Fréttablaðið - 15.06.2019, Page 80
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Torg. ehf
Sirrýjar
Hallgrímsdóttur
BAKÞANKAR
Veðrið hefur verið fárán-lega gott undanfarið og það lagar verulega andlegt
ástand þjóðarinnar. Síðasta
sumar var ömurlegt, a.m.k. fyrir
okkur á suðvesturhorninu,
endalaus rigning og leiðindi. Það
er ótrúlegt hvað sól og gott veður
getur glatt geðið í okkur, þjóðin
verður besta útgáfan af sjálfri sér
þegar veðrið er gott.
En það er f leira sem gleður
en bara veðrið. Íþróttafólkið
okkar heldur áfram að standa
sig vel, sama hvert litið er. Bara í
þessari viku unnum við Tyrki í
fótbolta og handboltalandsliðið
komst skrefi nær því að tryggja
sig inn í úrslitakeppni Evrópu-
mótsins, í ellefta sinn í röð. Við
eigum það til að gleyma því
hversu í raun fjarstæðukennt
það er að 350.000 manna þjóð
eigi landslið karla og kvenna í
fjölmörgum íþróttagreinum sem
ítrekað standa jafnfætis þeim
bestu í heiminum. En kannski
er það galdurinn, við neitum að
viðurkenna hvað við erum fá,
látum það ekki skilgreina okkur.
Þetta er ótrúlega mikilvægt
fyrir börnin okkar og ungt fólk.
Skilaboðin sem íþróttafólkið
okkar sendir til þeirra eru þau
að það skiptir ekki máli hvaðan
þú kemur. Það sem skiptir máli
er hversu mikið ertu tilbúinn til
að leggja á þig, þú uppskerð sem
þú sáir.
En þetta á ekki bara við um
íþróttirnar. Sömu skilaboð
sendir listafólkið okkar, tón-
listarmennirnir og rithöfund-
arnir og allir þeir sem hafa breitt
út menningu okkar og listir um
víða veröld. Þessar fyrirmyndir
eru gríðarlega mikilvægar, það
er ótrúlega verðmætt að ungt
fólk alist upp í því andrúmslofti
að allir vegir séu færir, ef nógu
hart er lagt er að sér.
Fyrirmyndir
Teriyaki-gljáðir
kjúklingastrimlar
og sætlaukssósa.
TERIYAKI
Tilboðið inniheldur
tvö pizzadeig, pizzasósu,
ost, pepperoni, skinku
og grænmetisbakka.
Gildir út morgundaginn.
1
5
-0
6
-2
0
1
9
0
4
:5
1
F
B
0
8
0
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
A
-C
D
4
4
2
3
3
A
-C
C
0
8
2
3
3
A
-C
A
C
C
2
3
3
A
-C
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
8
0
s
_
1
4
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K