Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 16
16 FÓKUS - VIÐTAL 10. maí 2019 gera, ekki bara þessi ferð, en hún er einungis hluti af öllu því sem mig langar að gera. Hún er upp- hafið að einhverju risastóru.“ Upplifði stefnuleysi og hræðslu Aðspurður út í viðhorfs- breytinguna segir Viktor hana hafa verið meðferðarráðgjafa að þakka, sem hafi náð til hans og fengið hann til þess að sjá lífið í öðru ljósi. „Allt mitt líf þá hef ég verið svo- lítið, „ekki neinn“. Eða í raun mjög margir, en ekki með neina stefnu,“ segir Viktor. „Þessi ráðgjafi náði til mín á þann hátt að hann fékk mig til að snúa höfðinu algjörlega við. Hann sýndi mér hvað lífið hafði farið snögglega frá mér og fékk mig til þess að sjá að ég hafði bara verið einhver ferðalangur í eig- in lífi. Á því augnabliki áttaði ég mig og varð skíthræddur. Ég sá að ég var ekki að stefna neitt, ég vissi ekki hver ég var eða hvað ég var að gera. Það blossaði upp smá neisti sem fór svo af stað og fljótlega fóru dagarnir að líða og ég velti því fyrir mér hvað mig langaði virkilega að gera og reyndi að móta mynd af sjálfum mér. Það var svo stórt augnablik fyrir mig þegar hann fékk mig til þess að sjá þetta, að ég fór í svakalegt kvíðakast og þá fyrst fór ég að taka eftir því hvað ég var í raun kvíðinn. Ég hafði aldrei séð það áður. Síðan fór ég að taka eftir fullt af hlutum hjá sjálfum mér sem mig langaði að laga og bæta. Svo ég ákvað að tækla þetta á hverjum degi. Ég hugsaði með mér hvern- ig ég gæti lagað þetta og hvernig ég gæti orðið sú manneskja sem mig langar að vera. Hægt og ró- lega fór ég að mynda mér það líf sem mig langar að lifa en auðvitað komu fjölmargar hraðahindranir. Ég ákvað að taka öllu með opnum örmum og er búin að reyna margt. Ég er búinn að lesa mikið um tilf- inningar og ég hef komist að því að ég var bara dofinn. Ég hélt áfram þangað til ég sá loksins skýra mynd af draumalífinu mínu og nú stefni ég að því marki.“ Lærir mest á því að glíma við kvíðann Að ferðast í kringum heiminn hefur verið langþráður draumur Viktors en vegna kvíðans þorði hann aldrei að hugsa um það. „Ég bara mokaði yfir það. Ég var svo hræddur og hugsaði stanslaust um framtíðina. En fyrir um hálfu ári tók ég ákvörðun og hef unnið statt og stöðugt að þessum draumi. Ég hef kynnst svo mörgu fólki sem er að hjálpa mér í kringum þetta og það hefur svo mikið gerst sem ég bara skil ekki. Ég hélt að ég væri sjálfur að fara að axla alla ábyrgð- ina á þessu, en ég er búinn að læra mjög vel að treysta á hlutina, að sjá að hlutirnir séu að gerast. Ég er búinn að sá þeim fræjum sem ég get og núna sé ég hvað þetta er að verða stórt. Ég er auðvitað búinn að lenda í ýmislegu og hef séð fram á það að ég muni ekki geta farið, en ég held alltaf fast í þenn- an draum – og þessi kvíði, hann á ekki séns í mig núna. Hann reynir og það koma augnablik þar sem ég hugsa: „Jæja, eitt gott slys væri bara fínt núna. Bara ef ég slít vöðva þá væri það bara flott.“ En þannig hefur kvíðinn alltaf verið hjá mér. Hann tekur alla framtíðina frá mér og reynir að halda mér öruggum,“ segir Viktor sem getur í dag hleg- ið að þeim hugsunum sem kvikna stundum upp vegna kvíðans. „En ég elska að berjast við hausinn á mér. Það er svo gaman að glíma við kvíðann og ég sé hann bara sem vin minn í dag. Hann mótar mig, reynir að níðast á mér og stjórna mér á hverjum degi, en ég tekst á við ýmis skrítin verkefni í staðinn. Ég hef til dæmis alltaf hatað kulda af því að hausinn á mér var alltaf að segja mér að kalt væri vont. Ég ákvað að fara á Win- hof-kuldanámskeið og takast á við kuldann. Svo hef ég gengið upp á Esjuna á tánum. Þá var ég að lesa bókina eftir hann Sölva þar sem hann talar um þetta og ég ákvað að prófa. Hausinn á mér sagði stöð- ugt við mig: „Hvað ertu að gera, drullaðu þér niður, ertu ekki að grínast maður!“ En ég komst alla leið upp og fór aftur niður. Ég svelti mig líka í fimm daga og drakk að- eins vatn. Það gerði ég af sömu ástæðu. Ég finn með hverjum deginum að ég er að verða sterk- ari andlega og læri að lækka þessa kvíðarödd. En mér finnst líka gott þegar hún öskrar á mig, því þá læri ég svo mikið.