Fréttablaðið - 15.06.2019, Side 24
Sunnefu gefið andlit
Erla María Árnadóttir, teiknari og myndlýsir, gefur Sunnefu
andlit á sýningunni. „Af þessu litla sem er til af útlits-
lýsingum þá er hún er sögð hafa verið dökk yfirlitum og
langleit,“ segir Erla María. „Annað er byggt á þessum
karakter sem við getum lesið úr sögunni. Hún var
sterk persóna sem þorði að tala. Það skipti okkur
máli að sýna sterka íslenska konu sem gekk í
gegnum mikið á stuttri ævi.“ Þjóðsagan segir
að hún og bróðir hennar gætu hafa verið af
frönskum ættum og var einnig tekið tillit
til þess. „Hún var ekki með þetta hefð-
bundna skandinavíska útlit. Hún þótti
mjög fögur.“ Erla María vildi ekki gera
myndina of nákvæma. „Það verður að
vera svigrúm til að fólk geti fyllt upp í
eyðurnar.“ Aðrar persónur fá ekki ná-
kvæm andlit, er það gert sérstaklega
til að athyglin sé á Sunnefu.
HÚN ER EKKI SKRÁÐ NEINS
STAÐAR. ÞAÐ ER ALDREI
SKRÁÐ HVENÆR HÚN ER
FÆDD. ÞAÐ ER ALDREI
SKRÁÐ AÐ HÚN HAFI DÁIÐ.
Up p n á m v a r ð á Alþingi árið 1743 þegar 19 ára stúlka, Sunnefa Jónsdóttir sem hafði verið tví-dæmd til dauða
fyrir blóðskömm, sakaði Hans
Wíum, sýslumann á Skriðuklaustri,
um að vera raunverulegur faðir
annars barns síns. Mál Sunnefu
tók nokkrar óvæntar stefnur
og hljómar allt hið furðuleg-
asta fyrir okkur sem lifum á
21. öld.
Til að gera langa sögu
stutta þá varð Sunnefa,
gullfalleg 16 ára sveita-
stúlka á Borgar f irði
eystri, ófrísk. Hún bjó í
þessum afskekkta firði
ásamt móður sinni,
stjúpföður og 14 ára
bróður.
Við yfirheyrslu hjá
prestinum eftir fæð-
ingu barnsins sagði
hún að bróðir hennar
væri faðir barnsins. Jens
Wíum sýslumaður f lutti
systkinin inn í Fljótsdal
þar sem þau voru bæði
dæmd til dauða fyrir blóð-
skömm. Jens lét lífið við
sérkennilegar aðstæður og
sonur hans, Hans Wíum, tók
við embættinu af föður sínum.
Hans hafði verið sýslumaður
í Vestmannaeyjum og eignast þar
tvö börn í lausaleik. Á þriðja ári í
fangavistinni fæðir Sunnefa annað
barn. Eftir að það barn fæðist yfir-
heyrir Hans Sunnefu einn síns liðs
er hún liggur illa þjökuð af bólu-
sótt. Játar hún að bróðir hennar
sé faðirinn. Þrátt fyrir að bróðir
hennar hafi þrætt fyrir það réttar
Hans yfir þeim báðum og eru þau
í annað sinn dæmd til dauða fyrir
blóðskömm.
Á fjórða ári fangavistarinnar er
farið með systkinin, þá 19 og 17
ára, á Alþingi. Þar verður uppnám
þegar Sunnefa lýsir því yfir að Hans
sé faðir seinna barnsins. Dómurinn
í fyrra málinu var staðfestur, en þau
voru síðar sýknuð af Danakonungi.
Málið var mjög umtalað á Íslandi
á þessum tíma og þótti það mikill
áfellisdómur yfir sýslumanninum.
Átján árum eftir að Sunnefa varð
ófrísk að fyrsta barninu stefnir í
að systkinin verði loks endanlega
sýknuð. Áður en þeim er sleppt deyr
Sunnefa. Bróðir hennar er sendur
úr landi og endaði líklegast í Finn-
mörku.
Fram til þessa hefur sagan að
mestu snúist um Hans Wíum og
embættisfærslur hans. Hafa þeir
sem fjallað hafa um þetta mál
viljað mála hann í jákvæðu ljósi,
lyga kvendi hafi borið upp á hann
sakir sem eyðilögðu líf hans eða þá
að hann hafi verið táldreginn. Einn-
ig að óvinir hans hafi spunnið úr
málinu í þeim tilgangi að ná til sín
völdum, Sunnefa og bróðir hennar
hafi verið notuð sem peð í þeim
valdaátökum.
