Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 14
14 FÓKUS - VIÐTAL 10. maí 2019 V iktor Freyr Jogensen er tuttugu og tveggja ára gam­ all Reykvíkingur sem glímt hefur við mikinn kvíða allt frá blautu barnsbeini. Kvíðinn hef­ ur heltekið líf Viktors í fjölda ára og hann lifði í stanslausum ótta við framtíðina allt þar til fyrir einu ári, þegar augu hans opnuðust og hann fór að sjá hvernig lífið hafði farið fram hjá honum. Þá hóf Viktor mikla sjálfsvinnu og tókst á við margs konar verkefni til þess að yfirstíga óttann. Fljót­ lega fóru hlutirnir að skýrast al­ mennilega og draumar framtíðar­ innar fóru að taka á sig mynd. Það var þá sem Viktor tók þá ákvörðun að sleppa tökunum á óttanum og hoppa út í djúpu laugina. Hann pantaði sér flugmiða aðra leiðina til Noregs og það eina sem hann hyggst taka með sér verður reiðhjól, tjald og myndavél. Áætl­ uð brottför Viktors er þann 15. maí í næstu viku og ætlar hann sér að hjóla einn í kringum heiminn á rúmlega einu ári. Segir Viktor í viðtali við blaðamann að heims­ reisan sé aðeins upphafið að stór­ um draumum hans. „Ég gekk í skóla og átti nokkuð venjulegt líf. Ég man í raun ekki mikið eftir æskunni þannig séð en ég man eftir að hafa verið á svolitlu flakki. Skipti um skóla og flutti oft. Ég greindist ungur með ADHD og er með mikinn kvíða sem hefur hrjáð mig afskaplega mikið í gegn­ um tíðina. Ég er í rauninni bara knúinn áfram af kvíða, það er svo­ lítið svoleiðis,“ segir Viktor einlæg­ ur. Alltaf verið hræddur við framtíðina Viktor segist hafa verið lengi að reyna að koma sér fyrir í lífinu. Hann hafi ekki vitað hvað hann vildi gera með líf sitt og stefnuleys­ ið verið allsráðandi. „Allt mitt líf hef ég verið í lítilli skel, ef svo má segja, og alltaf verið svolítið hræddur. En ég átti samt marga drauma sem mig langaði að láta rætast en ég þorði aldrei að láta verða af þeim. Ég var alltaf svo hræddur við framtíðina og það kom mér á svolítið slæman stað. Ég lýsi þessu svolítið eins og ég hafi verið farþegi í einhverri rútu á flakki og vaknaði svo bara hér og þar. Þannig var hausinn á mér og ég vissi ekkert hvert ég var að stefna eða hvað ég vildi verða.“ Fyrir rúmlega ári vaknaði Viktor skyndilega í fyrsta skiptið upp og fékk nóg af því að lifa lífinu á þennan hátt. „Ég vaknaði þá upp og vissi hvað mig langaði að gera. Ég sá það í afar skýrri mynd og það var ekki neinn kvíði á bak við það. Vinnan í sjálfum mér hefur eigin­ lega verið meira ferðalag núna þetta ár, heldur en öll æska mín. Stefnan að því sem mig langar að BORÐPLÖTUR OG SÓLBEKKIR Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins Gylfaflöt 6-8 / S. 587 6688 / fanntofell.is Aníta Estíva Harðardóttir anita@dv.is Viktor tekst á við kvíða og fer einn í heimsreisu„Kvíðinn tekur alla framtíðina frá mér og reynir að halda mér öruggum.“ „Ég var alltaf svo hræddur við framtíðina og það kom mér á svolítið slæman stað.“ M Y N D IR : H A N N A /D V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.