Fréttablaðið - 15.06.2019, Síða 2
595 1000
TENERIFE
20. júní í 11 nætur
á Hotel Castle Harbour aaa
Frá kr.
115.145
Frá kr.
128.395
Íslensk fararstjórn,
taska og handfarangur
innifalið.
BÓKAÐU SÓL
ALLUR PAKKINN
Veður
Norðaustlæg eða breytileg átt
5-13 m/s, hvassast með suðaustur-
ströndinni, en hægari austlæg átt.
Skýjað um austanvert landið en
bjart veður vestan til. Dálítil rigning
sunnanlands, en skýjað með
köflum og þurrt annars staðar.
SJÁ SÍÐU 36
Málar bæinn grænan
FERÐALÖG Skráð hjólhýsi hafa aldr
ei verið f leiri en nú. Alls er 5.161
hjólhýsi í umferð nú en í árslok í
fyrra voru þau 4.860. Það sem af
er þessu ári hafa verið nýskráð 272
hjólhýsi.
Nýskráningum fellihýsa fækk
aði verulega á árunum eftir hrun
en þau voru 576 árið 2008 en ekki
nema tvö í fyrra. Ástæðuna segir
Þórður Kristjánsson í Útilegu
manninum vera þá að fólk vilji
aukin gæði ásamt því að fleiri velji
frekar að ferðast innanlands en að
fara til útlanda.
„Það er meiri sala á hjólhýsum en
hefur verið og hún byrjar líka fyrr.
Það er alltaf að bætast í hóp hjól
hýsaeigenda og fólk vill eitthvað
betra en það er vant. Við erum
ekki að selja nein fellihýsi og ný
fellihýsi eru ekki f lutt inn lengur,“
segir Þórður og bætir því við að
fall WOW air gæti mögulega verið
ástæða aukinna ferðalaga Íslend
inga innanlands. „Allt hefur áhrif
í þessu, eins og þegar WOW air fer,
þá náttúrulega hættir fólk kannski
að fara eins mikið til útlanda. Eða
ég sé það þannig.“
Arnar Barðland, framkvæmda
stjóri Víkurverks, segir að mikil
sala sé á hjólhýsum og ástæðan sé
líklega aukin ferðalög innanlands.
„Það er bara brjáluð sala, svipað
og í fyrra en aðeins meira. Það eru
margir nýir viðskiptavinir, fólk
sem er að kaupa sér hjólhýsi í fyrsta
skipti og ætli það sé ekki bara af því
að fleiri ferðast innanlands.“
Tjaldsvæði landsins eru mög
hver full af fólki og stærstur hluti
þeirra sem þar gista eru í hjólhýs
um. „Hér er mjög góð stemning. Nú
er pæjumót í gangi svo það er hér
fullt af fólki og hér er hlýtt og gott
veður. Fullt af fólki en alltaf pláss
fyrir f leiri. Flestir eru í hjólhýsum
og minna er um að fólk sé í tjaldi,“
segir Hafdís Kristjánsdóttir á tjald
svæðinu í Vestmannaeyjum.
Á tjaldsvæðinu í Hraunborgum
í Grímsnesi hefur verið fullt allar
helgar frá því að sumaropnun hófst
í maí. „Það er búið að vera þannig
frá því við opnuðum að við höfum
þurft að vísa frá svona hundrað
vögnum um hverja helgi,“ segir
Drífa Björk Linnet, eigandi Hraun
borga.
„Það er sama og ekkert orðið af
fólki sem er með tjöld, það er svona
einn og einn að halda í gamla fíling
inn. Annars er fólk bara með rosa
lega fína vagna, bara eins og fólk sé
með heimili sín í eftirdragi,“ segir
Drífa. birnadrofn@frettabladid.is
Hjólhýsin vinsælust í
útilegum landsmanna
Mikil aukning hefur orðið á nýskráningum hjólhýsa en skráningum fellihýsa
fækkar ört. Tjaldsvæði landsins eru að fyllast og kjósa flestir landsmenn að
gista í hjólhýsum. Tjöldunum hefur fækkað mikið á tjaldsvæðum landsins.
