Fréttablaðið - 15.06.2019, Side 14
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Þegar sólin
býður lands-
mönnum
blíðlega
góðan dag á
hverjum
morgni er
auðvelt að
gleyma stund
og stað.
Eru illmenni einfaldlega góðmenni með fötlun? Í síðustu viku stóð Íslensk erfðagreining fyrir fræðslufundi um upptök illskunnar. Var gestur
fundarins Simon Baron-Cohen, prófessor í þróunar-
sálfræði, sem rannsakað hefur mannlega illsku. Hann
skilgreinir illsku sem skort á samkennd. Í stað þess að
flokka fólk sem gott og illt telur hann nær lagi að stað-
setja hvert og eitt okkar á rófi samkenndar. „Fólk getur
haft litla samkennd, í meðallagi eða óvanalega mikla
samkennd,“ sagði Baron-Cohen í erindi sínu.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
tók undir með Baron-Cohen í viðtali við Fréttablaðið.
„Illska er í raun og veru fötlun, þó að við meðhöndlum
hana ekki sem slíka. Á til dæmis að refsa mönnum fyrir
afleiðingar þess að glíma við slíka fötlun?“
Svo kann að fara að einn daginn hættum við að refsa
fólki fyrir illvirki sem þjáist af svo miklum skorti af sam-
kennd að það er staðsett neðst á samkenndar-ásnum.
Nýverið hefur hins vegar tekið að bera í auknum mæli á
því að fólki sé refsað fyrir að vera á hinum enda ássins.
Glæpavæðing samkenndarinnar
Hinn 31. janúar síðastliðinn bankaði þýska lögreglan
upp á hjá Christian Hartung, sóknarpresti í Þýskalandi.
Prestinum var gefið að sök að skjóta skjólshúsi yfir
flóttamenn frá Súdan. Hartung sagði „bráða hættu hafa
steðjað að fólkinu“ sem margt glímdi við lífshættulega
sjúkdóma. Hann sagði framferði lögreglunnar „tilraun
til að hræða“ sig en Hartung starfar á svæði þar sem
þýski þjóðernisflokkurinn Alternative für Deutschland
nýtur mikils fylgis.
Presturinn í Þýskalandi er ekki sá eini sem gæti átt
yfir höfði sér fangelsisvist fyrir að koma sambræðrum
til hjálpar. Ný könnun sýnir að mannleg samkennd er í
auknum mæli talin ámælisverð. Tilfellum í Evrópu þar
sem almennir borgarar eru ákærðir, dæmdir og sektaðir
fyrir almenna manngæsku í garð flótta- og farandfólks
fer snarfjölgandi. Vefurinn Open Democracy hefur
tekið saman 250 dæmi um slíkt á síðustu fimm árum.
Þar á meðal eru spænskur slökkviliðsmaður sem átti
yfir höfði sér þrjátíu ára fangelsi í Grikklandi fyrir að
bjarga flóttafólki frá drukknun, franskur ólívuræktandi
sem var handtekinn fyrir að gefa farandfólki mat við
landamæri Ítalíu og sjötug dönsk amma sem var dæmd
og sektuð fyrir að gefa fjölskyldu með ung börn far í bíl
sínum.
Nýjasta skrefið í átt að glæpavæðingu samkenndar-
innar var hins vegar stigið á Ítalíu í vikunni. Ítalska
ríkisstjórnin samþykkti tilskipun sem gerir það form-
lega refsivert að bjarga flótta- og farandfólki á Mið-
jarðarhafinu. Hunsi hjálparsamtök reglurnar mega þau
eiga von á háum sektum. Notendur íslenskra samfélags-
miðla fordæmdu ráðstöfunina nokkuð einróma. En
höfum við Íslendingar samkenndina eitthvað meira í
heiðri en Ítalir?
Átök góðs og ills
Í apríl síðastliðnum voru Jórunn Edda Helga dóttir og
Ragn heiður Freyja Kristínar dóttir dæmdar í þriggja
mánaða skil orðs bundið fangelsi fyrir að standa upp í
flugvél Icelandair og mótmæla brottvísun flóttamanns
sem verið var að flytja úr landi með vélinni. Átti að
senda hælisleitandann til Nígeríu en þaðan hafði hann
flúið í kjölfar þess að Boko Haram liðar veittu honum
stungusár og myrtu bróður hans.
