Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Side 15
FÓKUS - VIÐTAL 1518. apríl 2019 Auðvitað reynir það á að vera fjöl- skylda á tónleikaferðalagi. Aldrei samt þannig að okkur liði illa saman.“ Bílslysið jákvæð lífsreynsla Í aprílmánuði árið 2008 lentu meðlimir Steed Lord og Egill, faðir bræðranna, í mjög alvar- legu bílslysi á Reykjanesbraut- inni. Hljómsveitin var á leið í flug snemma morguns þegar bíl- stjóri fólksbíls úr gagnstæðri átt missti stjórnina og hafnaði fram- an á þeirra bíl. Einar man mjög vel hvernig þetta atvikaðist. Hált var á veginum og viðgerðir á Reykjanes- brautinni. Hann segir það mikla mildi að faðir þeirra hafi verið við stýrið því hann keyri jafnan frekar hægt. „Þetta hefði getað farið svo mikið verr, ef við hefðum verið á meiri hraða,“ segir Einar. „Ég sá blátt flykki koma. Síðan heyrðist hræðsluöskur. Og maður tók höggið.“ Elli sat í framsætinu, Einar, Eð- varð og Svala aftur í. „Eftir að höggið kom var eins og tíminn liði hægar. Það liðu átján mínútur þangað til sjúkrabíllinn kom, en mér fannst þetta líða eins og tveir klukkutímar. Það var mik- il reykur, öskur og kuldi. Þetta var eins konar súrrealísk upplifun og mér fannst þetta vera eins og eitt- hvert djók. Þetta væri ekki að ger- ast,“ segir Einar og brosir út í ann- að. „Síðan tók við skelfing og ör- vænting og ég fylltist af adrena- líni. Ég vissi ekki hvort það væri í lagi með fjölskyldu mína. Til að byrja með hélt ég að svo væri ekki. Ég var með fullri meðvitund og gat hreyft mig. Þegar ég losaði bíl- beltið sá ég að það var aðeins graf- ið inn í mig. Ég fór strax að reyna að hjálpa, en svo kom í ljós að ég var sjálfur alvarlega slasaður.“ Einar var í tveggja punkta belti og hann fékk mikla áverka á kviðinn við höggið. „Það sprakk allt inni í mér. Það voru göt úti um allt og miklar inn- vortis blæðingar. En ég fann ekk- ert fyrir því fyrr en adrenalínið var runnið úr mér og ég kominn upp á spítala. Ég sá alvarleikann í augun- um á læknunum, gríma var sett á mig og svo slokknaði á mér.“ Einar og Eðvarð þurftu að fara samstundis í skurðaðgerð og fyrstu nóttina var tvísýnt hvort Einar hefði þetta af. Það næsta sem hann man var að hann vaknaði fjórum dögum seinna í öndunarvél. Við tóku fjórir mánuðir af spít- alavist. Einar þurfti að undirgang- ast fjölda aðgerða á kviðarholi og ekki heppnuðust allar sem skyldi. Sárin greru oft illa og sýk- ingar komu í þau. Einar segir að þetta hái honum enn í dag, ellefu árum eftir slysið. Bæði hvað varð- ar kviðinn og mikla bakverki eftir höggið. „Þetta breytti mér. Ég verð að vera duglegur að hreyfa mig og lifa mjög heilbrigðum lífsstíl. Ég borða góðan og hollan mat því að ég má ekki gera annað, þá fer allt í steik. Ef ég sé vel um mig líður mér bæri- lega.“ Hvaða tilfinningar hefur þú gagnvart slysinu í dag? „Þetta var mjög jákvæð lífs- reynsla,“ segir Einar án þess að hika og kemur það nokkuð flatt upp á blaðamann að heyra. „Hún varð það. Samheldnin í fjölskyldunni var mikil og ég fann fyrir miklum stuðningi frá bæði vinum og ókunnugu fólki. Ég fann fyrir fallegri orku á spítalanum og starfsfólkið stóð sig vel. Það hefði verið auðvelt að sökkva sér ofan í volæði yfir því að vera fastur þarna og að sumar aðgerðirnar hefðu ekki gengið sem skyldi. En ég fann einhverja innri ró í öllu þessu ferli og í dag finnst okkur öllum í fjöl- skyldunni vænna um lífið sjálft. Ég fékk aðra lífssýn og veraldleg- ir hlutir skipta mig ekki jafn miklu máli og áður. Þetta var harkaleg áminning um hversu dýrmætt líf- ið er og hversu litlu getur munað að illa fari.“ Með heimþrá í Los Angeles Bílslysið átti sinn þátt í að hljóm- sveitarmeðlimir Steed Lord fluttu búferlum til Los Angeles í Kali- forníu. Vildu þau skipta um um- hverfi og komast mitt í suðupott tónlistar- og kvikmyndabransans. Elli hætti þá í bandinu til að ein- beita sér að eigin listsköpun. „Við þekktum aðeins til áður en við fórum þarna út. Þetta er æðisleg borg og öðruvísi en margir halda. Hverfið sem við fluttum til, Silverlake, er til að mynda mjög evrópskt, ef svo má segja, og fólk alls staðar að úr heiminum saman komið. Maturinn er frábær og veðrið sömuleiðis. En Los Angeles er risastór borg og langt á milli staða. Fólk dvelur lengi í bílunum sínum og er nokkuð einangrað. Það er aðeins lítill hluti af borginni þar sem fólk er með andlitsstrekk- ingar, keyrandi um á Lamborghini. Svæði sem við sóttum ekkert í.