Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Blaðsíða 42
42 PRESSAN 10. maí 2019 K völd eitt árið 1988 sat Ric­ hard Andersen rann­ sóknarlögreglumaður í felum í herbergi á sjúkra­ húsinu í Kolding. Hann var að sinna sérverkefni, verkefni sem var ólíkt öllu öðru sem hann hafði tekist á við á 12 ára ferli sín­ um í lögreglunni. Á sjónvarpsskjá horfði hann á beina útsendingu úr skiptiherberginu á sjúkra­ húsinu. Þar var kona á fullu að skipta á átta mánaða gömlum syni sínum. Hún gerði þetta af mikilli ástúð og vel, betur en margar af hinum mæðr­ unum sem hann hafði fylgst með í skipti­ herberginu þennan dag. Richard hugsaði því með sér að enginn fótur væri fyrir grunsemd­ unum sem beindust að konunni. Síðan teygði konan sig í pokarúllu og reif einn poka af. Hún lagði pokann yfir maga drengsins á meðan hún var að skipta á hon­ um. Síðan var pokinn kominn á bringu drengsins. Richard sá ná­ kvæmlega það sem hann hafði ekki trúað að hann myndi sjá. Hann lyfti símtólinu og hringdi í barnadeildina. „Þetta er lögreglan, hlaupið inn í skiptiherbergið, það er svo­ lítið hryllilegt að gerast þar,“ sagði hann en það var eins og konan á hinum enda línunnar skildi ekki alvöruna í því sem hann sagði. Hann lagði því á og hljóp. Upp stigann og eftir ganginum í átt að skiptiherberginu. Þetta var upphafið að lausn annars tveggja mála af þessari tegund sem hafa komið upp í Danmörku á undanförnum 30 árum. Þessi mál tengjast ástandi eða sjúkdómi sem nefn­ ist Münchausen by Proxy hjá full­ orðnu fólki. Það lýgur þá til um eða framkallar sjúkdómseinkenni hjá börnum til að fá athygli. Ný­ lega var fjallað um málið í þættin­ um Station 2 á TV2. Síðara málið er öllu nýrra af nálinni eða síðan í febrúar á þessu ári. Þá var 36 ára móðir dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa árum saman tappað blóði úr syni sínum. Upphafið Á meðan lögreglumaðurinn Ric­ hard var á harðahlaupum á sjúkrahúsinu sat Bjarne Mylle­ rup heima hjá sér í Ejstrupholm, sem er í um 70 kílómetra fjar­ lægð frá Kolding. Hann grunaði ekki að innan skamms yrði hann í brennidepli óvenjulegs og skelfi­ legs mál, einstaks mál í Danmörku þar til á þessu ári. Bjarne kom fram í Station 2 og skýrði frá hvernig málið eyðilagði fjölskyldu hans. Hann kynntist konu sinni þegar þau voru ung að árum og þau felldu strax hugi saman og eignuðust dóttur 1984 og soninn Andreas tveimur árum síðar. Hann var glaður drengur og Bjarne naut þess að sjá hversu vel eiginkona hans hugsaði um börn­ in. Hún las fyrir þau, lék við þau og sýndi þeim mikla umhyggju. Andreas var ekki mjög gamall þegar hann fór að fá einhvers kon­ ar köst, hann svimaði og var oft lagður inn á sjúkrahús en læknar voru engu nær um hvað væri að honum. Hann var oft við dauðans dyr. Bjarne vann mikið en mætti oft á fundi með yfirlækninum og ræddi við hjúkrunarfólkið um gang mála. En að öðru leyti var það konan hans sem sá að mestu um það sem tengdist veikindum drengsins. Hún átti einnig frum­ kvæðið að þátttöku fjölskyldunn­ ar í sjónvarpsþætti þar sem þau skýrðu frá veikindum Andreas. Sérstakt herbergi var útbúið á heimili þeirra með endurlífg­ unarbúnaði svo hægt væri að hafa Andreas, sem var orðinn eins árs, heima. Móðirin sá að mestu um allt þessu tengt en á nóttunni áttu læknanemar að vakta Andreas. Daginn eftir að Andreas kom heim var hann lagður inn á sjúkrahús því hann hafði fengið kröftugt kast. Vinnufélagi Bjarne ók hon­ um á sjúkrahúsið og á leiðinni Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS Hættuleg móðir Skelfilegur geðsjúkdómur„Af hverju hringdirðu ekki í okkur? Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Plastpoki Móðirin náðist á upptöku að vinna syni sínum mein. Ekstrabladet Mikið hefur verið fjallað um svipað mál í dönskum fjölmiðlum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.