Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Side 40
40 10. maí 2019
Tímavélin Gamla auglýsinginEyjafréttir 8. febrúar 1990
Í
síðustu viku fjallaði tímavél DV
um Sigvardt Bruun, fangavörð
í tukthúsinu við Arnarhól und
ir lok 18. aldar. Óþokka sem
margar þjóðsögur spunnust um,
þar á meðal undarlegan dauðdaga
hans eftir spark frá hesti. Ekkja
hans, Christine, keypti beyki
hús við Tjarnargötu 4 sem var
nefnt Brúnshús en það var rifið í
kringum árið 1830. Brúnshús var
vettvangur eins þekktasta reim
leikamáls í sögu Reykjavíkur, hið
svokallaða draugsmál Sigurðar
Breiðfjörð.
Skáldið, böðullinn og
rolumennið
Í janúar síðastliðnum var stutt
lega minnst á Sigurð Breiðfjörð
skáld í tímavél DV. Hann var fædd
ur árið 1798 í Breiðafirði og starf
aði víða um land sem beykir, en
einnig á Grænlandi. Sigurður var
mikið skáld en óreglumaður, sem
lifði í stöðugri fátækt og hélt illa á
kvennamálum sínum. Árið 1826
flutti hann til Vestmannaeyja og
giftist konu að nafni Sigríður Niku
lásdóttir. Hana skildi hann eft
ir í Eyjum og giftist annarri konu,
Kristínu Illugadóttur á Snæfells
nesi. Var hann dæmdur til 20
vandarhögga og hárrar fjársektar
fyrir tvíkvænið. Síðustu árin bjó
hann í Reykjavík, var hann heilsu
veill og sat inni fyrir ýmsa glæpi,
þar á meðal ávísanafölsun. Sig
urður dó innan við fimmtugt úr
mislingum.
Sú saga sem nú verður
sögð, gerðist áður en hin miklu
persónulegu vandamál Sigurðar
hófust, eða árið 1823. Brúnsb
hús var kannski ekki reisulegt
hús á nútímamælikvarða en það
þótti myndarlegra en mörg önn
ur í miðbæ Reykjavíkur á þessum
árum. Það var reist sem hluti af
Innréttingum Skúla Magnús sonar
fógeta, á árunum 1752 til 1760.
Jörundur hundadagakonungur
hafði búið þar stuttlega og kaup
maðurinn Jakob Robb, og svo auð
vitað ekkjan Christine Bruun sem
húsið var nefnt eftir.
Sigurður Breiðfjörð var einn sex
ungra manna sem bjuggu í Brúns
húsi þegar reimleikarnir hófust en
auk þess bjó þar fjögurra manna
fjölskylda. Flestir sem bjuggu
þarna voru smiðir en einnig var
þar böðull að nafni Guðmund
ur Hannesson sem kallaður var
Fjósarauður. Þeir sem einnig koma
við sögu hér af íbúum Brúns
húss eru Hannes Erlendsson skó
ari og Pétur Pétursson beykir sem
var lýst sem „rolumenni“ og hálf
gerðum einfeldningi. Allir voru
mennirnir á þrítugsaldri og þótti
sopinn ekki vondur. Málinu voru
gerð skil í Lesbók Morgunblaðsins
árið 1951 og aftur í Tímanum árið
1990.
Barið á glugga og hurð
Miðnætti, þann 4. desember
árið 1823. Allir íbúar Brúnshúss
voru farnir upp í rúm nema Sig
urður Breiðfjörð, Hannes og
Guðmundur böðull sem sátu í
eldhúsinu. Pétur var þó enn vak
andi í bæli sínu en hann og Hann
es sváfu saman í herbergi.
Allt í einu heyrði Pétur að ein
hver var að eiga við gluggann. Þá
kom Hannes inn og spurði Pétur
þá hvort hann hefði verið að bisa
eitthvað við gluggann. Hannes
neitaði því og spurði Sigurð sem
neitaði einnig. Þegar Hannes ætl
aði að fara að sofa heyrðist aftur
þrusk í glugganum, og kröftugra
en áður. Pétur slökkti ljósið og
rauk að glugganum en sá ekkert
nema svartnættið.
Þá heyrðist ýlfur fyrir utan
svefnherbergishurðina og líkt og
krafsað væri í hurðina sjálfa. Þá
heyrðist mikill skellur líkt og lamið
hefði verið kröftuglega í hana.
Pétur varð nú mjög hræddur og
Hannes fór til að athuga, en hann
sá ekkert nema myrkrið á gangin
um. „Samt hlýtur þetta að vera
draugur eða vofa,“ sagði hann við
Pétur og þá kom annað bylmings
högg á hurðina.
Byssan sótt
Nú var Pétur orðinn svo hrædd
ur að hann stökk upp úr rúminu og
náði í byssu. Hún var óhlaðin og
Pétur gekk að skattholi einu til að
sækja púður. Á meðan hann gerði
það kallaði hann til draugsins
og hótaði að skjóta hann. Höfðu
hótanirnar ekkert að segja því að
þriðja höggið dundi á hurðinni.
Pétur varð þá svo hræddur að
hann stökk upp í rúmið, hnipraði
sig saman og grét.
Draugurinn æstist nú enn
frekar. Heyrðu bæði Pétur og
Hannes hljóð sem líktist helst
hvalablæstri. Þá komu glær
ingar út um skráargatið á svefn
herbergishurðinni. Var Pétur nú
orðinn sannfærður um að hér
væri á ferðinni sending sem væri
komin til að vinna þeim mein.
Þegar glæringunum linnti bað
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
Draugurinn í Brúnshúsi
n Kraftaskáldi borgað í peningum og víni n Endaði fyrir dómstólum
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is „Haldið
þið að ég
viti ekki allt um
þennan draug
og hvernig hann
er gerður?
Draugur að
austan Vildi
drepa Pétur beyki.
Sigurður Breiðfjörð
Kraftaskáld og íbúi í
Brúnshúsi.