Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Qupperneq 42
42 PRESSAN 10. maí 2019
K
völd eitt árið 1988 sat Ric
hard Andersen rann
sóknarlögreglumaður í
felum í herbergi á sjúkra
húsinu í Kolding. Hann var að
sinna sérverkefni, verkefni sem
var ólíkt öllu öðru sem hann
hafði tekist á við á 12 ára ferli sín
um í lögreglunni. Á sjónvarpsskjá
horfði hann á beina útsendingu
úr skiptiherberginu á sjúkra
húsinu. Þar var kona á fullu
að skipta á átta mánaða
gömlum syni sínum. Hún
gerði þetta af mikilli ástúð
og vel, betur
en margar af
hinum mæðr
unum sem hann
hafði fylgst með í skipti
herberginu þennan dag.
Richard hugsaði því með sér að
enginn fótur væri fyrir grunsemd
unum sem beindust að konunni.
Síðan teygði konan sig í pokarúllu
og reif einn poka af. Hún lagði
pokann yfir maga drengsins á
meðan hún var að skipta á hon
um. Síðan var pokinn kominn á
bringu drengsins. Richard sá ná
kvæmlega það sem hann hafði
ekki trúað að hann myndi sjá.
Hann lyfti símtólinu og hringdi í
barnadeildina.
„Þetta er lögreglan, hlaupið
inn í skiptiherbergið, það er svo
lítið hryllilegt að gerast þar,“ sagði
hann en það var eins og konan á
hinum enda línunnar skildi ekki
alvöruna í því sem hann sagði.
Hann lagði því á og hljóp. Upp
stigann og eftir ganginum í átt að
skiptiherberginu.
Þetta var upphafið að lausn
annars tveggja mála af þessari
tegund sem hafa komið upp
í Danmörku á undanförnum
30 árum. Þessi mál tengjast
ástandi eða sjúkdómi sem nefn
ist Münchausen by Proxy hjá full
orðnu fólki. Það lýgur þá til um
eða framkallar sjúkdómseinkenni
hjá börnum til að fá athygli. Ný
lega var fjallað um málið í þættin
um Station 2 á TV2.
Síðara málið er öllu nýrra af
nálinni eða síðan í febrúar á þessu
ári. Þá var 36 ára móðir dæmd í
fjögurra ára fangelsi fyrir að hafa
árum saman tappað blóði úr syni
sínum.
Upphafið
Á meðan lögreglumaðurinn Ric
hard var á harðahlaupum á
sjúkrahúsinu sat Bjarne Mylle
rup heima hjá sér í Ejstrupholm,
sem er í um 70 kílómetra fjar
lægð frá Kolding. Hann grunaði
ekki að innan skamms yrði hann
í brennidepli óvenjulegs og skelfi
legs mál, einstaks mál í Danmörku
þar til á þessu ári.
Bjarne kom fram í Station 2 og
skýrði frá hvernig málið eyðilagði
fjölskyldu hans. Hann kynntist
konu sinni þegar þau voru ung
að árum og þau felldu strax hugi
saman og eignuðust dóttur 1984
og soninn Andreas tveimur árum
síðar. Hann var glaður drengur og
Bjarne naut þess að sjá hversu vel
eiginkona hans hugsaði um börn
in. Hún las fyrir þau, lék við þau
og sýndi þeim mikla umhyggju.
Andreas var ekki mjög gamall
þegar hann fór að fá einhvers kon
ar köst, hann svimaði og var oft
lagður inn á sjúkrahús en læknar
voru engu nær um hvað væri að
honum. Hann var oft við dauðans
dyr. Bjarne vann mikið en mætti
oft á fundi með yfirlækninum og
ræddi við hjúkrunarfólkið um
gang mála. En að öðru leyti var
það konan hans sem sá að mestu
um það sem tengdist veikindum
drengsins. Hún átti einnig frum
kvæðið að þátttöku fjölskyldunn
ar í sjónvarpsþætti þar sem þau
skýrðu frá veikindum Andreas.
Sérstakt herbergi var útbúið
á heimili þeirra með endurlífg
unarbúnaði svo hægt væri að hafa
Andreas, sem var orðinn eins árs,
heima. Móðirin sá að mestu um
allt þessu tengt en á nóttunni áttu
læknanemar að vakta Andreas.
Daginn eftir að Andreas kom heim
var hann lagður inn á sjúkrahús
því hann hafði fengið kröftugt
kast. Vinnufélagi Bjarne ók hon
um á sjúkrahúsið og á leiðinni
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is
LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS
Hættuleg móðir
Skelfilegur geðsjúkdómur„Af
hverju
hringdirðu
ekki í okkur?
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Plastpoki Móðirin náðist á upptöku að
vinna syni sínum mein.
Ekstrabladet Mikið hefur verið fjallað
um svipað mál í dönskum fjölmiðlum.