Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 21
PRESSAN 2110. maí 2019
Í
ágúst 2000 sökk einn stærsti
kjarnorkukafbátur heims, hinn
rússneski Kursk, til botns og sat
þar fastur á 107 metra dýpi, á
botni Barentshafs. Um borð voru
118 rússneskir sjóliðar, og létust
95 samstundis en 23 sátu dögum
saman og biðu eftir björgun sem
aldrei barst. Þegar Vladimír Pútín,
forseti Rússlands, mætti brosandi
í viðtal hjá Larry King á banda
rísku sjónvarpsstöðinni CNN
þann 8. september 2000 var hann
spurður hvað hefði komið fyrir.
Svarið var tvö orð: „Hann sökk.“
Slysið er ekki gleymt í Mur
mansk, heimahöfn Kursk, þótt
tuttugu ár séu liðin frá slysinu.
Margir í áhöfninni voru frá Mur
mansk en aðrir voru frá öðr
um borgum og bæjum víða um
landið. Víða um Rússland ólust
því börn upp án feðra sinna og
margar konur urðu ekkjur. Það
liðu níu dagar áður en ljóst var að
þau myndu aldrei sjá maka sína,
syni, feður og bræður aftur. Í níu
daga barðist fólkið árangurslaust
við að reyna að fá upplýsingar um
hvað hefði gerst um borð í Kursk
og hvað væri gert til að reyna að
bjarga áhöfninni.
Í Murmansk er sú tilfinning og
skoðun enn ríkjandi að rússneski
sjóherinn hafi brugðist í málinu,
hann hafi ekki gert allt sem í hans
valdi stóð til að bjarga áhöfninni.
Finnst fólki sem ríkisstjórnin hafi
einnig brugðist því hún hafi ekki
brugðist nógu skjótt við.
Mörgum spurningum er ósvar-
að
Enginn var dreginn til ábyrgðar
fyrir slysið og ættingjar þeirra
sem fórust hafa ekki fengið svör
við fjölda spurninga sem verður
líklegast aldrei svarað. Af hverju
laug yfirstjórn flotans? Af hverju
átti flotinn ekki nauðsynlegan ör
yggisbúnað og af hverju afþakkaði
hann aðstoð frá Bretum og Norð
mönnum á fyrstu dögunum eftir
óhappið? Á þeim dögum sem
skiptu mestu máli fyrir þá 23
menn sem sátu fastir á hafsbotni.
Minningin um þetta stóra slys
rússneska hersins og ekki síð
ur fyrstu stóru krísu Vladimírs
Pútíns á forsetastóli hefur að von
um dofnað með árunum, og slíkt
hið sama má segja um viðhorf
fólks til aðgerða, eða aðgerðaleys
is, yfirvalda. Þegar könnun var
gerð árið 2000 töldu 72 prósent
aðspurðra að yfirvöld hefðu ekki
gert allt sem í þeirra valdi stóð
til að bjarga áhöfn Kursk. Um 15
árum síðar voru aðeins 35 pró
sent þessarar skoðunar en 26 pró
sent sögðu að erfitt væri að segja
til um það.
Þetta var ekki fyrsta kafbátaslys
Rússa. Í apríl 1989 sökk kjarn
orkukafbáturinn Komsomolets
eftir 39 daga úthald. Manntjón
ið var mun minna en þegar Kursk
fórst. Slysið vakti heimsathygli,
ekki síst vegna getuleysis rúss
neska flotans sem gat ekki stað
ið fyrir nauðsynlegum björgunar
aðgerðum. Það var nýlunda fyrir
Rússa að komast svona í kastljós
vestrænna fjölmiðla en CNN fjall
aði til dæmis stöðugt um slysið.
Hefði átt að stytta fríið
Þegar Pútín mætti í fyrrnefnt við
tal hjá Larry King varði hann að
gerðir rússneskra yfirvalda og þá
ákvörðun að þiggja ekki aðstoð frá
Bretum og Norðmönnum (margir
telja að Rússar hafi verið of stoltir
til að þiggja hana). Pútín taldi ekki
að hann hefði gert neitt öðruvísi
varðandi málið, svona eftir á að
hyggja, en þó var eitt sem hann
nefndi að hann hefði átt að gera
öðruvísi. Það var að stytta frí sitt
við Svartahaf því ef hann hefði
bundið enda á það strax hefði
það væntanlega „litið betur út frá
sjónarhorni almannatengsla“.
Hugsanlega má kenna reynslu
leysi Pútín í stjórnmálum um en
hann var nýgræðingur á því sviði
á þessum tíma. Ekki er útilokað að
hann myndi taka öðruvísi á álíka
máli í dag því hann hefur væntan
lega áttað sig á að það er betri saga
ef fólki er bjargað en ef það deyr.
Í Murmansk eru margir ósáttir
við að enginn hafi verið dreginn
til ábyrgðar á slysinu. Vjatjeslav
Popov, æðsti yfirmaður Norður
flotans, og Mikhail Motsak starfs
mannastjóri voru lækkaðir í tign í
kjölfar slyssins en Popov er í dag
þingmaður í héraðsstjórn Mur
mansk en hann var kjörinn í hana
fyrir flokk Pútín.
Hin opinbera niðurstaða á til
drögum þess að Kursk sökk er að
sprenging hafi orðið um borð, en
flotinn setti þá skýringu fram á
sínum tíma að kafbáturinn hefði
lent í árekstri við annan kaf
bát. Það féll ekki að sjónarmið
um ríkisstjórnarinnar og því er
sprengingarskýringin hin opin
bera skýring í dag. n
Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum
„Enginn var dreginn til
ábyrgðar fyrir slysið
og ættingjar þeirra sem lét-
ust hafa ekki fengið svör við
fjölda spurninga
Þegar
kafbáturinn
Kursk fórst
Málið sem Pútín hélt að hann gæti þagað í hel
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Kafbáturinn Kursk 118 sjóliðar fórust þegar
hann lenti bilaður á botni Barentshafs.