“ Steed Lord hætti árið 2016 og árið 2018 skildu Einar og Svala. Í millitíðinni kom hún fram í Eurovision, árið 2017, með lagið Paper sem þau Einar sömdu ásamt Lester Mendez og Lily Elise. Einar býr enn þá í Los Angeles en hann finnur að Ísland togar í hann. „Ég er með heimþrá í Ísland. Okkar menningu, okkar náttúru og fólkið auðvitað.“ Stór verkefni í bígerð Einar situr nú við handritsgerð fyr- ir tvö stór verkefni. Annars vegar er það fyrir kvikmynd og hins vegar þáttaröð, í samstarfi við El- ías K. Hansen sem Einar kynntist í Los Angeles. „Íslensk kvikmyndagerð er á tímamótum núna og mig langar til þess að taka þátt,“ segir Einar. Hann hefur vakið talsverða athygli fyrir ljósmyndun og byggir hand- ritsgerðina að hluta til á myndum. „Afi minn, Eðvarð Sigurgeirs- son, var atvinnuljósmyndari á Akur eyri og ég var mikið í myrkraherberginu hjá honum. Pabbi var líka alltaf með mynda- vél á sér og ég stalst í hana, tólf eða þrettán ára. Ég hef aldrei stund- að þetta sem atvinnugrein heldur frekar sem tæki til að hjálpa mér að fanga staði og stund. Líkt og minnisblöð til að festa hugmynd- ir niður.“ Einar hefur aldrei haldið sýn- ingu á ljósmyndum sínum, en stefnir á þá fyrstu í sumar á Ís- landi. Sumar myndirnar hans hafa þó ratað í tímarit. Einar einblínir frekar á staði og sögusvið frekar en fólk, og ljósið skiptir höfuðmáli. „Ég keyri mikið um, með myndavélina með mér, og mynda ef ég sé eitthvað sem grípur mig. Ég fer ekki út til þess að leita uppi myndefni og er ekki að fylgja ákveðinni stefnu. Það er aftur á móti ákveðinn tónn eða stef í myndunum sem lifir í mér sjálf- um. Eins og svo margir er ég líka haldinn mikilli nostalgíu og það sést í myndunum. Margt sem ég mynda er fljótt á litið mjög ómerki- legir hlutir, en ég sé eitthvað við þá sem gerir þá athyglisverða fyr- ir mig. Það gæti til dæmis verið hversdagslegt útvarpsmastur úti á landi, en fyrir mér er það bíó- myndasena.“ Einar hefur setið við skriftir að leikinni dramamynd sem verður hans fyrsta í fullri lengd. Hann vill ekki gefa of mikið upp og segja frá söguþræðinum, en segir að hún sé mjög persónuleg. „Þetta er rammíslensk mynd. Það var mjög krefjandi að takast á við handritsgerðina, en ég hef haft áhuga á þessu lengi. Þegar ég var yngri skrifaði ég smásögur. Að skrifa handrit er ekki ósvipað og að skrifa lag. Það er ákveðinn inn- gangur og síðan skipting á köflum, líkt og erindi og viðlag í tónlist.“ Hitt stóra verkefnið sem Einar og Elías eru að vinna að er þátta- röð. Átta leiknir þættir, hver tæp- ur klukkutími að lengd, og hafa þeir nýlega skrifað undir samning við Pegasus sem mun framleiða þættina. Einar mun einnig sjá um að leikstýra þáttunum sem verða dramatískir líkt og kvikmyndin. „Við skrifuðum undir fyrir örfáum dögum, en það er ekki kominn nákvæmur tímarammi. Ég býst við að þetta taki um eitt til eitt og hálft ár áður en við för- um í tökur. Þetta eru átta leiknir íslenskir sjónvarpsþættir, drama, og við erum öll mjög spennt fyrir þessu metnaðarfulla verkefni.“ Ætlar þú að leggja þetta fyrir þig í framtíðinni? „Já, algjörlega. Ég er búinn að vera lengi í tónlist en kvikmynda- gerðin hefur lengi togað í mig. Þetta eru spennandi tímar og ég finn fyrir miklum áhuga á íslensku efni.“ Öfugt við marga þá ferð þú frá Hollywood til Íslands til að gera bíó? „Já, þetta er svo persónulegt. Eins yndislegt það er að vera í Los Angeles og Hollywood, þá er það ekki mín saga. Ég er Íslendingur og vil segja íslenskar sögur.“ n GRÆNA TUNNAN AUÐVELDAR FLOKKUNINA Pappír, pappa, plast og minni málmhluti má setja beint í tunnuna - Muna að skola Pantaðu grænu tunnuna í síma 577-5757 eða www.igf.is/panta 577 5757 Ég hef aldrei haft áhuga frægðinni sem slíkri eða „að meika það Rendezvous

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.