Fréttablaðið - 06.07.2019, Síða 66
Síðumúla 34 • 108 Reykjavík
Sími 696 5600 • rafsol@rafsol.is
ENDURNÝJUN
OG VIÐHALD
Löggiltur rafverktaki
Sími:
696 5600
rafsol@rafsol.is
Tónleikagestir í Jarð-böðunum í Mývatns-sveit dýfðu sér heldur betur í lukkupollinn um síðustu helgi þegar þeir nutu þess í sund-
fötum að sjá og heyra rapparann
Emmsjé Gauta fíla sig í botn á
þriðju tónleikunum sem hann
heldur í lóninu fyrir norðan. Gauti
var sjálfur varla enn kominn með
allar tíu tær á jörðina þegar Frétta-
blaðið náði tali af honum þar sem
hann borðaði taco á hlaupum enda
brjálað að gera og þétt prógramm í
gangi í það minnsta til jóla.
Gauti hélt sína fyrstu tónleika
í Jarðböðunum utan dagskrár á
Icelandic Airwaves fyrir þremur
árum. „Ég fann það bara þá strax að
það er eitthvað brjálæðislega ótrú-
legt í gangi þarna. Það gerðist bara
eitthvað og þarna voru einhverjir
straumar í gangi sem er erfitt að
lýsa,“ segir Gauti sem átti svo frum-
kvæðið að því að leikurinn var end-
urtekinn ári síðar. „Mér fannst þetta
heppnast svo rosalega vel að ég
hringdi í Airwaves og spurði hvort
við ættum ekki að gera þetta aftur.
Þetta er svo sérstakt að ég myndi
vilja gera þetta að árlegu partíi.“
Gauti segist hreinlega ekki geta
komið orðum að þeim töfrum sem
eru í gangi í jarðböðunum. „Það er
upplifun út af fyrir sig bara að fara
þarna ofan í og þegar tónleikum er
blandað saman við þetta þá verður
þetta mögnuð tvöföld upplifun.“
Það er skammt stórra högga
á milli hjá rapparanum sem er í
ofanálag einn eigenda hamborgara-
staðarins Hagavagnsins sem hefur
gert stormandi lukku á Melunum
með einföldum og góðum borg-
urum og ostasósu sem þykir svo góð
að hún geti varla verið af þessum
heimi. „Ég er á leiðinni til Færeyja
um næstu helgi að spila á G-Festival
og tveimur vikum eftir það fer ég til
Póllands að spila á stóru hipphopp-
festivali.“ Ekki leynir sér að Gauti er
sérstaklega spenntur fyrir Póllands-
Emmsjé Gauti
með tónleika við
Jarðböðin við Mývatn
Rapparinn
Emmsjé Gauti
var með
tónleika nú
síðastliðinn
fimmtudag
fyrir gesti
jarðbaðanna í
Mývatnssveit.
Þriðja barnið
var að bætast
í fjölskylduna
og nóg er að
gera á öllum
sviðum hjá
Gauta.
ferðinni. „Ég hef aldrei komið þang-
að áður en bara heyrt góða hluti.“
Gauti situr heldur ekki auðum
höndum í frítímanum, ef frítíma
skyldi kalla. Barnalánið hefur leikið
við hann og rétt tæplega þrítugur er
hann nýkominn með þriðja barnið
í fjölskylduna. Og til þess að keyra
gleðina enn frekar upp er hann
kominn í bullandi jólaskap í byrjun
júlí. „Jólin eru byrjuð hjá mér. Ég er
á fullu að undirbúa jólatónleikana
mína, Julevenner,“ segir Gauti en
verður síðan leyndardómsfullur
mjög þegar hann upplýsir að hann
sé búinn að bóka alla gesti en geti
ekki sagt meira um það í bili. „Ég
get ekki gefið neitt upp strax annað
en að það verður svaka sprenging.
Ég er líka að vinna að plötu, eins og
alltaf. Þannig að ég er bara á fullu að
búa til tónlist, steikja hamborgara,
undirbúa jólin og sinna börnum.
Svo verð ég líka þrítugur í nóvember
og planið er að tengja plötuútgáf-
una einhvern veginn við afmælið.
Kannski eitthvað Emmsjé Gauti í 30
ár. Hver veit?“
toti@frettabladid.is
Gauti spilaði fyrir gesti Jarðbaðanna þriðja árið í röð nú síðastliðinn fimmtudag. MYND/MARCIN KOZACZEC
Rapparinn segist ekki geta komið orðum að þeim töfrum sem eru í gangi Jarðböðunum. MYND/MARCIN KOZACZEK
6 . J Ú L Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ
0
6
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:3
7
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
0
-8
8
4
0
2
3
6
0
-8
7
0
4
2
3
6
0
-8
5
C
8
2
3
6
0
-8
4
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K