Fréttablaðið - 06.07.2019, Qupperneq 2
Veður
Norðan 3-10 og víða léttskýjað,
en norðvestan 10-15 á annesjum
norðaustanlands og rigning þar
seint um kvöldið. SJÁ SÍÐU 36
Sóluðu sig við fætur Ingólfs
Höfuðborgarbúar nutu sín úti í veðurblíðunni í gær. Mannlífið í borginni var
lifandi, sátu margir úti og létu fara vel um sig. Þar á meðal þetta par sem naut
þess að sóla sig við fætur Ingólfs Arnarsonar á Arnarhóli. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FLUGSÆTI Á RÝMINGARSÖLUMega P
lús!Komd’út í
ALLT AÐ AFSLÁTTUR
EINUNGIS Á PLUSFERDIR.ISI I I .I
LÖGREGLAN „Fleiri konur eru að
ljúka námi í Lögregluskólanum
þannig að eðli málsins samkvæmt
koma fleiri konur inn. Fyrir ekkert
löngu síðan var þetta stöðin með
hæstan starfsaldur og það hafa
eiginlega orðið kynslóðaskipti
núna síðastliðin ár,“ segir Kristján
Ólafur Guðnason, aðstoðaryfir
lögregluþjónn á lögreglustöðinni á
Vínlandsleið.
Lögreglustöðin er ein fjögurra
stöðva á höfuðborgarsvæðinu og
þar starfa þrjátíu og fimm manns,
nítján konur og sextán karlar.
„Þegar ég byrjaði árið 2007 vorum
við mun færri heldur en við erum í
dag hjá lögreglunni á höfuðborgar
svæðinu, ég veit ekki hvernig töl
urnar eru núna, en breytingarnar
á þessum tíma eru rosalega miklar.
Það er svo gaman að sjá þær og hafa
fengið að upplifa þær,“ segir Ingi
björg Ýr Jóhannsdóttir, rannsóknar
lögreglumaður og jafnréttisfulltrúi
LRH.
Hvorki Kristján né Ingibjörg hafa
fyrr heyrt um lögreglustöð þar sem
starfa f leiri konur en karlar. „Ég
held að þetta sé bara heimsmet,
ég hef allavega ekki heyrt að þetta
sé svona nokkurs staðar annars
staðar,“ segir Ingibjörg og Kristján
tekur undir.
„Allavega held ég að þetta hlut
fall þekkist ekki á stöð af þessari
stærðar gráðu. Við höfum rætt þetta
nokkrum sinnum og sagt að þetta
sé líklega heimsmet og það hefur nú
enginn hrakið það,“ segir hann.
Aðspurð hvort eitthvað sé sér
staklega gert á Vínlandsleið, sem
ekki tíðkast á öðrum lögreglu
stöðvum vegna fjölda kvenna sem
þar starfa segir Kristján að ekk
ert markvisst sé gert vegna kyns
Heimsmet í fjölda
kvenna í lögreglunni
Á lögreglustöðinni á Vínlandsleið starfa fleiri konur en karlar og er það lík-
lega eini staðurinn í heiminum þar sem hlutfall kvenna er hærra en karla í
lögreglunni. Endurnýjun starfsfólks og aukin aðsókn kvenna sögð ástæðan.
Mikið hefur verið lagt í uppbyggingu innviða á lögreglustöðinni á Vín-
landsleið þar sem starfa 19 konur en 16 karlar. FRETTABLADID/STEFÁN
starfsmanna en mikið sé lagt upp úr
vinnuumhverfinu. „Við bjuggum vel
fyrir vegna þess að við vorum byrj
uð á því að vinna í bæði innanhúss
málum hjá okkur og í starfseminni.
