Fréttablaðið - 15.06.2019, Síða 26
Elskar að troða upp
Páll Óskar lokar hinum árlegu 17. júní stórtónleikum á Rútstúni í ár. Hann lofar stuði,
ætlar að stríða gestum og frum
flytja nýtt lag.
„Ég hef alltaf elskað að troða upp
og með árunum elska ég það bara
meira. Ég er svo þakklátur fyrir að
vera enn á svæðinu núna árið 2019,
ég hef aldrei verið í betra formi og
er enn þá að búa til nýja tónlist. Ég
hef séð marga listamenn koma og
fara. Atvinnuöryggið í mínu starfi
er lítið sem ekkert. Ég get ekki sagt
neitt annað en eitt risastórt takk.“
Hann segir sumarið fara í að
spila á bæjarhátíðum út um allt
land. Hann byrjaði í Grindavík
á sjómannadaginn, þá sé það
þjóðhátíðardagurinn á Rútstúni,
sá fyrsti í mörg ár þar sem hann
kemur fram á 17. júní og svo heldur
hann áfram á bæjarhátíðum úti
um allt land fram á haust.
Gefur allt í tónleikana
Páll Óskar segir það ekki skipta
máli fyrir hverja eða hvaða aldur
hann sé að spila því hann gefi
ávallt alla sína orku í tónleikana
sína og á Rútstúni verði engin
undantekning þar á. „Það fá allir
sama sjóvið, sömu orkuna. Ég elska
að gíra mig upp og gefa af mér. Það
er alltaf best að spila gömlu lögin í
bland við þau nýju og það mun ég
gera 17. júní.“
Honum finnst tilhugsunin um
að vera enn þá að semja ný lög,
frábær. „Bransinn hefur eðlilega
gjörbreyst síðan ég byrjaði árið
1991. Fasta formið er dottið út, nú
er öllu streymt, en það stoppar ekki
íslensku tónlistarmennina frá því
að dæla út lögum og myndböndum.
Stærsti munurinn er að nú þarftu
ekki nauðsynlega að gefa út plötur,
það er nóg að gefa út eitt lag í einu.
Hið eina sem hefur ekkert
breyst er að tekjur íslenskra tón
listarmanna hafa alltaf komið
af tónleikahaldi, en sjaldnar eða
jafnvel aldrei af plötuútgáfu. Núna
er allt tónleikahald á svo miklu
betri standard heldur en í gamla
daga. Maður var að bögglast við að
þykjast vera einhver poppstjarna
uppi á skókassa úti á túni, spilandi
í gegnum hljóðkerfi sem var fengið
að láni úr stofunni heima hjá
ömmu. Við erum öll búin að læra
svo mikið síðan þá. Fagmennskan
sem einkennir allt tónleikahald á
Íslandi í dag gerir það að verkum
að mér líður miklu betur uppi á
sviði í dag, hljóð og ljós eru alltaf
fyrsta flokks og það sést á mér
hvað mér líður vel. Þessa vellíðan
gef ég svo áfram til áhorfenda og
svo ráða þeir hvort þeir taki við
henni og klappi.“
Alltaf sól
Páll Óskar segir æskuminningar
frá 17. júní vera umluktar sól, hann
muni bara eftir sól á þjóðhátíðar
deginum og spenningnum við
að fara með eldri systrum sínum
niður í bæ, fá blöðru með íslenska
fánanum og bleikt kandífloss,
eina skiptið á árinu sem hann fékk
sykur af því tagi. Þá hafi hann
verið sólríkur þjóðhátíðardagur
inn sem hann tróð fyrst upp á, en
það var árið 1991 með Maríusi vini
sínum. Þeir komu fram í dragi sem
tvær íslenskar fjallkonur og sungu
íslensk ættjarðarlög.
Eftir að Stuðplatan hans kom út
árið 1993 fór hann að syngja eigið
efni og hefur gert það allar götur
síðan.
„Sól og aftur sól segi ég og hef
því pantað sól þann sautjánda,
mun gefa allt á sviðinu alveg til
síðasta blóðdropa. Það verður sko
enginn afsláttur gefinn og ég elska
það. En í þetta skiptið ætla ég að
stríða liðinu með nýjum slagara.
Það koma síðan fleiri lög á árinu en
á Rútstúni ætla ég að prufukeyra
fyrsta lagið af hinu nýja efni og ég
hlakka til!“
10.00
17. júní hlaup fyrir börn í 1.-6. bekk á Kópavogs-
velli.
13.30
Skrúðganga frá Menntaskólanum í Kópavogi að
Rútstúni. Skátafélagið Kópar og Skólahljómsveit
Kópavogs. Nýstúdent og fjallkona leiða gönguna.
14.00
Hátíðar- og skemmtidagskrá á Rútstúni. Kynnir er
Vilhelm Anton Jónsson.
Skólahljómsveit Kópavogs spilar undir stjórn
Jóhanns Björns Ævarssonar í upphafi dagskrár.
Bæjarstjóri Kópavogs, Ármann Kr. Ólafsson, flytur
ávarp, nýstúdent flytur ræðu og fjallkona flytur
ljóð. Þá taka við skemmtiatriði en fram koma:
Ronja ræningjadóttir, Skoppa og Skrítla, Ingó
Veðurguð, sigurvegari söngkeppni Samfés, Sveppi,
Jói P og Króli, Svala Björgvins og Karma Brigade.