Mikil aðsókn hefur verið á tjaldsvæðið á Hraunborgum í sumar og hefur
þurft að vísa mörgum vögnum frá um hverja helgi. MYND/DRÍFA BJÖRK LINNET
SAMGÖNGUR Formleg móttökuat
höfn fyrir nýjan Herjólf fer fram í
Friðarhöfninni í Vestmannaeyjum
í dag. At höfn in hefst kl. 14.15 með
ræðum sam gönguráðherra, for
stjóra Vega gerðar inn ar, for manns
bæj ar ráðs og full trúa Vest manna
eyja ferj unn ar Herjólfs. Prest ur
Landa kirkju mun blessa skipið
og Katrín Jak obs dótt ir for sæt is
ráðherra form lega nefna það.
Skipið verður svo til sýnis milli
kl. 14.30 og 16. Boðið verður upp á
veitingar og skemmtiatriði. Skipið
verður einnig til sýnis á morgun,
sunnudag, frá kl. 16 til 18.
Skipið kom til hafnar í gær og
lauk þar með langri bið. Upphaf
lega átti það að hefja siglingar 20.
júní í fyrra. Það dróst til 30. mars á
þessu ári vegna rafvæðingar skips
ins. Skipið var tilbúið í Póllandi í
mars en afhending frestaðist vegna
samninga skipasmíðastöðvarinnar
og Vegagerðarinnar. Skipið mun
sigla á milli Vestmannaeyja og
Landeyjahafnar. – ab
Eyjamenn taka
á móti nýjum
Herjólfi í dag
Það er búið að vera
þannig frá því við
opnuðum að við höfum
þurft að vísa frá svona
hundrað
vögnum um
hverja helgi.
Drífa Björk Linnet,
eigandi Hraunborga
Margir hafa notað veðurblíðuna undanfarna daga til að koma hlutum í verk utan-
dyra í bland við að njóta sólarinnar. Það átti svo sannarlega við þennan málara á
Skólavörðustígnum í gær sem var að mála ljósastaur grænan. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Fleiri myndir úr blíðunni er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
ALMANNARÉTTUR Umhverfisstofn
un hefur dregið til baka ákvörðun
um að leggja dagsektir á eigendur
jarðarinnar Ártungu í Bláskóga
byggð. Stofnunin boðaði sektirnar
fyrir þremur vikum vegna „ólög
mætra hindrana á almannarétti
meðfram bökkum Brúarár“, eins
og segir í bréfi stofnunarinnar.
Fimm dögum eftir að bréfið þar
sem dagsektirnar voru boðaðar var
sent fékk Umhverfisstofnun tölvu
póst frá landeigandanum. Kvaðst
hann hafa stækkað op á girðingu í
2,3 metra og fjarlægt þann hluta af
skiltum á staðnum þar sem sagði að
öll umferð væri bönnuð.
Fulltrúar Umhverfisstofnunar
fóru samdægurs á svæðið í eftirlits
ferð til að kanna aðgengi meðfram
Brúará að Brúarárfossi. Sannreyndu
þeir að skiltið með áletruninni um
að öll umferð væri bönnuð væri
horfið og að eftir stæði skilti sem á
stæði „Private Property“, eða einka
land. Var þá ákveðið að falla frá dag
sektunum. – gar
Opna á leiðina
að Brúarárfossi
STJÓRNMÁL Þingfundi var slitið
síðdegis í gær. Ekkert samkomulag
liggur fyrir um framhaldið. Þing
menn hafa fundað bæði formlega og
óformlega síðustu daga í þeirri von
að ná samkomulagi. Þó að mörg mál
hafi klárast í vikunni á enn eftir að
ljúka við fjölmörg mál.
Litlu munaði að samkomulag næð
ist á fimmtudagskvöldið við Mið
flokkinn um að ljúka umræðu um
þriðja orkupakkann. Það samþykkti
þingf lokkur Sjálfstæðisf lokksins
ekki. Fundað verður óformlega um
helgina. Alþingi kemur aftur saman
á þriðjudaginn. – ab
Enn ekki samið
um þinglok
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
A
-D
2
3
4
2
3
3
A
-D
0
F
8
2
3
3
A
-C
F
B
C
2
3
3
A
-C
E
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K