Beið drekkingar í 18 ár
Sumarsýning Menningarmiðstöðv-
ar Fljótsdalshéraðs sem verður
opnuð á 17. júní snýst að þessu sinni
um að draga fram persónu Sunnefu
og endurskoða málið frá hennar
sjónarhóli. Sýningin er til komin
vegna #metoo-byltingarinnar sem
hvatti Kristínu Amalíu Atladóttur,
forstöðumann menningarmið-
stöðvarinnar, til að skoða gömul
sakamál í nýju ljósi.
„Það er úr litlu að moða,“ segir
Kristín Amalía. „Fyrir utan þjóð-
söguna, sem taka þarf með miklum
fyrirvara, er aðeins hægt að púsla
saman málinu í gegnum sendi-
bréf og Alþingisbækur sem hafa
varðveist. Hún er ekki skráð neins
staðar. Það er aldrei skráð hvenær
hún er fædd. Það er aldrei skráð að
hún hafi dáið. Við hefðum aldrei
vitað að hún væri til ef ekki væri
fyrir bréf embættismanna. Hún
er alltaf aukapersóna í lífi ann-
Hver var
Sunnefa?
Sunnefa Jónsdóttir var dæmd til dauða
fyrir blóðskömm og eignaðist annað
barn sitt í haldi. Á tímum kvenfyrirlitn-
ingar og takmarkaðrar heimsmyndar
stóð hún uppi í hárinu á valdamönnum.
hálfvitaskap eða hann vill þeim
eitthvað illt.“
Aðspurð hvað hún telji að hafi
gerst segir Kristín að það byggi að
miklu leyti á því sem við sem sam-
félag þekkjum í dag. „Ég er ekki
sannfærð um að Jón hafi átt fyrsta
barnið. Það eru margir aðrir sem
koma til greina. Að stúlka sem var
lýst sem fegurstu konu Íslands, að
hún hafi endilega lagst með yngri
bróður sínum frekar en öðrum
mönnum í nágrenninu verð ég að
telja hæpið,“ segir Kristín.
Hefur hún annan mann grun-
aðan. „Stjúpfaðir þeirra var 17
árum eldri en Sunnefa. Hann giftist
móður þeirra að öllum líkindum til
að komast yfir bæinn. Fæstir trúðu
því að systkinin yrðu dæmd til
dauða sökum aldurs. Ef stjúpfaðir-
inn hefði verið dæmdur þá væri
enginn möguleiki á náðun fyrir
hann og Sunnefu.“
Varðandi seinna barnið segir
Kristín að það þurfi að hafa í huga
hvernig komið var fram við vinnu-
konur. „Það er hægt að trúa því að
systkinin hafi slysast til að hafa
samræði þegar þau reyndu að halda
á sér hita einhverja dimma og kalda
nóttina en að þau geri slíkt aftur á
sýslumannssetrinu þek kjandi
af leiðingarnar og þegar dauða-
dæmd er hæpið. Hitt er þó öllu lík-
legra að hinn lausgirti sýslumaður
hafi girnst hina heillandi Sunnefu.“
Ekkert fórnarlamb
Sunnefa lætur lífið í haldi Hans
Wíum áður en þau ná að fara aftur
til Alþingis. „Hún deyr líklegast
seint árið 1757. Ég held að hún hafi
ekki beinlínis verið myrt, en ég held
að henni hafi ekki verið hjálpað til
að lifa.“
Kristín er þó viss um að ef Sunn-
efu hefði tekist að ríða til þings
sumarið 1758 hefði henni tekist að
losna úr haldi. Það mun þó alltaf lifa
uppnámið sem hún olli á Alþingi
sumarið 1743. „Að hún skuli þora
að standa upp í hárinu á manni
sem hún var fangi hjá, og á ekki von
á öðru en hún verði fangi hjá fram
að drekkingu. Hún er ekkert fórnar-
lamb. Hún er sterk.“
arra. Það er bara minnst á hana
einu sinni í opinberum gögnum
fyrir utan Alþingisbækur, það er í
Íslendingabók sem segir aðeins að
Erlendur Jónsson, bóndi á Bakka,
hafi gengist við barni Sunnefu en
dregið það til baka.
Umræðan í kringum #metoo
hvatti mig til að skoða ákveðin mál
í fortíðinni. Þetta er upplifunar-
sýning. Sagan er að mestu leyti sögð
með spjöldum. Við erum með stór-
kostlegan teiknara með okkur í liði,
svo erum við með tvær hljóðmyndir
og leikmuni sem byggja á sjón-
rænum áhrifum ásamt öðru hljóð-
og myndefni. Þannig náum við að
draga Sunnefu til okkar og segja
söguna eins og við vitum hana, en
með hana í forgrunni,“ segir Kristín.