14.00-17.00
Á Rútstúni og víðar
Götuleikhús Kópavogs verður á flakki með alls
kyns sprell.
Leiktæki, barnatjald fyrir 0-5 ára, hoppukastalar,
veltibíll, andlitsmálun og fleira.
Íþrótta- og æskulýðsfélög verða með sölutjöld
á Rútstúni.
Hjálparsveit skáta í Kópavogi verður við enda
Vallargerðisvallar, býður upp á klifurvegg og sýnir
tæki og búnað.
14.00-17.00
Útisvæði við Menningarhús Kópavogs.
Ærslabelgurinn, hoppukastalar, Skapandi sumar-
hópar úr Molanum, Krakkahestar (frá kl. 15), and-
litsmálun og fleira. Ratleikur um öll Menningar-
húsin, sýningin Útlína í Gerðarsafni, dýr, fiskar
og jarðfræði í Náttúrufræðistofu og notalegheit
á bókasafninu. Gerðarsafn og Menningarhúsin
verða opin frá kl. 11-17.
19.50
Stórtónleikar á Rútstúni
Fram koma Blóðmör, GDRN, Sísý Ey og Páll Óskar.
Skrúðgangan hefst klukkan 13.30 og lýkur 14.00. Við taka ýmis skemmtiatriði og meðal
annars mun Salka Sól bregða sér
í búning Ronju ræningjadóttur.
Ronja ætlar að tala um vorið og
allar verurnar í Matthíasarskógi,
syngja lög og fá krakkana til að
syngja með.
Krökkunum finnst
Ronja skemmtileg
„Þegar Ronja kemur
fram þá syngja
allir krakkarnir
með hástöfum og
þekkja söguna.
Mér finnst það æði.
Það sem ég elska
mest er að krakk
arnir verða svo
ótrúlega góðir þegar
þeir syngja Anímónu
sönginn,“ sem er lag sem
Ronja syngur í sýningunni. „Þetta
er fallegt lag sem fjallar um fallega
hluti þannig að þau verða eitthvað
svo ótrúlega góð. Það verða allir
svo stilltir þegar þeir syngja lögin
hennar Ronju. Ég held að krökk
unum finnist Ronja líka bara
skemmtileg, enda er hún ævin
týrastelpa.“
Salka er sjálf úr Kópavoginum,
en hún flutti þangað sjö ára og
fór alltaf á hátíðina á Rútstúni
með fjölskyldu sinni. Hún byrjaði
snemma að taka þátt í hátíðinni
með beinum hætti, ýmist sem
trompetleikari, í brúðuleikhúsinu,
starfsmaður félagsmiðstöðvar eða
söngkona í Amabadama, enda
hefur Salka komið víða við.
Stemmingin alltaf góð
Salka segir að í minningunni hafi
stemmingin á hátíðinni alltaf
verið jafn góð. „Kópavogsbær
er svo ótrúlega heppinn að eiga
skólahljómsveit Kópavogs sem
gerir allar bæjarhátíðir betri.“
Sjálf spilaði Salka á trompet fyrir
hljómsveitina.
Hún byrjaði að þramma með
trompetið þegar hún var um 13 ára
gömul og hélt uppi stemmingunni
í skrúðgöngunni. „Tók Öxar við
ána, Það er kominn
17. júní og fleiri
góða smelli. Mér
fannst það alltaf ótrú
lega gaman.“ Það er mikil
tækni á bak við þrammið
í skrúðgöngum. „Maður þarf að
læra hvenær maður á að byrja
lagið í tengslum við trommuslátt
inn, hvenær maður á að taka stór
skref í beygjum og hvenær maður
á að taka lítil skref, það fer eftir
hvort þú ert hægra eða vinstra
megin í skrúðgöngunni. Þetta er
rosaleg tækni.“
Skemmtilegast var að
spila í skrúðgöngunni
Salka var tvö ár í röð í götuleikhúsi
Kópavogs og byrjaði að sýna með
þeim þegar hún var í kringum 15
ára aldur. „Þá voru leikararnir í
götuleikhúsinu að labba í skrúð
göngunni í búningum.“
Um tíma var Salka að vinna
í félagsmiðstöð en starfsmenn
félagsmiðstöðva Kópavogs taka
virkan þátt í hátíðinni. „Þá var
maður oft í gulu vesti á hátíðinni
að passa upp á allt.“
Skemmtilegast var samt að
spila í hljómsveitinni og Salka
segist enn grípa í trompetið við
sparitækifæri. „Það var gaman
að þramma fram hjá mömmu og
pabba sem vinkuðu manni, ég gat
náttúrulega ekkert vinkað til baka
með báðar hendur á trompetinum,
rosalega mikið að einbeita mér.“
Páll Óskar frumflytur nýtt lag á hátíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Á hátíðinni verða skemmtanir fyrir alla fjölskylduna og metnaðarfull dagskrá eins og vanalega. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Framhald af forsíðu ➛ Þegar Ronja kemur
fram þá syngja
allir krakkarnir með
hástöfum og þekkja
söguna. Mér finnst það
æði. Það sem ég elska
mest er að krakkarnir
verða svo ótrúlega góðir
þegar þeir syngja
Anímónusöng-
inn.
Salka Sól Eyfeld
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
B
-0
3
9
4
2
3
3
B
-0
2
5
8
2
3
3
B
-0
1
1
C
2
3
3
A
-F
F
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K