Fréttablaðið - 15.06.2019, Qupperneq 16
Ég er sérstaklega
sáttur við að hafa
staðist þá pressu sem fylgir
því að vera atvinnumaður.
Hugur minn stendur til þess
að takast á við nýja áskorun.
Dagur Kár Jónsson
KÖRFUBOLTI Ár er síðan Dagur Kár
Jónsson ákvað að halda til Austur
ríkis til þess að leika með úrvals
deildarliðinu Raiffeisen Flyers
Wels en þá var hann að semja við
sitt fyrsta erlenda lið á ferli sínum
og takast á við það í fyrsta skipti að
leika sem atvinnumaður. Hann hafði
áður leikið með St. Francis í banda
ríska háskólakörfuboltanum en
það er öðruvísi pressa að leika með
skólaliði en í atvinnumannaliði.
Dagur Kár er ánægður með sitt
fyrsta keppnistímabil í hinum
harða heimi atvinnumennskunnar
og langar að halda áfram að leika
erlendis á næstu leiktíð. Þrátt fyrir
að hafa verið sáttur við dvölina hjá
Raiffeisen Flyers Wels langar hann
að taka næsta skref á ferli sínum og
leika í öðru landi næsta vetur.
„Mér fannst ég standa mig vel á
þessari fyrstu leiktíð minni sem
atvinnumaður. Ég renndi nokkuð
blint í sjóinn þegar ég fór til Austur
ríkis og eftir á að hyggja var þetta
gott fyrsta skref á atvinnumannsferli
mínum. Deildin er sterk, leikstíllinn
er öðruvísi en heima og það hentaði
mér bara vel. Það er meira lagt upp
úr því að vera með sterka miðherja
og spila inni í teig í austurrísku deild
inni en á Íslandi og ég kunni vel við
þann leikstíl,“ segir Dagur í samtali
við Fréttablaðið.
„Það er allt öðruvísi ábyrgð sem
fylgir því að vera leikstjórnandi í
atvinnumannaliði en að leika með
háskólaliði í Bandaríkjunum. Ég
byrjaði vel með liðinu og lék heilt
yfir vel á tímabilinu að mínu mati.
Um mitt tímabilið fór að halla undan
fæti hjá okkur í nokkrar vikur og á
þeim tíma var hrist upp í liðinu þar
sem tveir leikmenn voru sendir
frá liðinu og nýir leikmenn komu
í staðinn,“ segir leikstjórnandinn
enn fremur.
„Við náðum svo langri sigurhrinu
undir lok deildarkeppninnar og ég
og aðrir í liðinu náðum vopnum
okkar að nýju og lékum vel. Við
fórum inn í úrslitakeppnina í fimmta
sæti og féllum því miður úr leik í átta
liða úrslitum fyrir liðinu sem endaði
í fjórða sæti. Við hefðum viljað fara
í undanúrslit en ég geng hins vegar
sáttur frá borði eftir þessa leiktíð,“
segir Garðbæingurinn um frumraun
sína hjá Raiffeisen Flyers Wels.
„Ég er sérstaklega sáttur við að
hafa staðist þá pressu sem fylgir
því að vera atvinnumaður og vera
erlendur leikmaður í atvinnu
mannaliði. Sú staðreynd að þegar
illa fór að ganga hafi tveir leikmenn
verið látnir fara sýnir hversu lítil
þolinmæði er hjá liðum eins og Raiff
eisen Flyers Wels fyrir því að leik
menn standi sig ekki í stykkinu. Auk
þess að þurfa að hafa körfuboltaleg
gæði til þess að pluma sig er þetta
andlega erfitt og reynir töluvert á,“
segir hann um upplifun sína af því að
leika erlendis.
„Framtíðin er óráðin en nokkur
íslensk lið hafa haft samband við
mig með það í huga að leika þar.
Hugur minn stendur hins vegar til
þess að takast á við nýja áskorun
og taka næsta skref á ferli mínum.