„Ég vil að fólk átti sig á hvað beið
Sunnefu öll þessi ár. Drekking. Við
viljum gefa fólki allar staðreyndir
sem vitað er um, svo má alltaf deila
um þær. Ég er til dæmis mjög ósam-
mála öllum þeim sem hafa skrifað
um þetta mál á undan mér,“ segir
Kristín.
Stuðandi kvenfyrirlitning
Hún tekur það fram að hún sé
menntuð á sviði félagsvísinda en
ekki sagnfræði. „Ég verð þó að
viðurkenna að ég skil ekki hvernig
menn hafa getað varið Hans Wíum.
Ég reyndi það, en kemst alltaf að
sömu niðurstöðu. Það er varla hægt
að líta fram hjá algjöru valdleysi
kvenna sem ríkti á þessum tíma og
á seinni tímum.“
Nefnir Kristín sem dæmi full-
yrðingar um að Sunnefa hafi verið
lauslát þar sem hún hafi eignast
tvö börn utan hjónabands. Á sama
tíma á Hans Wíum að hafa „lent í
því óláni að eignast tvö börn fyrir
hjónaband“. Á þetta einnig við um
seinni tíma skrif um þetta mál.
„Þetta er alls staðar og fer að stuða
mann. Það er farið með konur og
valdalitla karlmenn eins og minni-
hlutahópa.“
Sunnefa og fjölskylda hennar
bjuggu í afskekktum firði, þar sem
þó var stutt á milli bæja. Allar heim-
ildir eru sammála um að hún hafi
verið gullfalleg og bróðir hennar
mjög myndarlegur. Heimurinn sem
þau bjuggu í er gjörólíkur okkar og
segir Kristín það ógjörning fyrir
okkur að setja okkur alfarið í þeirra
spor. Til dæmis eftir að systkinin
hafi verið dæmd til dauða þá hafi
þau verið notuð sem ókeypis vinnu-
af l á Skriðuklaustri, heimili Hans
Wíum sýslumanns.
„Við getum ekki sett okkur inn í
hugarheim þessa fólks. Við getum
gefið okkur nokkra sammannlega
þætti, en við getum ekki sett okkur
í spor þeirra. Þau voru ólæs, óskrif-
andi og höfðu fullkomna einfalda
heimsmynd, það var bara guðs-
orðið. Konur höfðu litlar væntingar,
jafnvel engar. Ég sem nútímakona
get mjög takmarkað skilið Sunnefu,
en staðreyndirnar tala sínu máli.“
Það eru þó nokkur atriði sem
Kristín vill draga fram. „Þetta eru
ólæsir unglingar gegn löglærðum
embættismanni. Þau samþykkja öll
lögfræðileg atriði sem Hans Wíum
vill, enda vita þau ekkert hvað þau
þýða. Það er ljóst af niðurstöðum
dóma að embættismönnum mörg-
um hverjum hefur misboðið emb-
ættisfærslur Wíums og rangsleitni.“
Hennar eigið mat á Hans Wíum er
afgerandi. „Annaðhvort er maður-
inn algerlega vankunnandi í lögum
og réttarfarsreglum svo jaðrar við
Dauðinn ávallt
í næsta nágrenni
Tófufoss liggur í Bessastaðaá
á Fljótsdalshéraði. Örstutt
fyrir neðan hann er drekk-
ingarhylurinn þar sem Halldóru
Jónsdóttur var drekkt saklausri
af Jens Wíum, föður Hans. Áin
og hylurinn eru stutt frá Skriðu-
klaustri og hefur Sunnefa því
haft hann fyrir augunum þegar
hún fór um veginn og hlustað á
sögur af drekkingu Halldóru þar
10 árum áður en Sunnefa kom á
Skriðuklaustur.
Halldóra var 4 ár á Skriðu-
klaustri áður en henni var
drekkt og því hefur heimilis-
fólk á Skriðuklaustri og bæjum
í kring þekkt Halldóru vel og
verið drekkingin í fersku minni.
„Hylurinn heitir Sunnefuhylur,“
segir Kristín. „Fólk trúði því
lengi, og ýmsir trúa því enn,
að Sunnefu hefði verið drekkt
hér af Hans Wíum, löglega eða
ólöglega.“
Kristín Amalía
Atladóttir.
Ari
Brynjólfsson
arib@frettabladid.is
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
A
-E
F
D
4
2
3
3
A
-E
E
9
8
2
3
3
A
-E
D
5
C
2
3
3
A
-E
C
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K