Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Qupperneq 54

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Qupperneq 54
54 FÓKUS 10. maí 2019 Sundaborg 3 - 104 Reykjavík - 777 2700 - xprent@xprent.is SKILTAGERÐ BÍLAMERKINGAR BANNER-UP SÓLARFILMUR Ráðgjöf Hönnun Framleiðsla Uppsetning „Billjóna dollara hugmynd seld til einnar stærstu lögfræðistofu Bretlands“ Íris Hervör vann alþjóðlega frumkvöðlakeppni í lögfræði Í ris Hervör Sveinsdóttir er nem- andi á lokaári í lögfræði á Bif- röst. Í apríl vann hún ásamt félögum sínum verðlaun í al- þjóðlegri frumkvöðlakeppni í lög- fræði og hafa þau þegar selt hug- mynd sína til stærstu lögfræðistofu Bretlands og vinna að því að koma hugmyndinni á markað. „Ég tók menntaskólann í Hrað- braut og þar var einn áfangi í lögfræði, sem ég lauk með 10 í einkunn. Þar sá ég að lögfræðin var klárlega eitthvað sem átti vel við mig og mig langaði að læra,“ segir Íris. Hún tók eitt ár í lögfræði í Háskóla Íslands, fór svo að læra lögfræði við Háskólann á Bifröst og lýkur eins og áður sagði BS- -gráðu þaðan í sumar og stefnir á að fara strax í master. „Ég er búin að taka námið í nokkrum bútum, þar sem ég eignaðist bæði börn- in mín á námstímanum, Ágúst Breka, sem er 9 ára, og Ísabellu Jönu, sem er 5 ára.“ Draumastarfið væri starf tengt Evrópurétti eða öðru slíku og Íris sér því ekkert til fyrirstöðu að flytja út til vinnu með eiginmanninn, Inga Gunnar Ingason, og börnin. „Eftir að foreldrar mínir skildu þá flutti pabbi til Þýskalands og ég var mjög oft hjá honum, ég tala þýskuna reiprennandi og er alveg tilbúin og óhrædd við að kynn- ast nýrri menningu og öðru, ég lít ekkert svo á að ég sé bara föst hér á Íslandi.“ Ítarlegt umsóknarferli í alþjóðlega keppni Keppnin sem Íris tók þátt í nefn- ist Law Without Walls, eða lög án veggja, og er alþjóðleg keppni sem margir af virtustu háskólum heims taka þátt í, þar á meðal Harvard og háskólinn í Miami. „Helga Krist- ín Auðunsdóttir, sviðsstjóri lög- fræðisviðsins á Bifröst, hafði sam- band við mig og spurði hvort ég hefði ekki áhuga á að taka þátt,“ segir Íris. Umsóknarferlið er tölu- vert og Íris byrjaði á að fylla út ítarlega umsókn ásamt því að taka upp kynningarmyndband sem hún sendi með. Á næsta stigi tók síðan við ítarlegt persónuleikapróf og að lokum voru valdir um 100 þátttakendur um allan heim til að taka þátt í keppninni. „Ég var síðan pöruð saman við tvo aðra þátttakendur, Aug- ustine frá Argentínu, og Addy frá Þýskalandi. Þau eru bæði að út- skrifast úr lögfræði í sínu heima- landi. Við fengum einnig fyrirmæli um verkefni, en þurftum síðan að vinna saman að því að útfæra það frekar í eitthvað nothæft,“ segir Íris. Keppnin er styrkt af mörgum stórum fyrirtækjum á alþjóðavísu, líkt og Microsoft og Spotify. Hver hópur fékk síðan leiðbeinendur, sem þau höfðu greiðan aðgang að til að fá leiðbeiningar og upplýs- ingar og segir Íris að það hafi ver- ið ómetanlegt, enda leiðbeinend- urnir yfirmenn stórra fyrirtækja með mikla þekkingu og reynslu á sínu sviði. „Leiðbeinendurnir eru yfirmenn hjá Denton, sem er ein stærsta lögfræðistofa Bretlands, með yfir 200 starfsstöðvar um allan heim, yfirmaður hjá hugbún- aðarfyrirtækinu AI Management og fleiri.“ Hópur Írisar þróaði nýtt kerfi fyrir lögfræðistofur, sem heldur utan um „proposal“ eða útboð eins og það myndi heita á ís- lensku, sem lögfræðistofur senda frá sér. „Tökum sem dæmi að Dis- ney vanti lögfræðistofu í vinnu, þá sendir fyrirtækið fjölda lög- fræðistofa, jafnvel fleiri hundraða, tilkynningu um að fyrirtækið sé að leita að lögfræðistofu. Hver stofa leggur síðan heilmikla vinnu og mannskap í að útbúa gögn, svo- kallað „proposal“, sem send eru til væntanlegs verkkaupa, sem síðan velur eina lögfræðistofu úr hópn- um, eða jafnvel enga,“ segir Íris. „Allar lögfræðistofurnar sem hafa varið miklum tíma og mannskap í að reyna að fá verkið fá því ekkert greitt fyrir sína vinnu. Kerfið sem við bjuggum til heldur utan um alla þessa vinnu, þannig að næst þegar lögfræðistofa ætlar að gera slíkt „proposal,“ þá þarf einung- is að slá inn ákveðnar upplýsingar sem kerfið sækir og safnar saman.“ Þremenningarnir töluðu saman á Skype og með tölvupóst- samskiptum, auk þess að hafa greiðan aðgang að leiðbeinendum sínum. Fagnaðarfundir voru síðan í Miami í Bandaríkjunum rétt fyrir Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is M Y N D : H A N N A /D V Upphafsskjámynd ProPosal Ein skjá- mynd úr kerfinu sem Íris og félagar hennar hönnuðu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.