Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 24
Hjólablað 10. maí 2019KYNNINGARBLAÐ HVELLUR-REIÐHJÓLAÞJÓNUSTA ALLT ÁRIÐ: Gæðamerki, góð þjónusta og gott verð Hvellur er orðið gamalt og reynt fyrirtæki í hjólreiðabransanum og eitt af fáum sem rekur alvöru reiðhjóla verkstæði,“ segir Guðmundur Tómasson. Hvellur var stofnað á Grenivík, en Guðmundur og fjölskylda hans hafa rekið fyrirtækið frá árinu 2004 og á Smiðjuvegi frá árinu 2007. Hjá Hvelli fást hjól fyrir alla, allan ald- ur og hvort sem fólk vill hjól til daglegra nota eða keppni. „Við byrjuðum snemma að flytja inn reiðhjól og erum eitt af elstu fyrirtækjum landsins í þessum bransa. Við erum mikið í götuhjólum og þessum klassísku. Við erum einnig með mikið af aukahlutum, dekkjum, slöngum og öllu því sem þarf til reksturs hjóla. Hybrid- hjólin, sem eru blanda af götu- og fjallahjóli, og barnahjólin, eru vinsælust,“ segir Guðmundur. Hjólreiðar eru ekki lengur bundnar við árstíma Hjólreiðar hafa aukist mikið síðustu ár og þá helst þannig að þær eru stundaðar allt árið í stað hluta árs eins og tíðkaðist áður. Keppnishjólreiðar hafa einnig aukist mikið. „Það er alltaf aukning og mikið um fólk, sem ekki hefur hjólað mikið áður, jafnvel eldra fólk, sem vill fara að hjóla og hreyfa sig meira.“ Hvellur hóf innflutning á Fuji-hjólum árið 2006, en þau eiga sér langa sögu sem einn elsti hjólaframleiðandi heims, en fyrirtækið byrjaði um 1900 að framleiða hjól. Fyrir- tækið var áður japanskt, en er nú banda- rískt og er á toppnum þar í gæðum og leið- andi í hönnun keppnisreiðhjóla. Hvellur selur einnig hjól frá Puky, sem er þýskt gæða- merki í barnahjólum, þríhjólum, sem eru aðalsöluvaran, jafnvægishjólum og hlaupa- hjólum. „Fyrirtækið er einkafyrirtæki og það er áhugavert að geta þess að fyrirtækið er verndaður vinnustaður,“ segir Guðmundur. „Við bjóðum upp á rafmagnshjól frá Fuji, sem standast evrópskar gæðakröfur. Rafmagnshjólin eru í seinni þróun hér lendis, miðað við önnur Evrópulönd, eins og til dæmis Holland þar sem þau eru að fara fram úr venjulegum hjólum í sölu.“ Hvellur flytur einnig inn margar gerðir reiðhjólahjálma frá KED, hjálmarnir eru framleiddir í Þýskalandi og eru einstaklega vandaðir og til í öllum stærðum. Ung- barnahjálmarnir eru framleiddir í sömu stöðlum og hjálmarnir fyrir unglinga og fullorðna. Alhliða reiðhjólaviðgerðir Hvellur hefur boðið upp á alhliða reiðhjólaviðgerðir frá upphafi, þar sem boðið er upp á allar viðgerðir, fyrir hvaða hjól sem er. Hjá Hvelli fást hins vegar ýmsar vinsælar sumarvörur eins og körfuboltaspjöld. Á veturna taka vetrarvörur við, samhliða reiðhjólunum, en Hvellur er langstærsti aðilinn hér á landi í innflutningi á snjó- keðjum fyrir allar gerðir farartækja og eru keðju viðgerðir einnig stór hluti af rekstrinum. Hvellur er á Smiðjuvegi 30, Kópavogi. Heimasíða: hvellur.com. Opnunartími er kl. 9–18 virka daga og kl. 13–16 laugardaga. Guðmundur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.