Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2019, Page 56
10. maí 2019
19. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Mjá, þið segið
það!
522 4600
www.krokur.net
Krókur hf. er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja.
Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta
í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina.
Krókur býður m.a. uppá:
• Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum
• 24 stunda þjónustu allt árið um kring
• björgunarþjónustu og aðstoð ef bílar bila eða flytja þarf þá á verkstæði
Taktu Krók á leiðarenda
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
á þinni leið
Tanja hannar vörur innblásnar af brauðtertum
T
anja Levý Guðmundsdóttir er 29
ára hönnuður með bakkalárs-
gráðu í fatahönnun úr LHÍ og
diplóma í textílhönnun frá Mynd-
listaskólanum í Reykjavík. Hún hef-
ur hannað vörur sem fá innblástur frá
brauðtertum, sem Tanja telur að eigi að
vera titlaðar sem þjóðarréttur Íslendinga.
„Hugmyndin fæddist út frá samstarfs-
verkefni með góðvini mínum, listamann-
inum Loja Höskuldssyni. Við hönnuðum
tillögu að landsliðsbúningum sem áttu að
sameina íþróttir og listir. Fagurfræðin var
innblásin af íslenskum raunveruleika á
alls kyns máta en þaðan kom brauðtertan
sem einkenndi sundfatnaðinn í línunni,“
segir Tanja, sem kann sjálf að gera
brauðtertur og nýtur þess að skreyta þær.
„En uppáhaldsbrauðterturnar mínar eru
þær sem móðir mín og systur hennar
gera fyrir fjölskylduveislur. Risastórar, alls
konar tegundir! Þær eru svo fallegar og ég
man eftir að frá því að ég var krakki fannst
mér algjör synd að borða þær vegna þess
að ég vildi bara dást að því hvað þær voru
fallegar, algjör listaverk.“
Tanja hefur hannað brauðtertusund-
bol, brauðtertuhandklæði og brauðtertu-
eldhúsvörulínu. „Ég er svo með fram-
haldsverkefni í maganum sem ég vil
framkvæma sem fyrst.“
Nýlega hefur brauðtertan rutt sér til
rúms á samfélagsmiðlinum Facebook í
hópnum Brauðtertufélag Erlu og Erlu,
þar sem Tanja er einn meðlima. „Mér
finnst þessi réttur alls ekki mega falla í
gleymskunnar dá og eiga skilið að vera
í hávegum hafður. Fyrir nokkrum árum
var ég sjálf farin að sakna brauðtertunn-
ar í fjölskylduveislum og mér fannst lítið
bera á þeim í kringum mig.“ En hverjar
eru ástæður vinsælda brauðtertunn-
ar? „Ég tel að ástæðan fyrir því að
brauðtertur eru svona vinsælar sé að flest
okkar tengja þær við sérstök tilefni og
minningar um fjölskyldusamkomu. Það
má í raun segja að þær séu ákveðin tákn-
mynd fyrir hina íslensku fjölskylduveislu.
Ég á hvorki maka né börn en ég geri þær
kröfur til framtíðarmaka míns að hann
hafi dálæti á brauðtertum.“ n
Tanja og
brauðtertulínan
Þvílík snilld fyrir
brauðtertuunnendur
„Mig langaði
til að allir
myndu lesa
sögurnar mínar“
S
indri Arnar Svavarsson
er 11 ára nemandi í Set-
bergskóla. Hann var að
gefa út sína fyrstu bók,
sem kom út rétt fyrir afmælið
hans, þann 2. maí.
„Mér finnst gaman að búa til
sögur og mig langaði til að all-
ir gætu lesið sögurnar mínar,“
segir Sindri Arnar, sem segist
vera duglegur að skrifa og hafa
skrifað alls konar sögur áður.
Bókin Allir kettir eru krútt
fjallar um litla kisu sem fer að
heiman. „Svo kemur nýr kett-
lingur sem allir elska meira en
hann,“ segir Sindri Arnar. Til að
komast að örlögum kisa verða
lesendur að næla sér í eintak af
bókinni, en það má gera með
því að senda móður Sindra
Arnars tölvupóst á netfangið
sonja@fitnesssport.is.
Að sögn móður Sindra
Arnars, Sonju Magnúsdóttur,
er hann mikill lestrarhestur og
fer létt með að spæna upp 200
blaðsíðna bækur. „Hann er til
dæmis búinn með allar bækur
Ævars vísindamanns og ég er
stundum í vandræðum með að
finna lesefni fyrir hann.“
Í skólanum finnst Sindra
Arnari mest gaman í lotum:
„Þá er maður að smíða, baka
og fleira.“ Lestur og skrif eru
þó ekki einu áhugamál Sindra
Arnars, því hann er einnig að
læra á píanó og æfir fótbolta.