Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 8
8 10. maí 2019FRÉTTIR
Á
r er síðan húsnæðislaust
fólk sem dvaldi á tjaldsvæð-
inu í Laugardal var hvatt
til að flytja inn í herbergi í
Víðinesi. Um helmingur þáði það
en margt hefur farið úr skorðum
og flutningurinn virðist hafa ver-
ið gerður í flýti. „Þetta er eins og
geymsla sem enginn nennir að
taka til í,“ sagði gestur hjá einum
íbúanum sem tekið hefur að sér
að elda fyrir nokkra íbúa. Í dag eru
níu einstaklingar í Víðinesi.
Sumir mannanna eru sáttir við
vistina í Víðinesi, eins og Svan-
ur Elíasson sem DV ræddi við
þann 5. apríl síðastliðinn. En aðr-
ir síður og ástandið er mjög mis-
jafnt eftir göngunum. Svanur býr á
minni ganginum sem er mun bet-
ur hirtur en sá stærri. Líkt og aðr-
ir kvartaði Svanur þó yfir þeirri
óvissu sem ríkir um staðinn.
Þrif eru lamasessi, vegurinn
slæmur, rafmagnið stopult, nag-
dýr plaga íbúana og ekkert fyrir þá
að gera. Þar að auki vita íbúarn-
ir ekki hverjar framtíðarhorfurnar
eru á staðnum því ákvörðun borg-
arinnar liggur ekki fyrir þó langt sé
um liðið.
Sigurlaug Guðný Ingólfsdóttir
fer fyrir Kærleikssamtökunum,
sem hafa þann tilgang að vinna
með einstaklingum sem hafa
orðið fyrir áföllum í lífinu og ekki
náð sér á strik aftur. Hún, ásamt
öðrum í samtökunum, hefur
krafið borgina um svör og boð-
ið fram aðstoð samtakanna, en
fengið litlar undirtektir. DV ræddi
við Sigurlaugu og Sigþrúði Erlu
Arnardóttur hjá Reykjavíkurborg
um málið.
Mannlegur úrgangur fastur í
dúknum
Víðines var fyrst um sinn hjúkr-
unarheimili fyrir heilabilaða, um
tíma var það áfangaheimili fyrir
áfengissjúklinga og síðast bjuggu
þar hælisleitendur. Þegar blaða-
maður kom inn á stærri ganginn
í Víðinesi var þar mjög óþrifalegt,
svo vægt sé tekið til orða, og fólki
ekki bjóðandi. Stór ástæða fyr-
ir þessu er að í september síðast-
liðnum brast rotþró og mannlegur
úrgangur flæddi upp um öll ræsi,
vaska og salerni. Skömmu síðar
komu starfsmenn velferðarsviðs
og kjörnir fulltrúar Reykjavíkur-
borgar til þess að kanna aðstæð-
ur og þurftu að halda fyrir vit sér
vegna ólyktar. Var íbúunum sagt
að þrífa, og segjast þeir hafa reynt
hvað þeir gátu en úrgangurinn er
fastur í dúknum.
Fyrir síðustu jól komu starfs-
menn ræstingafyrirtækis með
stóra vél en jafnvel hún dugði ekki
til að fjarlægja úrganginn. Enn
þá sjást mikil ummerki þess sem
gerðist á gólfunum og innrétting-
um á baðherbergi og eldhúsi.
Gólfdúkurinn er ónýtur. Auðsjá-
anlegt er að rífa þyrfti allt inni í
þessum herbergjum og leggja nýj-
an dúk og innréttingar.
Mygla í lofti
Mygla er eitt af vandamálunum í
Víðinesi. Sérstaklega er hún áber-
andi á baðherbergi þar sem íbú-
ar hafa sturtuaðstöðu. Einn tel-
Hádegis tilboð
alla virka daga frá 11.30 - 14.00
Geirsgötu 8 • 553 1500
2.850 kr
Humarsúpa &
grillað fiskspjót
„ÞETTA ER EINS OG GEYMSLA SEM
ENGINN NENNIR AÐ TAKA TIL Í“
n Mikil óvissa fyrir íbúa Víðiness n Úrgangur úr rotþró fastur í dúknum n Banaslys á slæmum vegi n Mygla og nagdýr
„Þau segjast ætla að
einbeita sér að því að
hjálpa þeim sem eru hérna
fyrir en hér er allt í biðstöðu
og ekkert að frétta
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Miði settur upp Takmörkun á fundarhöldum.
MYNDIR: HANNA/DV