„Það er manninum mikilvægt að skilja sjálfan sig sem
dýrategund og samkenndin skiptir ótrúlega miklu máli
í mannlegum samskiptum,“ sagði Kári Stefánsson um
rannsóknir Baron-Cohen. „Mannkynssagan er þessi
samskipti og átök góðs og ills.“
Við lifum nú í veröld þar sem hægt er að gera til okkar
þá lagalegu kröfu að við horfum upp á aðra manneskju
drukkna án þess að aðhafast nokkuð. Ef mannkyns-
sagan verður í framtíðinni skoðuð á rófi samkenndar er
hætt við að nútíminn hljóti greininguna: öld siðblind-
ingjans.
Öld siðblindingjans
Síðasta sumar rennur áhugafólki um veðurfar seint úr minni. Varla sást til sólar framan af sumri og rigningin dundi á landsmönnum. Mörgum tókst ekki að reka endahnútinn á brýn verk
utanhúss eða í görðum sínum. Sökum veðurs.
Að sumri.
Á sama tíma voru ýmis teikn á lofti um að mesta
búsældarskeiðinu væri að ljúka. Fregnir fóru að
berast af vandræðum f lugfélaganna, WOW air og
Icelandair. Yfir dundu bölsýnisspár um hvílíkar
hörmungar sem fylgdu ef annað þeirra, eða bæði,
myndu riða til falls. Stórkostleg fækkun ferða-
manna með tilheyrandi tjóni fyrir þjóðarbúið.
Margt benti einnig til þess að erfiður vetur
væri fram undan á vinnumarkaði. Samningar
voru að losna og langt virtist milli stríðandi
fylkinga. Verkföll virtust óumf lýjanleg. Blikur
voru á lofti, og standandi frammi fyrir þessu tví-
höfða skrímsli, róti á vinnumarkaði og óvissu um
framtíð f lugfélaganna, hóf krónan að gefa eftir
gagnvart helstu myntum.
Veðurguðirnir virtust sömuleiðis á því að leyfa
ætti Íslendingum að finna til tevatnsins. Regnið
dundi á eyjarskeggjum og lofthiti náði sjaldnast
tveggja stafa tölu. Margir fóru jafnvel að velta
fyrir sér hvort íslenska ferðamannavorinu stæði
meiri ógn af veðurfari en fallvöltum f lugrekstri og
örmyntinni furðulegu.
Veðrið reyndist að lokum fyrirboði um örlög
WOW air sem féll með braki og brestum síðla
vetrar. Sólarglæta sást þó í kjölfarið þegar aðilar á
vinnumarkaði unnu þrekvirki og náðu saman að
endingu.
Kannski var það fyrirboði um sumarið 2019?
Þegar sólin býður landsmönnum blíðlega góðan
dag á hverjum morgni er auðvelt að gleyma stund
og stað. Við þurfum ekki lengur ódýra farmiða til
Tenerife til að ná í smá lit. Að minnsta kosti ekki
að sinni.
Í vikunni bárust tíðindi af því að ríkissjóður
hefði fjármagnað sig á áður óþekktum kjörum.
Það var áminning um sterka stöðu ríkisfjármála.
Við höfum raunverulega búið vel í haginn til að
mæta áföllum á borð við fall WOW air.
Góða veðrið leyfir okkur sömuleiðis að líta
landið okkar öðrum augum. Auðvitað vilja ferða-
menn sækja okkur heim. En kannski fórum við of
geyst á síðustu árum. Leyfðum gullgrafarahugar-
fari að festa rætur. Getur verið að tímabundið
hikst í ferðamannafjölda gefi tækifæri til yfir-
vegaðs endurmats og ígrundun um hvernig við
viljum byggja greinina upp til framtíðar?
Í þessu veðurfari leyfir maður sér í það minnsta
að láta hugann reika. Landið okkar er einstakt
þegar sá gállinn er á því. Við eigum að leyfa
öðrum að njóta þess með okkur. En slíkt þarf
að gera af ábyrgð og festu, þannig að við skilum
landinu í góðu horfi til næstu kynslóða.
Góða veðrinu fylgir gleði og bjartsýni. Vonandi
er það undanfari góðra tíma.
Góða veðrið
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R14 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
B
-0
8
8
4
2
3
3
B
-0
7
4
8
2
3
3
B
-0
6
0
C
2
3
3
B
-0
4
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K