem mestu
áorkað á hverju sviði sem er“.
þessi umsögn Tryggva þórhallsson-
ar( ?) ber vott um, að hann í raun og
veru fylgir okkur samkepnismönnum
að málum.
Sem betur fer, eru fleiri en við
Tryggvi fúsir til að vinna að því, að
trúmenska og drenglyndi einstakl-
ingsins aukist, og að samkepni, á
hvaða sviði sem er, verði háð á sið-
ferðilega hreinum grundvelli.