Fréttablaðið - 15.06.2019, Side 66
Ronja Björk Bjarnadóttir, tólf ára,
var ráðgjafi við gerð bókar sem afi
hennar, Sverrir Björnsson, skrifaði
og er nýlega komin út. Bókin heitir
Nýr heimur – Ævintýri Esju í borg-
inni og fjallar um fjallastelpuna
Esju og strákinn Mána. En fyrsta
spurning til Ronju er:
Hvernig er að heita Ronja?
Alveg ágætt. Ég var samt ekki ánægð
með það þegar ég var í leikskóla,
því þá sögðu leikskólakennararnir
nafnið mitt eins og rassálfarnir í
Ronju ræningjadóttur.
Ronja ræningjadóttir er mikið
náttúrubarn. Ert þú það líka?
Já, ég mundi alveg þora að segja það.
Kannski fjallastelpa eins og Esja
í bókinni?
Pínu. Það er fjall fyrir ofan sumar-
bústaðinn okkar og mér finnst
gaman að klifra þar upp og hafa
kósí. Rétt hjá toppnum er hellir með
fullt af mosa og fyrir ofan hann er
hola, þar skín sólin inn.
Hjálpaðir þú afa þínum með bók-
ina Nýr heimur?
Já, þetta er sko gamla náttsagan
mín, frá því ég var í pössun hjá afa
mínum, þá sagði hann mér þessa
sögu oft. Það hefur alltaf verið best
að koma til ömmu og afa út af sög-
unum.
Búa þau til sögurnar sjálf?
Já, afi sagði frænku minni söguna
um Esju á undan mér svo hún er
búin að vera til lengi og er alltaf góð.
Er Esja alltaf góð?
Maður gæti alveg hugsað sér það en
stundum gerir hún eitthvað klaufa-
legt af sér.
Hvernig strákur er Máni?
Hann er fínn, hann hjálpaði Esju
þegar hún átti enga vini og þá byrj-
aði hún að treysta. Hún hafði verið
lögð í einelti uppi í fjallinu af því að
hún gat sungið.
En hvað ætlar þú að gera í sumar?
Ég kenni sjálfri mér heljarstökk og
kraftstökk á trampólíninu, leik við
vinkonur mínar og ætla með þeim
á hestanámskeið. Ætla líka að fara
til Englands á ættarmót. Það er mitt
fyrsta.
Hefur þú farið til útlanda áður?
Já, við förum árlega í skíðaferð og
stundum til Tenerife. Svo hef ég
farið kringum landið, það er líka
gaman.
Hvað finnst þér fallegast að sjá á
Íslandi?
Einu sinni fór ég í íshelli og þar voru
grýlukerti bæði úr loftinu og gólf-
inu, það var sérstakt en mér finnst
hraun sem er þakið mosa fallegast.
Kenni sjálfri
mér heljarstökk
og kraftstökk
Ronja Björk við mynd af sjálfri sér frá því hún var lítil. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar? Myndasögu-
bækur eins og dagbók Kidda
klaufa.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Kidda klaufa og
sumarfríið hans.
Hvaða bók ætlarðu að lesa
næst? Örugglega nýjustu Kidda
klaufa bókina.
Ef þú myndir skrifa bók, um
hvað væri hún? Ég mundi skrifa
sögu um mig, í sama stíl og Kiddi
klaufi er.
Manstu eftir fyrstu bókinni sem
var í uppáhaldi hjá þér? Um-
hverfis Ísland í 30 tilraunum eftir
Ævar var lengi í miklu uppáhaldi.
Ferðu oft á bókasafnið? Mætti
vera duglegri, þarf að finna
bókasafnskortið mitt aftur.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Tölvuleikir, að teikna og skrifa
sögur.
Í hvaða skóla ertu? Vesturbæjar-
skóla.
Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Forlagið efna til sumarlest-
urs fyrir krakka. Verið velkomin í bókasafnið í ykkar hverfi og takið
þátt í lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók
að gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
Lestrarhestur vikunnar: Viðar Nói Hansson
Viðar Nói, 11 ára, er ánægur með bókina sem hann fékk.
„Hér er skrítin þraut,“
sagði Lísaloppa og horfði
á alla þessa hringi. „Spurt
er hvor rauði hringurinn
skyldi nú vera stærri,
A eða B,“ bætti hún
við hugsi. „Er það ekki
augljóst?“ sagði Kata.
Lísaloppa horfði nokkra
stund á rauðu hringina.
„Nei, ég er ekki alveg
viss,“ sagði Lísaloppa
og það mátti næstum
heyra hana brjóta heilann.
„Þetta er kannski einhver
sjónhverng,“ bætti hún
við. „Hu, sjónhverng,“
hnussaði í Kötu. „Alltaf
verið að rugla í manni
endalaust.“ En núna var
hún líka orðin forvitin
og horfði hugsi á rauðu
hringina. Svo leit hún á
Lísuloppu. „Það er verið
að plata okkur, er það
ekki?“ Lísaloppa svaraði
ekki, hún var djúpt hugsi.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
357
Sérð þú
hvor rauði
hringurinn
er stærri,
A eða B?
?
?
?
Lausn á gátunni
Rauðu hringirnir A og B eru jafn stórir, þetta er sjónhverfing?
1 5 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
A
-F
9
B
4
2
3
3
A
-F
8
7
8
2
3
3
A
-F
7
3
C
2
3
3
A
-F
6
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K