Fréttablaðið - 15.06.2019, Page 64
Elskuleg eiginkona mín og systir,
Gréta Sigríður Haraldsdóttir
lést 6. júní. Jarðarförin fer fram frá
Lindakirkju 26. júní kl. 13.00.
Hrafnkell Þorvaldsson
Sigrún J. Haraldsdóttir
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Dagbjört Guðrún
Baldvinsdóttir
áður Brekkugötu 12, Akureyri,
lést 10. júní síðastliðinn á
Dvalarheimilinu Lögmannshlíð umkringd
ástvinum. Útför fer fram þann 21. júní klukkan 13.30 frá
Urðarkirkju, Svarfaðardal. Sérstakar þakkir til starfsfólks
Lögmannshlíðar fyrir einstaka umönnun og hlýju á
undanförnum árum.
Jóhann Reynir Arason Hanna Birna Jónsdóttir
Margrét Baldvina Aradóttir Benedikt Hjaltason
Þuríður Jóna Aradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær dóttir okkar,
systir og barnabarn,
Þorbjörg Rósa
lést á heimili sínu mánudaginn 3. júní.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 19. júní kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Gunnhildur Hlöðversdóttir Ómar Scheving
Bergrún Kristinsdóttir Svanhildur Ómarsdóttir
Halldóra Kristinsdóttir Anton Scheving
Hrefna Gunnarsdóttir Daníel Scheving
Guðrún Guðmundsdóttir
Ástkær sonur okkar og bróðir,
Einar Hannesson
Laugavegi 86-94,
Reykjavík,
lést 7. júní.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
miðvikudaginn 19. júní kl. 13.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildarinnar í
Kópavogi fyrir góða umönnun.
Hannes Einarsson Ragnheiður Gísladóttir
Linda Saennak Buanak Grétar Hannesson
Sveinn Hannesson
Stefán Hannesson
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Kristrún Ólafsdóttir
Skipalóni 22, Hafnarfirði,
lést á Landakotsspítala þann 12. júní sl.
Útför hennar fer fram frá Garðakirkju
25. júní, kl. 13.00. Blóm eru vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Gideonfélagið á Íslandi.
Hróbjartur Árnason Sveinbjörg Katrín Pálsdóttir
Hjördís Árnadóttir Jóhann Jóhannsson
Helena Árnadóttir Tómas Njáll Möller
og barnabörn.
Ástkær systir og mágkona,
Linda Anna Ragnarsdóttir
Hjallaseli 55, Reykjavík,
lést 12. júní á eyjunni
Sifnos í Grikklandi.
Útförin verður auglýst síðar.
Dennis Davíð Jóhannesson Hjördís Sigurgísladóttir
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir og afi,
Jón Gunnar Skúlason
verkfræðingur,
Sólbraut 12, Seltjarnarnesi,
lést 7. júní á hjúkrunarheimilinu Sóltúni.
Útför hans fer fram frá Neskirkju
föstudaginn 21. júní kl. 13. Þeim sem
vildu minnast hans er bent á Parkinsonsamtökin.
Hildigunnur Ólafsdóttir
Marta María Jónsdóttir
Jóakim Uni Arnaldarson
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vináttu við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Grétu Óskarsdóttur
Sólarsölum 7, Kópavogi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
æðaskurðdeildar Landspítalans Fossvogi.
Helga G. Hauksdóttir Þorsteinn Guðbjörnsson
Margrét Hauksdóttir Hilmar Kristinsson
Grétar, Björg, Hildur Ýr, Íris Björk,
Margrét Helga, Júlía Dóra og Kristbjörn Óli
Elskulegur faðir minn,
tengdafaðir, afi og langafi,
Eyjólfur Einarsson
skipasmíðameistari,
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
lést þriðjudaginn 11. júní.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju föstudaginn 21. júní kl. 13.00.
Fríða Eyjólfsdóttir Guðmundur Þórðarson
barnabörn og fjölskyldur.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
i ll i undirbúnings og
framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju
að leiðarljósi og f fa legum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Konur á öllum aldri hlaupa, skokka eða ganga í dag víðs-vegar um land í hinu árlega kvennahlaupi ÍSÍ og sam-eina með því tvo mikilvæga
þætti, hreyfingu og samveru. Hlaupið
fer nú fram í þrítugasta skipti og Hrönn
Guðmundsdóttir heldur í alla spotta
sem sviðsstjóri almenningsíþrótta hjá
Íþróttasambandi Íslands. „Við erum
komin í yfir áttatíu staði sem hlaupið
verður á, bæði innan lands og utan.
Þetta er orðinn ómissandi viðburður
víða um allt land,“ segir hún stolt og
rifjar upp að þegar ævintýrið hófst hafi
það virst átak að koma konum út að
hlaupa. „Þá áttu karlarnir kannski sína
tíma í bumbubolta en konurnar voru
ekki mikið að hópa sig nema í sauma-
klúbbum. Öðruvísi en núna þegar konur
eru með öfluga hlaupahópa, gönguhópa,
hjólahópa og blak.“
Svo rifjar hún upp hvernig allt byrjaði.
„Fyrsta hlaupið var í kringum íþrótta-
hátíð ÍSÍ í Garðabæ 1990. Lovísa Einars-
dóttir íþróttakennari kom því á kopp-
inn, hún hafði kynnst svona hlaupum í
Finnlandi. Enginn vissi hvort búast ætti
við tugum eða hundruðum en 2.000
manns tóku þátt í fyrsta hlaupinu. Þar
með var búið að blása byr í segl, ekki
varð aftur snúið og þátttakendum fjölg-
aði með hverju árinu,“ segir hún og bætir
við að algengt sé að margir ættliðir, vin-
konur eða systur hlaupi saman.
Kvennahlaupið er ekki séríslenskt
fyrirbæri en Hrönn segir það þó fram-
kvæmt með öðrum hætti hér en ann-
ars staðar. „Víða erlendis fer það fram í
mörgum borgum á mismunandi tímum
þannig að sama konan getur tekið þátt
víða. Sérstaða Íslands er sú að hlaupið er
á sama degi um allt land og það er líka
einstakt fyrir íslenskan íþróttaviðburð.“
gun@frettabladid.is
Kvennahlaup í þrjátíu ár
Þrítugasta Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður hlaupið á yfir 80 stöðum í heiminum í dag,
um 70 á Íslandi. Það er stærsti almennings-íþróttaviðburður á Íslandi á hverju ári.
Hrönn segir kvennahlaupið ómissandi viðburð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
A
-E
5
F
4
2
3
3
A
-E
4
B
8
2
3
3
A
-E
3
7
C
2
3
3
A
-E
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K