Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Qupperneq 38
38 FÓKUS - VIÐTAL 10. maí 2019 að vinna á sjálfsvígshugsunum og skaða, og tölurnar sýna að þörfin á aðstoð er mikil. Í apríl árið 2018 voru viðtölin 19 talsins, í apríl í ár eru þau 158. „Það kostar pen- inga að fara til geðlæknis og sál- fræðings, rosalega mikið, sem er kostnaður sem Píeta ber með gleði. Það var eitt af mínum verk- efnum að koma tölfræði á hreint og innleiða gagnagrunn. Tölfræðin þarf að vera skýr, því hún er einn grundvöllur þess að fá fjármagn. Þörfin er mikil og núna í mars lent- um við í því að hafa hvorki nægan mannafla né viðtalsherbergi til að geta unnið eins og við viljum vinna. Við viljum að fólk komist strax að þegar það hefur samband við okkur. Edda Arndal, forstöðu- maður faglega hlutans, og fagfólk- ið sem vinnur hérna hefur unnið engu að síður unnið kraftaverk.“ Að sögn Kristínar er yfir- byggingin eins lítil og kostur er, húsnæðið er lánað endurgjalds- laust af Alma og húsgögn og aðrir innanstokksmunir, auk vinnu við að koma húsnæðinu í stand, voru gjöf frá fyrirtækjum, verktökum og sjálfboðaliðum. „Starfsfólk vinnur endurgjaldslaust umfram sinn vinnutíma og Ljósberar, sem eru sjálfboðaliðarnir okkar, leggja sitt af mörkum og okkur vantar fleiri góða einstaklinga í þann hóp.“ Öllum gefst kostur á að styrkja Píeta með mánaðarlegu framlagi að eigin vali. „Ég held að fólk geri sér oft ekki grein fyrir hvað það er að hafa góð áhrif með sínu fram- lagi, 1.000 krónur á mánuði í eitt ár greiða inntökuviðtal hjá sér- fræðingi fyrir einstakling sem langar til að deyja. Hversu magn- að er það? Ég held að margir greiði í alls konar félög og hafi ekki hug- mynd um í hvað framlag þeirra fer og hvað það skiptir miklu máli. Einnig er fjöldi félagasamtaka eins og Kiwanis, Lions og Odd- fellow að gera kraftaverk. Sjálf- boðavinna er svo ný af nálinni hér á landi. Árið 1993 þegar ég var að sækja um í skóla á Bretlandi þá var ég alltaf spurð um hvaða sjálf- boðastörfum ég hefði sinnt og á námsárunum var ég sjálfboðaliði í dýraathvörfum og fleira,“ segir Kristín. „Árið 2001 þegar ég byrj- aði í breska sendiráðinu þá var oft talað um hvað var lítið um sjálf- boðaliðastörf hérna, eiginkonur diplómata fundu ekkert að gera og voru því oft mjög einangraðar. Ein leið til að brjóta sig út úr félags- legri einangrun er að gerast sjálf- boðaliði og það er hægt hjá okkur og á fleiri stöðum. Félagsleg ein- angrun er hræðileg, hvernig getur maður tilheyrt. Félagsleg einangr- un er æxli sem þarf að taka burt. Fólk verður að vita að það er alltaf von, það er alltaf hægt að breyta og bæta og það má enginn gleyma því. Svo má ekki gleyma að fólk er misvel búið undir áföll, mitt áfall getur verið lítið í þínum huga en ekki mínum.“ n PIZZERIA DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI „Ég fór í viðskipti af því það var skynsam- legt, ekkert annað“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.