Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Síða 39
KYNNING JARÐVEGSSKRÚFUR FRÁ ÁLTAKI: Hver undirstaða fer niður á örfáum mínútum og pallurinn tilbúinn á mettíma Stór hluti af vinnunni við að koma sér upp sólpalli eða skjólvegg eru undirstöðurnar. Meðalstór sólpallur getur til dæmis tekið marga daga þar sem langur tími fer í að grafa og steypa í undirstöður. Jarðvegsskrúfur eru algjör bylting í þessum efnum. Niðursetning hverrar jarðvegsskrúfu tekur einungis nokkrar mínútur og væri þar með jafnvel hægt að klára pallinn á einum degi. „Notaðar eru heitgalvaniseraðar skrúfur sem koma frá þýska framleiðandanum Krinner. Notast er við sérstaka borvél til að skrúfa skrúfurnar niður og er borvél- in leigð út. Komin er fjögurra ára reynsla á þetta hér á landi en er- lendis hafa þær verið notaðar síðan 1994. Notkun jarðvegsskrúfa fer ört vaxandi og eru viðskiptavinir okkar yfir sig ánægðir,“ segir Guðmund- ur Hannesson hjá Áltaki sem selur jarðvegsskrúfurnar hér á landi. Jarðvegsskrúfur eru til í mörgum stærðum og gerðum og henta því fyrir nánast hvað sem er. „Skrúfurnar henta í svo margt. Festa niður sól- palla, göngu- og útsýnispalla, skjól- veggi, umferðarskilti og meira að segja er hægt að festa heilu húsin með þeim,“ segir Guðmundur. Áltak selur sérstakar skrúfur til að festa niður trampólín. Slíkar festingar hafa komið sér afar vel enda er allra veðra von hér á Íslandi, jafnvel yfir hásumarið. En hvernig ber fólk sig að ef það vill nýta sér þessa byltingarkenndu lausn og þarf til dæmis að festa sólpall eða skjólvegg? „Það er hægt að hafa sam- band við okkur símleiðis eða koma í sýningarsalinn okkar að Fossaleyni 8 til að skoða og fara yfir þetta allt saman. Viðskiptavinurinn fær skrúfurnar hjá okkur og leigir vélina til að festa þær niður. Hann getur síðan skilað vélinni að verki loknu.“ Hægt er að hafa samband í síma 577-4100 eða koma við hjá Áltaki í Fossaleyni 8, 112 Reykjavík. Einnig er hægt að senda póst á altak@altak.is og skoða má jarð- vegsskrúfurnar nánar á heimasíðu Áltaks, www.altak.is.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.