Því hvernig við getum orðið gott
lögreglulið og að það sé þannig að
það sé bæði gaman og gott að vinna
hérna. Úr þeirri vinnu settum við
okkur markmið, gildi og vinnu
reglur sem við vinnum eftir.“
Ingibjörg tekur undir orð Krist
jáns og segir mikið lagt upp úr líðan
fólks í vinnunni og að allir vinni að
því saman. „Hér er hlustað á fólk og
ég held að það sé mjög mikilvægt.
Ég kom til dæmis þeirri hugmynd
áleiðis að hafa frí dömubindi á bað
herbergjunum. Það er dæmi um
eitthvað sem veitir okkur konunum
öryggi en kostar lítið og er auðvelt í
framkvæmd. Stemningin er þann
ig að maður viðrar hugmynd og svo
er Kristján bara farinn að kaupa
dömubindi,“ segir Ingibjörg.
„Ég held að þetta hafi kostað um
þrjú þúsund krónur og ferð í búðina,
svo auðvelt er það,“ segir Kristján og
bætir við að eins og í öllu öðru séu
það einstaklingarnir sem skipti
máli en ekki kyn þeirra. „Við erum
afar heppin með þá einstaklinga
sem starfa hér.“
birnadrofn@frettabladid.is
Ú T L E N D I N G A M Á L Þórd ís Kol
brún R. Gylfadóttir dómsmála
ráðherra breytti í gær reglugerð
um út lendinga sem veitir nú Út
lendinga stofnun heimild, á grund
velli sérstakrar beiðni eða að eigin
frumkvæði, til að taka til efnis legrar
með ferðar mál barna sem hlotið
hafa vernd í öðru ríki, ef það eru
meira en tíu mánuðir liðnir frá því
að um sókn þeirra barst ís lenskum
stjórn völdum.
Mál Sarwaryfeðganna og Safari
fjölskyldunnar falla undir reglu
gerðina, sem hefur þegar tekið gildi,
að sögn lögmanns þeirra, Magnúsar
D. Norðdahl.
Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega
um mál þeirra Asa dullah, Ali og
Madhi Sawary síðustu mánuði. Til
stóð að vísa þeim úr landi á mánu
daginn en hætt var við það eftir að
annar drengjanna fékk tauga á fall
vegna kvíða. Hefur hann nú fengið
viðeigandi aðstoð.
Asadullah segist þakklátur öllum
þeim sem hafa vakið athygli á máli
hans. Hann og drengirnir, Ali og
Madhi, voru viðstaddir fjölmenn
mót mæli sem fóru fram á fimmtu
daginn.
„Þeir voru mjög glaðir þegar ég
sagði þeim að allir sem væru við
staddir væru þar til að styðja þá og
vildu halda þeim á Ís landi,“ segir
Asa dullah. – la
Verður ekki
vísað úr landi
Asadullah Sarwary, Mahdi Sarwary
og Ali Sarwary. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VESTURLAND Slökkvilið Borgar
byggðar verður ekki með bakvakt
um helgina líkt og hefur verið
undanfarnar helgar. Í vikunni var
aflýst óvissustigi vegna eldhættu á
Vesturlandi.
Bjarni Þorsteinsson, slökkviliðs
stjóri í Borgarbyggð, segir að hann
hefði helst kosið að hafa áfram
bakvakt um þessa miklu ferða
helgi. „Fólk þarf samt ekki að hafa
neinar áhyggjur, við erum tryggðir.
Það hefur líka rignt þannig að það
er ekki lengur yfirvofandi hætta á
ferðinni,“ segir Bjarni.
Vill hann þó ítreka við fólk að
fara varlega með eldfæri. – ab
Engin bakvakt í
Borgarbyggð
Bjarni Þorsteins-
son, slökkviliðs-
stjóri í Borgar-
byggð.
Fleiri myndir af mannlífinu er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Frétta-
blaðs-appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
6 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
6
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
6
0
-6
0
C
0
2
3
6
0
-5
F
8
4
2
3
6
0
-5
E
4
8
2
3
6
0
-5
D
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K