Ég hef verið að fá aukið hlutverk hjá
landsliðinu í undanförnum verk
efnum liðsins og ég tel að það auki
möguleika mína þar að koma mér í
sterkari deild.
Þá langar mig líka að prófa að spila
á fleiri stöðum. Fyrir mér væri heilla
vænlegast að taka eitt milliskref
áður en ég fer að huga að sterkustu
deildum Evrópu. Hæfilega stórt skref
væri að leika í Bdeildum í löndum á
borð við Belgíu, Grikkland, Frakk
land, Spán og Þýskaland. Það er lítið
að gerast þessa stundina þar sem
leiktíðunum er nýlokið en þetta fer
svo á flug þegar nær dregur hausti,“
segir Dagur um framhaldið hjá sér.
hjorvaro@frettabladid.is
Stefnir á að taka næsta skref
Dagur Kár Jónsson, landsliðsmaður í körfubolta, kláraði nýlega sitt fyrsta keppnistímabil sem atvinnu-
maður. Dagur lék með austurríska liðinu Raiffeisen Flyers Wels. Hann vill stærri áskorun næsta vetur.
Dagur Kár Jónsson var í lykilhlutverki hjá austurríska liðinu Raiffeisen Flyers Wels á nýliðinni leiktíð þar í landi.
FÓTBOLTI Talið er að Frank Lamp
ard, fyrrverandi leikmaður Chelsea,
muni á næstu dögum taka við sem
knattspyrnustjóri félagsins. Mauri
zio Sarri var á dögunum leystur
und an samn ingi hjá Chelsea en
hann mun að öllum líkindum taka
við ítalska meistaraliðinu Juventus.
Forráðamenn Chelsea þurfa að
borga Derby County um fjórar
milljónir punda eða rúmar 600
milljónir króna til þess að fá Lamp
ard lausan. Lampard hefur stýrt
Derby County í eitt keppnistímabil
en það er fyrsta stjórastarfið hans.
Viðræður um vistaskipti Lamp
ards á Stamford Bridge munu hefj
ast á næstu dögum en Chelsea mun
ekki sleppa hendinni af Sarri fyrr en
búið er að ná samningum
við eftirmann hans.
Derby County laut
í lægra haldi fyrir
Aston Villa í umspili
um laust sæti í efstu
deild undir stjórn
L a m p a r d s .
Lamp ard lék
í 13 ár með
Chelsea og
va n n 11
titla með
félaginu.
– hó
Lampard að
nálgast Brúna
FÓTBOLTI Íslenska karla landsliðið
í knatt spyrnu situr í 35. sæti á nýj
asta styrk leikalista Alþjóðaknatt
spyrnu sam bands ins, FIFA, sem
opinberaður var í gær.
Íslenska liðið fer þar af leiðandi
upp um fimm sæti á styrk leikalist
an um en það eru sigrar gegn Alban
íu og Tyrklandi í undankeppni EM
2020 í þessari viku sem sjá um að
hífa liðið upp listann.
Belg ar eru sem fyrr í efsta sæt i
listans og þar á eft ir koma ríkjandi
heims meist ar ar Frakka og svo
Bras il íu menn. Eng land er í fjórða
sæti á listanum, Portúgal sem vann
nýlega Þjóðadeildina í því fimmta
og Króatía í því sjötta.
Spánn er í sjöunda sæti, Úrúg væ
í því áttunda og Sviss níunda. Dan
mörk er svo efsta Norðurlanda
þjóðin en liðið situr í tíunda sæti
listans. – hó
Ísland fór upp
um fimm sæti
Frank Lampard.
Tökum höndum saman – í þágu umhverfisins
Við vinnum stöðugt að því að bjóða vörur sem draga úr kolefnisspori, niðurbrjótanlegar
vörur sem auðvelt er að flokka, framleiddar í sátt við náttúruna.
REKSTRARLAND verslun | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
P
ip
a
r\TB
W
A
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–17
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
A
-F
4
C
4
2
3
3
A
-F
3
8
8
2
3
3
A
-F
2
4
C
2
3
3
A
-F
1
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K