Fréttablaðið - 06.07.2019, Side 55

Fréttablaðið - 06.07.2019, Side 55
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hólmfríður S. Gunnlaugsdóttir Bólstaðarhlíð 62, Reykjavík, lést 1. júlí. Útförin fer fram frá Háteigskirkju föstudaginn 12. júlí kl 15 Grétar Sigurgeirsson Gunnvör Sverrisdóttir Margrét Óskarsdóttir Steinar Þór Guðlaugsson Gylfi Óskarsson Guðrún Sigmundsdóttir og ömmubörn. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför Hallbjörns Eðvarðs Þórssonar Stórhóli 29, Húsavík. Helena Eydís Ingólfsdóttir Hera Karin Hallbjörnsdóttir Arna Júlía Hallbjörnsdóttir Helga Hallbjörnsdóttir Eyjólfur Magnússon Þór Ottesen Pétursson og systkini. Móðir okkar, amma og langamma, Bergný Jóhannsdóttir frá Skriðufelli, lést fimmtudaginn 13. júní. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Arnheiður Helgadóttir lést á dvalarheimilinu Fossheimum 30. júní. Útförin fer fram frá Selfosskirkju mánudaginn 8. júlí kl. 13. Fyrir hönd aðstandenda, Helgi Þorvaldsson Þórey Hilmarsdóttir Þorvaldur Þorvaldsson Erlín K. Karlsdóttir Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát eiginkonu minnar og systur, Grétu Sigríðar Haraldsdóttur Kórsölum 1. Einnig færum við starfsfólki á deild 12G Landspítala sérstakar þakkir. Hrafnkell Þorvaldsson Sigrún J. Haraldsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Elín Halldóra Halldórsdóttir Vestursíðu 9, Akureyri, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð í faðmi fjölskyldu þann 2. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Kristjana Rúnar Halldór Lovísa Hólmkell Kristín Sóley Þórir Alyona Hólmfríður Berglind Guðmundur Már ömmu-, langömmu-, langalangömmubörn og aðrir aðstandendur. Guðsþjónusta verður í Staðarkirkju í Grunna- vík í mynni Jökulfjarða á morgun, sunnudag. Séra Magnús Erlingsson siglir frá Ísafirði ásamt organista og kirkjugestum með Ölveri ÍS og til baka um miðnætti annað kvöld. Það er messað í Staðarkirkju í Grunnavík  með  nokkurra ára millibili, kannski svona á fjögurra  ára fresti, þó er engin ákveðin hrynjandi í því. Það býr náttúrlega enginn þarna lengur en fólk dvelur þar stundum í sumarhúsum. Nú ætlar Átthagafélag Grunnvíkinga að standa fyrir guðs- þjónustu þar á morgun, sunnudag,“ segir séra Magnús Erlingsson, sóknar- prestur á Ísafirði,  sem sér um helgi- haldið. Farið verður með Ölveri ÍS frá Ísafjarðarhöfn klukkan 15.30, að því er fram kemur á bb.is, og komið aftur um miðnætti. Séra Magnús upplýsir að um hálftímagangur sé frá ströndinni til kirkjunnar.  Jafnan er vel mætt þegar boðað er til messu í eyðibyggðunum fyrir vest- an, að sögn séra Magnúsar. „Ég var um síðustu helgi með messu á Stað í Aðal- vík, þar voru rúmlega sextíu manns. Kirkjan rúmaði það en það var setið í nánast öllum bekkjum. Það er þann- ig að þegar svona sjaldan er messað þá mætir fólk. Oft eru það félög sem standa að þessum helgistundum eða þær eru í tengslum við ættarmót og þá eru kirkjurnar fullar, jafnvel þó engir séu skráðir með búsetu í sókninni.“ Aðalvík er hluti af friðlandi Horn- stranda og þar er bara farið um fót- gangandi, að sögn séra Magnúsar. „Þetta er bara gamli tíminn en það er orðinn mikill gróður á þessum stöðum. Í Aðalvík  voru kirkjugestir vopnaðir sveðjum til að ryðja sér leið að kirkjunni gegnum kerfil og hvönn. En Staðarkirkja í Grunnavík stendur á mel. Aðalhvönnin þar er í kirkjugarð- inum sem er svolítið frá kirkjunni og svo sækir kerfillinn á. Ég sá hann ekki þegar ég kom þarna fyrst.“ Séra Magnús kveðst hafa  verið sóknar prestur fyrir vestan síðan 1991. „Ég ætlaði að vera í eitt ár en er enn, það er svo gott að vera hérna.