“ Undirbýr sig fyrir það versta en vonar það besta Undanfarna sex mánuði hefur mikill undirbúningur farið í heims- reisu Viktors og hann segist eiga erfitt með að átta sig á hvort allt sé tilbúið eða ekki. „Það er allt tilbúið hjá mér and- lega og líkamlega en ég veit í raun- inni ekki hvað mig gæti vantað, af því að ég er að fara í ferðalag þar sem allt getur gerst. Ég hætti að skipuleggja ferðalagið fyrir stuttu af því að það var maður sem ráðlagði mér að fara út með ekkert plan. Gera bara hlutina sem bjóðast og gera þá vel. Ég gerði því aðeins lauslegt plan og ég leyfi mér svo að breyta ef ég vil. En það er mikill undirbúningur sem þarf fyrir svona ferðalag, samt sem áður, sérstak- lega þegar þú ert að glíma við kvíða. Ég þarf alltaf að undirbúa mig fyrir það versta en vona það besta.“ Viktor sagði upp vinnu sinni fyr- ir þremur mánuðum. Hann segir það áhættu sem hann hafi orðið að taka til þess að geta undirbúið sig nóg. Hann leitaði sér ráða hjá Krist- jáni Gíslasyni sem ók í kringum heiminn á mótorhjóli. Einnig þurfti hann að fá sprautur, ferðaleyfi og fleira. Langar að hjálpa fólki Viktor tók þá ákvörðun að byrja ferðalag sitt í Noregi þar sem móð- ir hans býr og teiknaði hann svo upp gróft plan af ferðaleið í gegn- um heiminn sem hann getur farið eftir ef til þess kemur. „Endapunkturinn verður í New York þaðan sem ég flýg heim. Ég er ekki búinn að kaupa miðann heim svo ég er ekki í neinni keppni við tímann. Ég er bara með þetta grófa plan og reikna með því að vera í rúmt ár á ferðinni. Eini staðurinn sem ég stoppa lengi á er Ítalía en ég er mjög spenntur fyrir því. Þar þekki ég marga sem starfa sem kokkar en sjálfur hef ég kunnáttu í eldhúsi og get vonandi reddað mér einhverri vinnu þannig. Svo ætla ég að vinna til dæmis á hostelum og reyna að eyða sem minnstum pening. Mig langar líka að fara í sjálfboðastörf og reyna að hjálpa fólki. Ég hef lært að ef mað- ur hjálpar öðrum þá fær maður það einhvern veginn til baka.“ Viktor segir foreldra sína ánægða með að sjá hann gera það sem hann langar að upplifa en hann viðurkennir þó að hann sjái glitta í smá kvíða og ótta hjá þeim. „Ég sé alveg þennan ótta, þar sem ég þekki hann svo vel, en þau eru að reyna að sýna hann ekki. Það er örugglega erfitt að vita að barnið manns sé að fara í svona ferðalag en þau eru líka bara svo ánægð með að ég sé að fara að upplifa þetta. Ég er mjög þakklátur fyrir að foreldrar mínir séu svona ánægðir fyrir mína hönd, því að þá myndast ekki óþarfa kvíði hjá mér út frá því. Þetta verður líka mikil þroskaferð fyrir mig og mig langaði til þess að fara einn. Það eru líka ótrúlega margir á þessari plánetu svo ég er í rauninni aldrei einn, ég hlýt nú að kynnast ein- hverjum. Það hlýtur að vera alla- vega ein manneskja sem ég get talað við í þessu ferðalagi. Svo er líka búið að kenna mér að fara með sem minnst með mér og ég ætla að gera það. Mig langar auð- vitað að vera með allt til alls, skó, fatnað og verkfæri, en ég er búinn að læra að treysta því fólki sem hefur áður farið í svona ferðir og segir mér að taka ekki of mikið. Ég vona að ég geti reddað mér, það hljóta að vera til dekk í Ítalíu eða skrúfjárn í Þýskalandi,“ segir Viktor og skellir upp úr. Það er hægt að laga sjálfan sig Í gegnum ferðalag sitt ætlar Viktor að leyfa fólki að fylgjast með sér á Instagram þar sem hann mun bæði sýna frá dagleg- um verkefnum í gegnum mynd- bönd og taka myndir og skrifa um ferðina. „Það er rosalega stórt mark- mið hjá mér að reyna að hjálpa fólki sem glímir við mikinn kvíða. Mér finnst mikilvægt að segja fólki að vera opið fyrir öllu og að láta vita að vanlíðanin þarf ekki alltaf að vera þarna. Það er alltaf hægt að laga sjálfan sig og ég mun segja frá því á Instagram hvernig ég er að glíma við allt saman. Ég hef líka afar gaman af því að taka myndir og skrifa og því mun ég halda úti ferðabloggi á Instagram í leiðinni.“ n Hægt er að fylgjast með ferða- lagi Viktors á Instagram undir notandanafninu: viktors_story Afgreiðum HÁDEGISMAT Í BÖKKUM alla daga ársins til fyrirtækja og stofnana GÆÐA BAKKAMATUR Mismunandi réttir ALLA DAGA VIKUNNAR Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810 Viktor leggur af stað í heimsreisu þann 15. maí með hjól, tjald og myndavél. Ég hef lært það að ef maður hjálpar öðrum þá fær maður það einhvern veginn til baka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.