Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Side 33
FÓKUS - VIÐTAL 3310. maí 2019 K amilla Einarsdóttir vakti töluverða athygli þegar hún gaf út sína fyrstu skáld- sögu á síðasta ári, Kópa- vogskrónikuna. Bókin er hispurs- laus og segir af ástarævintýrum móður í Kópavogi sem hún lýs- ir fyrir dóttur sinni. DV ræddi við Kamillu um bókina, framtíðina, veturinn á strípibúllu og þátttök- una í pólitík. Kamillu leiðist ekki bækur enda hefur hún alla sína ævi verið í kringum þær. Faðir henn- ar er Einar Kárason, hinn þekkti rithöfundur, og móðir hennar, Hildur Baldursdóttir, starfar sem bókasafnsfræðingur. Sjálf starfar Kamilla á Landsbókasafninu sem bókavörður og þar líður henni mjög vel. Kamilla segist hafa ver- ið að skrifa síðan hún man eftir sér en ekki fyrr en nýlega með það að markmiði að gefa út bók. „Ég hafði áður tekið þátt í safn- riti um ástarsögur kvenna og einnig skrifað töluvert á samfé- lagsmiðlum. Einnig hafði ég nefnt þennan möguleika í samtölum við fólk. Þeir hjá Bjarti/Veröld höfðu samband við mig og spurðu hvort ég væri til í að reyna, og ég sagði já.“ Hvað vildir þú segja með bók­ inni? „Aðallega vildi ég skemmta fólki. Ég var ekki með stórar mein- ingar eða boðskap um eitthvað samfélagslega mikilvægt. Ég sá bókina fyrir mér sem kilju sem fólk gæti geymt í rassvasanum og gripið til á ströndinni eða barn- um á meðan það væri að bíða eft- ir vinum sínum. Að lesa hana átti að vera eins og að lenda á trúnó á fylleríi, án þvoglumælginnar auð- vitað.“ Lestur hefur alltaf verið stór hluti af lífi Kamillu og áhrifin koma víða að. Hún vill þó ekki skil- greina sig sem hluta af einhverri stefnu eða kenna sig við tiltekna höfunda. „Ég lít upp til margra höfunda en er þó ekki endilega að reyna að elta þá í stíl. En maður verð- ur fyrir áhrifum af öllum bókum sem maður les, sem og bíómynd- um, myndlist og góðu rapplagi sem maður heyrir. Ég vinn í kring- um bækur og rekst á eitthvað nýtt og spennandi á hverjum einasta degi. En það er líka til ógrynni af grútleiðinlegum bókum og það er hvetjandi. Ég hugsa: Fyrst þetta var gefið út þá hlýt ég að geta gefið eitthvað út líka,“ segir Kamilla og brosir breitt. Kynlíf sprenghlægilegt og skrýtið Í mars hlaut Kamilla Rauðu hrafnsfjöðrina frá Lestrarfélaginu Krumma, en þau verðlaun eru veitt árlega fyrir forvitnilegustu kynlífs- lýsinguna. Í bók hennar eru ýms- ar hispurslausar sögur í djarfari kantinum. „Mér finnst bókin ekkert gróf,“ segir Kamilla. „Mér finnst ein- lægni heillandi og þegar sagt er frá hlutunum á hráan máta. Kynlíf get- ur verið, og er oft, sprenghlægilegt, fyndið og skrýtið. Ég sæki að ein- hverju leyti í eitthvað sem ég þekki sjálf, en þetta er ekki endurminn- ingabók heldur skáldverk.“ Fannstu fyrir pressu, verandi dóttir þekkts rithöfundar? „Nei, ég get ekki sagt það. Pabbi vissi að ég væri að fara að gefa út, en ég bað hann ekki um að lesa yfir eða neitt slíkt. Ísland er svo lítið og við erum öll svo skyld. Það er fjöldi rithöfundabarna að skrifa og kikna ekki undan pressu ættarinnar. Dóri DNA lætur það ekki stoppa sig að vera barnabarn Halldórs Laxness.“ Önnur bók í burðarliðnum Kamilla ætlar ekki að láta þessa bók nægja heldur situr hún við skriftir að þeirri næstu. Hvort hún komi út fyrir næstu jól eða ekki verður að koma betur í ljós síðar. „Það er erfitt að segja nákvæm- lega hvernig hún verður, því á þessu stigi gæti hún mjög auð- veldlega breyst. En eitt er víst að hún mun ekki gerast í Kópavogi,“ segir Kamilla og brosir. „Eins og er virðist hún ætla að höggva í sama knérunn og sú fyrsta.“ Er stefnan að gerast atvinnu­ rithöfundur? „Já, fyrir alla sem vilja skapa er það draumurinn að geta lifað af þessu. Eins og er geri ég þetta með fullri vinnu og sé auk þess um fjöl- skyldu. Það er ekki raunhæft að ætla að stóla á þetta strax og það græðir enginn á sölu eða upplestr- um. Eina leiðin til að lifa af bókar- skrifum á Íslandi er ef það verða margar bækur þýddar og svo kom- ast á listamannalaun.“ Kamilla segist vera ánægð með viðtökurnar sem Kópavogskrónik- an fékk. „Þar sem þetta er fyrsta bók- in eru þetta jafnframt bestu við- brögðin sem ég hef fengið,“ segir hún hæðnislega. „En svona án gríns þá er ég mjög ánægð. Ég passaði mig að vera ekki með of miklar væntingar og átti alveg eins von á að hún hyrfi í flóðið.“ Löngun í danskan leikskólamat Kamilla er fertug að aldri, fædd í Reykjavík árið 1979 og alin upp í Hlíðahverfinu. Önnur í röðinni 3 SKREF BÓKHALDSÞJÓNUSTA LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR • Skráningartöflur • Eignaskiptayfirlýsingar • Eftirfylgni EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR ÞARABAKKA 3 S. 578 6800 Engin pressa á rithöfundabörnum - Starfaði á strípibúllu - Dýfði tánni í pólitík Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Kynlíf getur verið, og er oft, spreng hlægilegt, fyndið og skrýtið“ M Y N D : H A N N A /D V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.