Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Side 29
Vellíðan 10. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ
Húðmeðferðarstöðin HÚÐIN skin clinic býður upp á fjölbreytt-ar húðmeðferðir og faglega
þjónustu. Þar starfa dr. Lára G. Sig-
urðardóttir læknir, Sigríður Arna Sig-
urðardóttir, hjúkrunar- og förðunar-
fræðingur, Drífa Ísabella Davíðsdóttir
hjúkrunarfræðingur og Esther Helga
Ólafsdóttir, móttökuritari og snyrti-
fræðingur.
„Hjá HÚÐIN skin clinic fögnum við
fjölbreytileika og leggjum áherslu á
að bæta en ekki breyta náttúrulegu
útliti. Undanfarinn áratug hefur orðið
mikil vakning um hversu margt er
hægt að gera til að auka heilbrigði
húðarinnar. Við erum sífellt að auka
þekkingu okkar og leggjum áherslu á
að vera með nýjungar, bæði í með-
ferðum og að taka inn nýjar vörur.
Við bjóðum einnig upp á einstaklings-
bundna ráðgjöf til að aðstoða fólk við
val á meðferð. Okkur finnst mikilvægt
að taka vel á móti viðskiptavinum
þannig að þeir slaki vel á hjá okkur
og bjóða upp á meðferðir sem sýnt
hefur verið fram á að skili tilætluðum
árangri,“ segir Lára.
Laser fyrir framtíðina
Fljótlega eftir 25 ára aldur byrjar
kollagen að minnka í húðinni um 1%
á ári en kollagen er það sem gefur
húðinni styrk og heldur henni ung-
legri. Á fyrstu fimm árum tíðahvarfa
konunnar minnkar kollagenfram-
leiðsla enn hraðar, eða um 30%.
„Húðin er eins og vöðvarnir okkar að
því leyti að líkt og við förum í leikfimi
til að styrkja vöðvana þá er hægt
að byggja upp húðina með ýmsum
leiðum. Öflugasta meðferðin til að
hægja á öldrunarferlinu er laserlyft-
ing sem er oft þekkt sem andlitslyft-
ing án skurðaðgerðar. Laserlyfting er
vísindalega viðurkennd meðferð og
sýna rannsóknir ótvíræðan árangur.
Meðferðin örvar nýmyndun kollagens
og elastíns í húðinni, jafnar áferð,
þéttir húðina og fækkar andlitslínum
þannig að húðin verður unglegri og
heilbrigðari.“
20% afsláttur af laserlyftingu í maí
„Í maí bjóðum við 20% afslátt af
laserlyftingu – meðferðinni sem
Jennifer Aniston er þekkt fyrir að
gangast undir. Við erum annars
vegar með þægilega og léttari
lasermeðferð sem tekur um 30
mínútur og hægt er að fara beint í
vinnu að meðferð lokinni. Laserlyfting
með Er:YAG er töluvert öflugri og tek-
ur um fimm til sjö daga fyrir húðina
að jafna sig. Hve fljótt árangur kemur
fram og hve mikill árangur sést er
alltaf einstaklingsbundið, en árang-
ur af laserlyftingu er að koma fram
allt að sex mánuðum eftir meðferð.
Hver meðferð skilar árangri en oftast
er mælt með 3–4 skiptum til að sjá
hámarksárangur. Margir koma síðan
árlega til að halda sér við.“
Cinderella húðþétting
Þessi vinsæla meðferð eykur þéttni
og ljóma í húð og kemur árangur
strax fram. Meðferðin byggir á inn-
rauðri tækni sem hefur verið vinsæl í
Bandaríkjunum og á Bretlandi. Húðin
er hituð upp í ákveðið hitastig í nær-
innrauðu ljósi. Meðferðin setur ferli
af stað sem örvar frumurnar í fram-
leiðslu á kollageni. „Meðferðin skilar
þéttari húð og við mælum sérstak-
lega með henni fyrir þá sem vilja smá
„búst“ fyrir sérstök tilefni.“
Fyllt upp í djúpar línur með
áhrifaríkum hætti
Notkun á Restylane fylliefniefnum
til að minnka og fjarlægja djúpar
línur í húðinni er ein vinsælasta húð-
meðferðin í dag enda algengt að
heyra hve úthvíldur maður sé eða líti
vel út eftir þessa meðferð.
Restylane, sem er gert úr
náttúrulegu rakaefni húðarinnar,
er sett rétt undir húðina og við það
sléttist úr henni, línur hverfa eða
verða minna sýnilegar. Restylane er
einnig vinsælt efni til að setja í varir til
að gefa þeim meiri fyllingu.
Gjafabréf að eigin vali
Gjafabréf í húðmeðferð hafa notið
gífurlegra vinsælda undanfarið. „Það
er kannski vegna þess að fólki líkar
orðið betur að gefa ástvinum sínum
upplifun eða vellíðan frekar en að
auka á hið sístækkandi safn hluta
sem fólk sankar að sér,“ segir Lára.
Á vandaðri heimasíðu Húðarinnar
hudin.is er að finna ítarlegar
upplýsingar um allar meðferðir.
Facebook: Húðin
Instagram: Húðin.is
Einnig eru veittar upplýsingar
í síma 519-3223.
HÚÐIN skin clinic er í Hátúni 6b,
105 Reykjavík.
Óumdeilanlegur árangur
með laserlyftingu
HÚÐIN SKIN CLINIC:
Re-
stylane:
Fyrir
og eftir.
Munur-
inn er
mikill.