Fréttablaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.07.2019, Blaðsíða 10
Samfélagsfræðsla fyrir flóttamenn á vegum Vinnumálastofnunar Vinnumálastofnun óskar eftir tilboðum í hönnun og og gerð kennsluefnis í samfélagsfræðslu sem tekur mið af sérþörfum flóttamanna. Um er að ræða 50 kennslustunda efni er varða eftirfarandi 7 flokka: 1. Nýr innflytjandi á Íslandi. 2. Saga, landafræði og lífshættir. 3. Börn og fjölskyldur. 4. Heilbrigðismál. 5. Menntun og hæfni. 6. Atvinnulíf. 7. Lýðræði og velferðarsamfélagið. Til hliðsjónar má horfa til samfélagsfræðslu eins og hún er framkvæmd á Norðurlöndum. Helstu kröfur: • Efnið skal vera aðgengilegt á ensku, arabísku, farsí, darí og kúrdísku. Valkostur er að vera með efnið á ensku og textað á framangreindum tungumálum. • Efnið skal vera aðgengilegt á stafrænu formi og skal vera unnt að nýta það í fjarkennslu. • Efnið skal uppfylla helstu kröfur fullorðinsfræðslu. Vinnumálastofnun mun eiga efnið og er heimilt að nota það að vild og fela fræðsluaðilum öðrum en þeim sem vinna efnið að nota það. Vinnumálastofnun áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboð- um. Ef gengið verður til samstarfs verður gerður þjónustu- samningur við tilboðsgjafa. Tilboðum sem lýsa nálgun og efnistökum skal skilað til Vinnumálastofnunar á netfangið: virkni2019@vmst.is Frestur til að skila tilboðum er til 9. ágúst 2019. TÆKNI Bandaríski tæknirisinn Apple ætlar sér að skipta út lyklaborðs- hönnuninni sem finna hefur mátt á MacBook-fartölvum frá árinu 2015. Þetta hafði tæknimiðillinn The Verge eftir greinandanum Ming- Chi Kuo. Síður á borð við 9to5Mac og MacRumors hafa sagt sömu sögu. Hinn svokallaði fiðrildarofi (e. butterf ly switch) sem hefur ein- kennt lyklaborðin er á útleið og segir The Verge það meðal annars vera vegna þess hversu óáreiðanlegir rofarnir eru. Ryk hafi ítrekað komist inn í rofana og þannig eyðilagt þá. Apple baðst í maímánuði afsök- unar á því hversu óáreiðanleg lykla- borðin eru. „Við erum meðvituð um að afmarkaður hópur notenda á í erfiðleikum með þriðju kynslóð fiðrildalyklaborða og biðjumst afsökunar á því,“ sagði í yfirlýsingu þar sem einnig sagði að flestir væru þó ánægðir með lyklaborðin. – þea Apple ákveður að skipta um lyklaborð á MacBook SÚDAN Herforingjastjórnin sem hefur verið við völd í Súdan frá því Omar al-Bashir var steypt af stóli í apríl síðastliðnum komst í gær að samkomulagi við stjórnarandstöð- una í landinu um að fylkingarnar tvær muni deila völdum. Samkomu- lagið gildir til þriggja ára en í lok þess tímabils fara fram kosningar. Samkomulaginu var fagnað inni- lega í Afríkuríkinu í gær. Að því er Reuters greinir frá hefur það vakið vonir landsmanna á ný eftir erfið átök og efnahagsörðugleika. „Við höfum unnið sigur gegn órétt- lætinu. Markmið okkar er að ná fram frelsi og réttlæti og að finna ungu fólki störf. Vald í höndum almennra borgara og lýðræðið eru framtíð Súdans,“ hafði miðillinn eftir hinum 23 ára Shihab Salah. Mótmælendahreyfingin hefur verið áberandi frá því í desember. Fyrst beindust mótmælin gegn fyrrnefndum forseta en síðar gegn herforingjastjórninni. Talið er að á þriðja hundrað hafi farist. – þea Samkomulag í Súdan Loftslagsmótmæli Mótmælendur úr röðum útrýmingaruppreisnarinnar svokölluðu, eða Extinction Rebellion, stilltu sér upp fyrir framan franska sendiráðið í Lundúnum í gær. Franska lögreglan hefur verið harðlega gagnrýnd í vikunni fyrir að beita hörku gegn loftslagsmótmælendum á einum heitasta degi í sögu Frakklands. NORDICPHOTOS/AFP Fagnað í höfuðborginni Kartúm. NORDICPHOTOS/AFP Mac-lyklaborðin verða þykkari þegar fiðrilda- rofunum verður skipt út. ÍRAN Yfirvöld í Íran eru afar ósátt við að breskir sjóliðar hafi kyrr- sett íranskt olíuf lutningaskip við Gíbraltar fyrr í vikunni. Það gerðu Bretar vegna gruns um að íranska skipið væri að f lytja olíu til Sýr- lands, í trássi við viðskiptaþving- anir Evrópusambandsins. Mohsen Rezayee, fyrrverandi yfirmaður írönsku Byltingavarða- sveitarinnar og nú meðlimur ráðgjafaráðs æðstaklerksins Ali Khamenei, sagði á Twitter í gær að þótt Íran hafi aldrei átt frumkvæði að átökum frá byltingu hafi ríkið aldrei hikað við að svara fyrir sig. „Ef Bretar skila ekki íranska olíu- f lutningaskipinu er það skylda Írana að kyrrsetja breskt olíuflutn- ingaskip á móti,“ tísti Rezayee. Að því er breska ríkisútvarpið greindi frá var f logið með um þrjá- tíu breska sjóliða til Gíbraltar til þess að kyrrsetja skipið. Yfirvöld á Gíbraltar báðu um aðstoðina við að kyrrsetja skipið, er heitir Grace 1. Íranska ríkisstjórnin álítur kyrr- setninguna ólöglega. Á meðan samband Írans og Bandaríkjanna hefur versnað stöðugt undanfarin misseri virðist þetta mál til þess fallið að gera slíkt hið sama fyrir sambandið við Breta. Mostafa Kavakebian, sem leiðir vináttunefnd þingmanna bæði Írans og Bretlands, sagði á Twitter að kyrrsetningin væri „í raun sjó- rán og ólögleg aðgerð gegn Íran“. Breska utanríkisráðuneytið hafnar því alfarið að um sjórán hafi verið að ræða. Bandaríski þjóðaröryggisráðgjaf- inn John Bolton var kátur. „Frábær- ar fréttir: Bretar kyrrsettu olíuflutn- ingaskipið Grace 1, sem var hlaðið íranskri olíu á leið til Sýrlands,“ tísti Bolton. thorgnyr@frettabladid.is Hóta kyrrsetningu á bresku skipi á móti Breskir sjóliðar við kyrrsetningu Grace 1. NORDICPHOTOS/AFP Stjórnvöld í Íran foxill vegna kyrrsetningar olíuflutningaskips við Gíbraltar. Ráðgjafi æðstaklerks hótar kyrr- setningu bresks skips á móti. Segja að aðgerðin hafi verið sjórán. 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 6 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 0 -6 F 9 0 2 3 6 0 -6 E 5 4 2 3 6 0 -6 D 1 8 2 3 6 0 -6 B D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.