Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Qupperneq 38
38 FÓKUS - VIÐTAL 18. apríl 2019 U nnur Kristín Óladóttir kom nýlega heim með fyrstu verðlaun í sínum flokki í fitnesskeppni á Ír- landi. Hreyfing og hollur lífsstíll eru hennar áhugamál og atvinna, en hún telur nauðsynlegt að hver og einn finni lífsstíl og mataræði sem henti viðkomandi. Unnur er einstæð móðir og agi og skipulag hafa skilað henni þangað sem hún er í dag, en að hennar sögn er stuðningur og gott bakland einnig nauðsynlegt. „Ég ákvað það strax, 4–5 ára gömul, að verða gullsmiður,“ segir Unnur, sem byrjaði 14 ára að vinna við afgreiðslu hjá föður sínum, Óla Jóhanni Daníelssyni, sem á Gull- smiðju Óla. „Ég stóð við þau orð og útskrifaðist sem gullsmiður árið 2011 og vann við það í nokkur ár. Síðan langaði mig að breyta til og standa á eigin fótum, það fylgja því bæði kostir og gallar að vinna í fjölskyldufyrirtæki.“ Unnur hóf einkaþjálfaranám í Keili og útskrifaðist úr náminu janúar 2016. Í dag starfar hún sem einkaþjálfari í Sporthúsinu í Kópa- vogi. „Þetta er búið að ganga vel alveg frá því að ég byrjaði og ég er að fíla mig í tætlur og finnst alltaf gaman að mæta í vinnuna. Þetta er gjörólíkt því að sitja á verkstæði allan daginn og smíða, sem mér finnst líka æðislegt og gaman og ég geri það alveg inni á milli. En mig langaði í annað umhverfi, hitta fólk og vera innan um það. Ég er kom- in með góðan hóp af viðskiptavin- um og mér finnst frábært að miðla minni þekkingu og reynslu til að hjálpa öðrum einstaklingum í að ná markmiðum sínum.“ Áhugamál Unnar snúast líkt og vinnan helst um allt sem tengist heilsu og líkamsrækt, hún byrjaði sex ára gömul í dansi og var í hon- um þar til hún var tólf ára og þá tók handboltinn við. Þegar hún var 18 ára gömul byrjaði Unnur síðan í líkamsræktinni. Árið 2008, þegar hún var tvítug, keppti hún á sínu fyrsta fitnessmóti og þá kviknaði um leið áhuginn á einkaþjálfar- anum. En af hverju ákvað hún að byrja að keppa? „Æskuvinkona mín keppti árið 2007 í bikinífitness og ég smitað- ist af því að fylgjast með henni. Hún náði svo svakalegum árangri og mér fannst það svo frábært hjá henni og langaði að prófa líka. Ég hef alltaf verið ótrúlega feimin og ég segi ekki að ég hafi valið fitness til að sigrast á feimninni, en þegar ég sagði fólki að ég væri að fara að keppa þá trúði það því varla. „Ætlar þú að fara að standa í bik- iníi uppi á sviði fyrir framan fólk, þú sem getur varla lesið upphátt fyrir aðra?“ voru viðbrögð margra. En maður fer í einhvern karakter „Ég er bara rétt að byrja, ef maður getur sagt það eftir 11 ár“ Unnur Óla vinnur til fitnessverðlauna - Starfaði sem gullsmiður Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is M Y N D : H A N N A /D V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.