“ Hann kveðst oft hafa þjónað áður í eyðibyggðunum og telur það ekki eftir sér. „Ég sigli oft með sómabátum hér yfir Djúpið, legg á djúpið eins og lærisveinarnir gerðu forðum, í alls konar veðri, og geng með hempuna á bakinu til kirkju.“ Það horfir vel með veður nú um helgina, en séra Magnús segir það ekki skipta hann máli. „Ég fer hvernig sem veðrið er, svo fremi sem skipstjór- inn vill sigla. Það er stór bátur sem fer núna og þar er töluvert pláss. Með mér verður Kjartan Sigurjónsson sem var hér organisti fyrir mörgum árum. Hann ætlar að koma og spila á hið fót- stigna harmóníum sem í kirkjunni er. Vonandi virkar það, en enginn veit það fyrr en komið er á staðinn.“ Út af hverju ætlar hann svo að leggja í predikuninni? „Heyrðu, texti dagsins er sígild dæmisaga um tvo syni. Annar þeirra heimtar föðurarfinn fyrir fram, fer og sólundar honum, kemur svo heim aftur og faðirinn tekur hann í sátt og fyrirgefur honum.“ Samkvæmt bb.is  verður hægt að kaupa veitingar hjá Sigurrósu á Sútara- búðum sem verður  með kökuhlaðborð og kaffi eftir messu. gun@frettabladid.is Leggur á djúpið eins og lærisveinarnir gerðu forðum Séra Magnús Erlingsson sóknarprestur á siglingu úti á Djúpinu í sólskinsskapi. Ég var um síðustu helgi með messu á Stað í Aðalvík, þar voru rúmlega sextíu manns. Kirkjan rúmaði það en það var setið í nánast öllum bekkjum. Fróðleikur um Stað í Grunnavík l Staður í Grunnavík var prest- setur og kirkjustaður frá gamalli tíð. Kirkjan er helguð Maríu mey. l Séra Pjetur Maack Þorsteinsson varð prestur á Stað árið 1884 en hann drukknaði á heimleið úr kaup- stað 8. september 1892 skammt undan landi og er svipvindi kennt um. l Kjartan Kjartansson tók við sem prestur. Hann byggði íbúðarhús í Sætúni. Kjartan var talinn fyrirmynd að sögupersónunni Jóni Prímusi í Kristnihaldi Halldórs Laxness. l Jónmundur Halldórsson tók við af Kjartani árið 1918 og var prestur á Stað til 1954. Hann skrifaði dagbók um líf og starf í Grunnavík. l Prestsetrið á Stað brann 1920 á sama tíma og séra Jónmundur jarð- söng menn sem fórust við leit að Sumarliða pósti Brandssyni er hvarf fram af hengibrún við Vébjarnarnúp rétt fyrir jól árið 1920. Heimild: Wikipedia „Hafliði Másson og Þorgils Oddason og aðrir fornhöfðingjar, er söfnuðu fjölmenni til þingreiðar, myndu vafalaust kætast, ef þeir mættu líta upp úr gröfum sínum og sjá mannareið þá, sem verið hefir til Þingvalla síðustu dagana. Myndi þeim þykja senni- legt, að nú væru stórdeilur í landi, og drægju goðorðsmenn saman flokka.“ Svo hljóðaði umfjöllun Tímans frá 8. júlí 1950 um fyrsta landsmót hestamanna sem var sett á Þing- völlum þann 6. júlí 1950. Til Þingvalla kom fjöldi fólks með úrvals- gæðinga og keppnishesta en mótið sjálft var haldið helgina eftir. Alls voru sýnd 82 hross víðsvegar af landinu en stóðhesturinn Hreinn úr Skagafirði vann til fyrstu verðlauna í hópi stóðhesta og hlaut Sleipnisbikarinn. Eigandi hans var Hannes Stefánsson, bóndi að Þverá í Blönduhlíð. Knapi var Páll Sigurðsson. Svala frá Núpi í Haukadal fékk fyrstu verð- laun í flokki hryssa. Þ E T TA G E R Ð I S T: 6 . J Ú L Í 195 0 Fyrsta landsmót hestamanna var sett T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 31L A U G A R D A G U R 6 . J Ú L Í 2 0 1 9 0 6 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :3 7 F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 0 -9 2 2 0 2 3 6 0 -9 0 E 4 2 3 6 0 -8 F A 8 2 3 6 0 -8 E 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 5 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.