Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐA
Sandkorn
10. maí 2019
Spurning vikunnar
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru
hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
Aðalnúmer: 512 7000
Auglýsingar: 512 7050
Ritstjórn: 512 7010
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson
Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Einar Þór Sigurðsson
Fréttastjóri: Kristinn Haukur Guðnason Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur
Suðurlandsbraut 14
2. hæð
108 Reykjavík
FRÉTTASKOT
512 7070
ABENDING@DV.IS
Auðvelt að hlunnfara þann sem maður ekki þekkir
Þ
að er auðvelt að hlunnfara
þann sem þú þarft aldrei
að horfa framan í. Þetta
er til að mynda ein helsta
ástæðan fyrir því að verr er farið
með starfsfólk stórra fyrirtækja en
smárra. Ákvarðanir eru teknar af
forstjórum og stjórnarformönn
um, jafnvel staðsettum í öðru
landi, um kjör og aðstæður þeirra
lægst settu. Pennastrik og svo er
haldið á golfvöllinn. Yfirmaður
sem starfar daglega með undir
mönnum sínum, grínast með
þeim og deilir sínu persónulega
lífi, á mun erfiðara með að hegða
sér á jafn miskunnarlausan hátt og
höfuð stórfyrirtækis. Hann myndi
finna fyrir því á eigin skinni.
Sama lögmál gildir um hið
opin bera. Það er engin ástæða til
að ætla að stjórnmálamenn bjóði
sig fram til starfans til þess að gera
samfélaginu gott. Að eintómt hug
sjónafólk sitji á Alþingi, í sveitar
stjórnum og öðrum opinberum
stöðum. Þetta eru fínar og mjög
vellaunaðar stöður. Stjórnmála
menn verða frægir og vel er hugs
að um þá af samflokksmönnum
þegar þeir hætta. Ekki er heldur
hægt að líta fram hjá því að margir
þeirra stunda beina hagsmuna
gæslu fyrir ákveðin öfl í samfé
laginu, bæði stór og smá fyrirtæki,
fólk sem það þekkir persónulega.
Ísland er ríkt land og hér
ætti að vera hægt að halda uppi
mannsæmandi þjónustu fyrir alla,
sérstaklega okkar minnstu bræð
ur og systur sem mest þurfa á því
að halda. Sagt er að samfélög séu
dæmd eftir því hvernig þau koma
fram við þá sem minnst mega
sín. Ekki hver verg landsfram
leiðsla sé eða hversu margar flott
ar byggingar eru reistar.
Í vikunni greinir DV frá baga
legum aðstæðum mannana í Víði
nesi. Sumir þeirra eiga við áfengis
vanda að stríða, aðrir hafa misst
heimili vegna annarra ástæðna.
Í gólfinu er fastur saur, mygla í
loftum, nagdýr éta allt sem tönn
á festir og vegurinn svo slæm
ur að þegar hefur einn týnt lífinu.
Geymsla sem enginn nennir að
taka til í og enginn þarf að hugsa
um. Sennilegasta ástæðan er sú að
þessir menn hafa engin vensl inn
í borgarstjórn eða stjórnir annarra
sveitarfélaga. Þeir sitja ekki í köku
boðum með ráðamönnum og
deila ekki persónulegum sorgum
og sigrum. Þeir eru nafnlausir í
augum þeirra sem fara með fjár
veitingarvaldið og taka ákvarðan
irnar.
Sömu sögu má segja um Kópa
vog og önnur sveitarfélög sem
trassað hafa að innleiða NPAlög
gjöfina um réttindi fatlaðs fólks.
Þetta kemur illa niður þeim sem
reiða sig á löggjöfina og skapar
ójöfnuð á milli búsetusvæða. Að
innleiða þetta ætti að vera auðvelt
mál, því annars væru öll sveitarfé
lög í sömu sporum. En sinnuleys
ingjarnir eiga sennilega ekki ætt
ingja og vini sem reiða sig á þessa
löggjöf.
Hver er lausnin? Kannski er hún
sú að skikka opinbera stjórnend
ur til að verja meiri tíma með fólki
sem þarf á aðstoð að halda. Festa
það í lög að þeim beri að heim
sækja það, borða með því og horfa
á Landann. Það væri að minnsta
kosti fróðlegt að sjá kjörna borgar
fulltrúa matreiða pasta í Víðinesi
á gólfi og innréttingum þar sem
saur úr rotþró er fastur á öllu. Og
kannski myndi sýn þeirra breytast.
En eins og með geymslur almennt,
það er auðvelt að láta þær gleym
ast þegar maður þarf ekki að fara
niður í þær. n
Örvænting Ingu
Inga Sæland fer nú mikinn í um
ræðunni um frumvarp heil
brigðisráðherra um rýmkun
fóstureyðinga. Samkvæmt
frumvarpinu verður fóstur
eyðing heimil fram að 22. viku
auk annarra réttarbóta fyrir
konur.
Guðmundur Ingi Kristinsson hefur
mætt í viðtöl til að tala gegn
frumvarpinu og Inga Sæland
hélt eldræðu í þinginu um mál
ið og var skömmuð af Steingrími
J. Sigfússyni þingforseta.
Flokkur fólksins hefur átt erfitt
undanfarið, misst tvo þing
menn og mikið fylgi. Sam
kvæmt skoðanakönnunum
undanfarna mánuði myndi
flokkurinn ekki ná inn manni.
Hinum fámenna flokki hefur
ekki tekið að gera sig gildan í
umræðunni um þriðja orku
pakkann en í þessu máli ætla
Inga og Guðmundur að gera sig
gild. Með málflutningi sínum
gætu þau náð til kjósendahóps
sem hefur verið afskiptur lengi
í stjórnmálunum, hóps sann
kristins fólks.
Þjóðóhollusta
Miðflokksmanna
MMR gerði nýlega könnun á
því í hvaða sæti landsmenn
telja að Hatrið
mun sigra, fram
lag Íslands lendi
í Eurovision. Um
24 prósent telja
að lagið hafni í
efstu fimm sæt
unum og helmingur lands
manna telur að lagið hafni í
einu af efstu tíu sætunum. Að
eins 13 prósent telja að lagið
hafni í einu af neðstu sætun
um.
Þegar litið er til stjórnmála
skoðana þátttakenda í könnun
inni vekur athygli að kjósendur
Miðflokksins svara á allt annan
hátt en aðrir. Um 35 prósent
telja að lagið endi í námunda
við botninn þrátt fyrir að allt
bendi til annars, bæði veð
bankar og umtal. Þessi þjóð
óhollusta Miðflokksmanna er
athyglisverð. Íslandi ekki allt?
Er einhver matur sem þú borðar alls ekki?
„Ég er í ketó núna þannig að ég borða
ekkert kolvetni.“
Kristófer Viðarsson
„Nei, ég borða
allan venjulegan heimilismat.“
Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir
„Já, svínakjöt.“
Helga Rúna Gústafsdóttir
„Já, allur matur með lauk í.“
Eggert Ólason
Leiðari
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
„Eins og með geymslur al-
mennt, það er auðvelt að
láta þær gleymast þegar maður
þarf ekki að fara niður í þær.
Ugla sat á kvisti Ætla mætti að hún fylgdist
vökulum augum með yfirráðasvæði sínu, en augu
þessarar uglu sjá ekkert.
M
Y
N
D
: H
A
N
N
A
/D
V