Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Page 24
Hjólablað 10. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
HVELLUR-REIÐHJÓLAÞJÓNUSTA ALLT ÁRIÐ:
Gæðamerki, góð
þjónusta og gott verð
Hvellur er orðið gamalt og reynt fyrirtæki í hjólreiðabransanum og eitt af fáum sem rekur alvöru
reiðhjóla verkstæði,“ segir Guðmundur
Tómasson. Hvellur var stofnað á Grenivík,
en Guðmundur og fjölskylda hans hafa
rekið fyrirtækið frá árinu 2004 og á
Smiðjuvegi frá árinu 2007.
Hjá Hvelli fást hjól fyrir alla, allan ald-
ur og hvort sem fólk vill hjól til daglegra
nota eða keppni. „Við byrjuðum snemma
að flytja inn reiðhjól og erum eitt af elstu
fyrirtækjum landsins í þessum bransa.
Við erum mikið í götuhjólum og þessum
klassísku. Við erum einnig með mikið af
aukahlutum, dekkjum, slöngum og öllu því
sem þarf til reksturs hjóla. Hybrid- hjólin,
sem eru blanda af götu- og fjallahjóli,
og barnahjólin, eru vinsælust,“ segir
Guðmundur.
Hjólreiðar eru ekki lengur bundnar við
árstíma
Hjólreiðar hafa aukist mikið síðustu ár og
þá helst þannig að þær eru stundaðar allt
árið í stað hluta árs eins og tíðkaðist áður.
Keppnishjólreiðar hafa einnig aukist mikið.
„Það er alltaf aukning og mikið um fólk, sem
ekki hefur hjólað mikið áður, jafnvel eldra
fólk, sem vill fara að hjóla og hreyfa sig
meira.“
Hvellur hóf innflutning á Fuji-hjólum árið
2006, en þau eiga sér langa sögu sem einn
elsti hjólaframleiðandi heims, en fyrirtækið
byrjaði um 1900 að framleiða hjól. Fyrir-
tækið var áður japanskt, en er nú banda-
rískt og er á toppnum þar í gæðum og leið-
andi í hönnun keppnisreiðhjóla. Hvellur selur
einnig hjól frá Puky, sem er þýskt gæða-
merki í barnahjólum, þríhjólum, sem eru
aðalsöluvaran, jafnvægishjólum og hlaupa-
hjólum. „Fyrirtækið er einkafyrirtæki og það
er áhugavert að geta þess að fyrirtækið er
verndaður vinnustaður,“ segir Guðmundur.
„Við bjóðum upp á rafmagnshjól frá Fuji,
sem standast evrópskar gæðakröfur.
Rafmagnshjólin eru í seinni þróun hér lendis,
miðað við önnur Evrópulönd, eins og til
dæmis Holland þar sem þau eru að fara
fram úr venjulegum hjólum í sölu.“
Hvellur flytur einnig inn margar gerðir
reiðhjólahjálma frá KED, hjálmarnir eru
framleiddir í Þýskalandi og eru einstaklega
vandaðir og til í öllum stærðum. Ung-
barnahjálmarnir eru framleiddir í sömu
stöðlum og hjálmarnir fyrir unglinga og
fullorðna.
Alhliða reiðhjólaviðgerðir
Hvellur hefur boðið upp á alhliða
reiðhjólaviðgerðir frá upphafi, þar sem
boðið er upp á allar viðgerðir, fyrir hvaða
hjól sem er.
Hjá Hvelli fást hins vegar ýmsar vinsælar
sumarvörur eins og körfuboltaspjöld. Á
veturna taka vetrarvörur við, samhliða
reiðhjólunum, en Hvellur er langstærsti
aðilinn hér á landi í innflutningi á snjó-
keðjum fyrir allar gerðir farartækja og
eru keðju viðgerðir einnig stór hluti af
rekstrinum.
Hvellur er á Smiðjuvegi 30, Kópavogi.
Heimasíða: hvellur.com.
Opnunartími er kl. 9–18 virka daga og kl.
13–16 laugardaga.
Guðmundur.